Fréttablaðið - 27.10.2012, Blaðsíða 88
27. október 2012 LAUGARDAGUR52
lifsstill@frettabladid.is
Dansviðburðurinn Lunch
Beat hefur slegið rækilega í
gegn frá því hann hóf göngu
sína í ágúst.
DANS Dansviðburðurinn Lunch
Beat hefur slegið rækilega í gegn
frá því hann var haldinn hér
fyrst í tengslum við Reykjavík
Dance Festival í lok ágúst. Hópur
fólks sem starfar við danslist sér
um að skipuleggja viðburðinn
sem á upptök sín í Svíþjóð.
Lunch Beat hófst í Svíþjóð fyrir
tveimur árum þegar hópur fólks
ákvað að hittast eitt hádegi og
dansa. Þetta vatt síðar upp á sig og
nú hefur viðburðurinn verið hald-
inn víða um heim.
Listrænir stjórnendur Reykja-
vík Dance Festival skipulögðu
fyrstu þrjú skiptin en eftir það tók
hópurinn Choreography Reykjavík
við keflinu.
„Við höfum skipulagt síðustu
tvö skipti og þau voru vel sótt.
Það er alls konar fólk sem mætir
og hendir sér strax út í dansinn,“
segir Ásgerður Gunnarsdóttir,
einn af meðlimum Choreography
Reykjavík. Hópurinn býður einn-
ig upp á léttan hádegismat fyrir
dansarana.
„Plötusnúðarnir hafa talað um
hvað þeim þyki þetta gaman því
þarna myndast allt öðruvísi stemn-
ing en um helgar. Þarna er fólk
saman komið til að hlusta, dansa
og virkilega njóta sín.“
Ásgerður segir að ekki fari mik-
ill tími í að skipuleggja viðburðinn
því flestir séu boðnir og búnir til
að leggja hópnum lið. „Flestir taka
vel í þetta, bæði plötusnúðarnir og
eigendur skemmtistaðanna. Sjálf-
um finnst okkur þetta gefandi, fal-
legt og gaman að standa í þessu.“
Næsta Lunch Beat fer fram 1.
nóvember á Hemma og Valda.
sara@frettabladid.is
KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Fólk hendir sér í dansinn
ALLIR DANSA Hópurinn Choreography Reykjavík skipuleggur Lunch Beat. Hér sjást Hrafnhildur Einarsdóttir, Clara Folenius,
Ásgerður Gunnarsdóttir og Alexander Roberts. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Á opinberri vefsíðu Lunch Beat má
finna tíu reglur sem nauðsynlegt
er að framfylgja ætli fólk að taka
þátt í viðburðinum.
1Ef þetta er þitt fyrsta skipti á Lunch Beat þarftu að dansa.
2Ef þetta er þitt annað, þriðja eða fjórða skipti á Lunch Beat
þarftu að dansa.
3Ef þú ert of þreyttur til að dansa, vinsamlegast eyddu
hádegishléinu annars staðar.
4Ekki tala um vinnuna á Lunch Beat.
5Allir eru dansfélagar þínir á Lunch Beat.
6Lunch Beat má ekki vara lengur en eina klukkustund.
Aðrar reglur Lunch Beat eru þær
að viðburðurinn megi ekki bera
hagnað og eiturlyf eru bönnuð.
REGLUR LUNCH BEAT
KYNLÍF Hrekkjavakan er á næsta
leyti. Þó að þetta sé ekki rammís-
lensk hefð hefur hún engu að síður
skotið rótum hér og hafa margir
gaman af og er ég ein þeirra. Það
getur verið mjög frelsandi að setja
sig í gervi einhvers annars, hvort
sem það er ofurhetja eða framandi
starfsstétt. Uppáhaldsbúningarnir
mínir eru þeir heimagerðu. Þá fær
frumleikinn og sköpunargleðin að
njóta sín og viðkomandi fellur ekki
í gryfjuna að hafa „slutty“-for-
skeytið fyrir framan hvern búning.
Það er víst eitthvað við hrekkja-
vökuna sem virðist fá búninga-
framleiðendur til að stytta pilsin,
þrengja mittið og dýpka hálsmálið.
Ég geri mér ekki grein fyrir því af
hverju þetta hefur þróast svona.
Konur geta ekki klæðst einum ein-
asta búningi nema búið sé að kyn-
þokkavæða hann (samkvæmt skil-
greiningu framleiðenda á hvað sé
kynþokkafullt).
Sumum finnst tepruskapur að
gagnrýna slíka búninga og benda
á að það hafi allar konur gaman
af því að vera svolítið dræsulegar,
þó ekki sé nema þetta eina kvöld.
Ég set spurningamerki við slíkar
pælingar, sem og hvað sé að vera
dræsuleg. Ætli þetta sé kannski ein
birtingarmynd svokallaðrar klám-
væðingar þar sem hlutverka leikur
svefnherbergisins er mættur á
grímuball fyrir allra augum. Þú
ert frekar hallærisleg ef þú mætir
sem taflborð nema taflmennirnir
þínir séu allir í kynlífsstellingum.
Það má fara marga hringi í
þessum hugleiðingum fyrir okkur
fullorðna fólkið en verri þykja
mér skilaboðin sem þetta sendir
krökkum. Ungar stelpur geta ekki
klæðst ljónabúningi nema það sé
sexí ljón, og þá væntanlega með
einhvers konar tælandi purri sem
túlka mætti sem loforð um að vera
villt og tryllt í bólinu. Allt þarf að
vera sexí og ofsalega getur það
verið þreytandi. Strákar lúta ekki
sömu lögmálum, þeir mega vera
hvað sem er og enginn pælir í því.
Nema kannski ef gaur myndi mæta
sem sexí ljón. Sá gæti fengið á sig
gagnrýni eða í það minnsta nokkur
hlátrasköll. En þessi sýning kyn-
þokka á unglingsárum er einnig
til marks um ákveðna leitun eftir
athygli og þori, að þora að sýna sig
og fara fram úr öðrum. Ögrun er
jú eitt aðalsmerki unglingsáranna
en mikið vildi ég að hugvitið og
samfélagið næði lengra en það að
stelpur skelli sér í stuttan hvítan
kjól, láti glitta í sokkabönd, setji
hatt á hausinn og bjóðist svo til að
þrífa og þjóna.
Kynþokkavætt grímuball
SOÐINN MATUR er mun hollari en steiktur matur. Ný bandarísk
rannsókn leiddi í ljós að soðinn matur og pottréttir minnkuðu
líkurnar á hjartasjúkdómum en steiktur matur jók þær.
52
SVEFN Því hefur verið haldið fram að svefnstellingar fólks gefi vís-
bendingar um persónuleika þess. Svefnsérfræðingar eru þó ósam-
mála þessu og segja ómögulegt að greina persónueinkenni út frá
svefnstellingum enda breyti fólk oft um stellingu á nóttunni.
„Það er ekki hægt að hrekja þá staðreynd að einhver tengsl séu
þarna á milli en ekki er hægt að staðhæfa nokkuð um að svefnstell-
ingar tengist persónueinkennum fólks,“ hafði Huffingtonpost.com
eftir Philip Gehrman, svefnsérfræðingi hjá Penn Sleep Center. „Þetta
er fyrst og fremst spurning um þægindi. Líður þér vel í stelling-
unni?“
Annað sem ræður svefnstellingum fólks er undirliggjandi krank-
leiki á borð við bakflæði eða kæfisvefn. Fólk sem þjáist af slíku á
til dæmis erfitt með að sofa á bakinu því það gerir einkennin verri.
Opinbera sig í svefni
Á bakinu: Fólk sem sefur á bakinu er talið afslappað í lund og félagslynt.
Fósturstellingin: Fólk sem sefur í fósturstellingunni er sagt vera með
harðan skráp en þó tilfinningaríkt.
Á hliðinni með útrétta handleggi: Þetta fólk er sagt opið, tortryggið og
eiga erfitt með að gera upp hug sinn.
Á maganum með útrétta handleggi: Þetta fólk er talið félagslynt en þolir
illa gagnrýni.
AFSLAPPAÐ FÓLK SEFUR Á BAKINU
SEFURÐU Á BAKINU?
Svefnstellingar gætu
gefið vísbendingar um
persónueinkenni fólks
en það er þó ekki algilt.
NORDICPHOTOS/GETTY
Spoex
Alheimsdagur
29.12.2012
Í tilefni af alheimsdegi psoriasissjúklinga verður opið hús að
Bolholti 6 á göngudeild samtaknna KL: 17.00 til 19.00.
Það verður heitt á könnuni og meðþví.
Stjórn.
Framkvæmdastjórar og
starfsmannastjórar
Eruð þið að skipuleggja jólahlaðborð, ráðstefnu eða árshátíð og
hafið áhuga á að kynna ykkur hvað er í boði núna í vetur?
HITTUMST er ferðasýning þar sem um það bil 60
veitingahús, hótel, söfn og afþreyingafyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinu eru saman komin til að kynna
sína vöru og þjónustu.
Verið velkomin á HITTUMST ferðasýningu að Radisson
Hótel Sögu við Hagatorg, 2. nóvember milli 14:00-18:00.
Um kvöldið verður haldin uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar
á höfuðborgarsvæðinu í Iðusölum þar sem boðið verður
upp á veitingar og skemmtun fram eftir kvöldi.
Miðaverð 2.900 kr. en frekari upplýsingar og skráning fer
fram á ferdamalasamtokin@gmail.com
Með kveðju
Stjórn FSH
www.ferdamalasamtok.is