Fréttablaðið - 27.10.2012, Síða 97
LAUGARDAGUR 27. október 2012 61
KFÍ-Keflavík 69-79 (39-43)
KFÍ: Momcilo Latinovic 25, Bradford Harry
Spencer 15, Mirko Stefán Virijevic 11, Pance Ilievski
8, Jón Hrafn Baldvinsson 4, Óskar Kristjánsson 4,
Christopher Miller-Williams 2
Keflavík: Kevin Giltner 24, Michael Graion 18
(17 frák.), Darrel Keith Lewis 15, Magnús Þór
Gunnarsson 9, Valur Orri Valsson 4, Snorri
Hrafnkelsson 4, Ragnar Gerald Albertsson 3, Almar
Stefán Guðbrandsson 2.
Skallagrímur-ÍR 80-71 (39-34)
Skallagrímur: Carlos Medlock 34, Páll Axel
Vilbergsson 18, Haminn Quaintance 15, Davíð
Ásgeirsson 5, Trausti Eiríksson 3, Sigmar Egilsson
3, Orri Jónsson 1, Birgir Þór Sverrisson 1.
ÍR: Hreggviður Magnússon 25, Eric James Palm
20, Nemanja Sovic 13, D‘Andre Jordan Williams 9,
Þorvaldur Haukss. 2 (10 frák.), Hjalti Friðriksson 2.
STAÐAN
Grindavík 4 3 1 395-355 6
Snæfell 4 3 1 412-344 6
Skallagrímur 4 3 1 342-310 6
Stjarnan 4 3 1 362-334 6
Fjölnir 4 3 1 333-320 6
Þór Þ. 4 2 2 331-336 4
KR 4 2 2 328-349 4
KFÍ 4 2 2 317-351 4
ÍR 4 1 3 322-351 2
Keflavík 4 1 3 325-350 2
Njarðvík 4 1 3 319-348 2
Tindastóll 4 0 4 303- 341 0
DOMINOSDEILD
KÖRFUBOLTI Hlynur Bæringsson var í miklum ham
þegar Sundsvall Dragons vann 15 stiga útisigur á LF
Basket, 92-77, í sjöundu umferð sænsku úrvalsdeild-
arinnar í gærkvöldi. Þetta var fimmti sigur liðsins í
síðustu sex leikjum.
Hlynur Bæringsson átti frábæran leik í liði Sunds-
vall Dragons og var efstur í liðinu í framlagi (42),
stigum (26), fráköstum (15), stoðsendingum (6) og
plús og mínus, en Sundsvall vann með 23 stigum
þegar hann var inni á vellinum. Jakob Örn Sigurðar-
son bætti síðan við 13 stigum, 3 fráköstum og 2 stoð-
sendingum.
Hlynur ætlaði ekki að vera minni maður en gamli
liðsfélaginn hans úr Snæfelli. Jón Ólafur Jónsson hitti
úr öllum tíu skotum sínum í stórsigri á KR í DHL-
höllinni á fimmtudagskvöldið og Hlynur hitti úr átta
fyrstu skotunum sínum í gær; þar af skoraði hann 11
stig á fyrstu fimm mínútum leiksins. Hlynur nýtti 8
af 10 skotum sínum utan af velli og var með nákvæm-
lega sömu nýtingu á vítalínunni. Þetta var langbesti
leikur hans á tímabilinu.
Pavel Ermolinskij var frákastahæstur í liði Norr-
köping Dolphins, sem tapaði með 13 stiga mun á úti-
velli á móti 08-liðinu frá Stokkhólmi, 68-81. Pavel var
með 4 stig og 10 fráköst en hitti aðeins úr 1 af 7 skot-
um sínum. - óój
Hlynur Bæringsson með stórleik í flottum útisigri Drekanna í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gærkvöldi:
Hlynur hitti úr átta fyrstu skotunum sínum
HLYNUR BÆRINGSSON Spilaði sinn besta leik á tímabilinu í gærkvöldi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
var enn á ný á skotskónum með
Cercle Brugge í belgísku úrvals-
deildinni í gærkvöldi en eins
og í hinum leikjunum dugði það
liðinu ekki til að ná í stig. Cercle
Brugge tapaði 1-2 á útivelli á móti
Standard Liege.
Eiður Smári hefur skoraði í
þremur fyrstu leikjum sínum
með Cercle Brugge en liðið hefur
ekki náð í stig í neinum þeirra og
situr enn í botnsæti deildarinnar.
Eiður Smári skoraði líka í 1-3 tapi
á útivelli á móti Zulte-Waregem
og í 1-2 tapi á heimavelli á móti
Mechelen. - óój
Eiður Smári í Belgíu:
Skoraði í þriðja
leiknum í röð
EIÐUR SMÁRI Mörkin hans skila ekki
stigum til Cercle-liðsins. MYND/AFP
FÓTBOLTI Viktor Bjarki Arnars-
son gekk í gær frá tveggja ára
samning við Fram, en hann hefur
spilað með KR undanfarin þrjú
sumur.
„Hann er gæðaleikmaður sem
mun koma með aukna reynslu
inn í leikmannahópinn, reynslu
sem hefur vantað,“ sagði Þor-
valdur Örlygsson, þjálfari Fram,
á heimasíðu félagsins.
Viktor Bjarki er uppalinn í Vík-
ingi en hefur einnig spilað með
Fylki í úrvalsdeild karla. Hann
hefur skorað 23 mörk í 128 leikj-
um í efstu deild. - óój
Pepsi-deild karla í fótbolta:
Viktor Bjarki
samdi við Fram