Fréttablaðið - 27.10.2012, Síða 102
27. október 2012 LAUGARDAGUR66
„Mér finnst mjög gaman að mæta í
tímana hans því hann er svo góður
leiðbeinandi,“ segir Auður Ómars-
dóttir, kærasta bardagakappans
Gunnars Nelson. Þau kynntust í
gegnum æfingarnar í Mjölni og hafa
nú verið saman í um tíu mánuði.
Parið æfir oft saman og sækir
Auður líka tíma hjá Gunnari í
Mjölni. „Það var skrítið þegar við
vorum nýbyrjuð saman og mér var
mjög umhugað um að gera allar
æfingarnar rétt, en núna er þetta
bara gaman. Við æfum líka saman
en keppum ekki á móti hvort öðru,
ég mundi skíttapa því,“ segir hún.
Auður hóf að æfa brasilískt jiu-
jitsu fyrir tæpu ári og segir íþrótt-
ina þá skemmtilegustu sem hún
hafi stundað. „Það mætti segja að
ég hafi fengið hugskot um að ég ætti
að byrja í Mjölni. Ég hafði áður æft
handbolta og crossfit og var komin
með nóg af því. Ég prófaði að mæta í
tíma í víkingaþreki með vini mínum
og strax í fyrsta tímanum sogaðist
ég inn í andrúmsloftið sem er þarna
og mánuði síðar var ég byrjuð í
glímunni. Ég fann mig fullkomlega
í íþróttinni,“ segir hún.
Á sunnudaginn fyrir viku keppti
Auður á Sleipnir Open-mótinu og
hreppti gullverðlaunin. Áður hafði
hún unnið silfurverðlaun á Mjölnir
Open-mótinu. Auður er með bláa
beltið í jiu-jitsu, sem er fyrsta belt-
ið á eftir byrjandabeltinu, og keppti
á móti stúlkum í sama flokki.
Hún stundar einnig nám í mynd-
list við Listaháskóla Íslands og segir
glímuna og listina ekki jafn ólík-
ar og marga mundi gruna. „Ég lít
á jiu-jitsu sem listform og í öllum
listformum felst mikil andleg speki.
Gunni hjálpar mér að gera list og ég
hjálpa honum í jiu-jitsu, þetta tvennt
fer mjög vel saman.“
sara@frettabladid.is
PERSÓNAN
„Þetta var alveg ótrúlegt,“ segir
Haukur S. Magnússon úr rokk-
sveitinni Reykjavík!. „Þú hefur
ekki lifað fyrr en þú hefur verið á
sviði með fimmtán síðhærðum jap-
önskum stelpum að „headbanga“
við músíkina þína.“
Reykjavík! er nýkomin heim frá
Japan þar sem hún flutti jaðarsöng-
leikinn Tickling Death Machines í
borginni Kyoto ásamt Ernu Ómars-
dóttur og Valdimar Jóhannes syni
úr dansflokknum Shalala og hljóm-
sveitinni Lazyblood. „Þegar við
frumsýndum verkefnið í Brussel
í fyrra var þar staddur forstöðu-
maður japanskrar hátíðar, Kyoto
Experiment, og hann vildi ólmur
að við kæmum og settum upp þetta
verk,“ segir Haukur, sem hafði
mjög gaman af tímanum í Japan.
„Japan er eins konar sjónarhorns-
sprengja. Maður fær nýja sýn á
allt.“
Hann bætir því við að gamall
draumur Reykjavíkur! hafi ræst
með þessu ferðalagi. „Þegar við
byrjuðum að spila settum við okkur
þrjú markmið. Það fyrsta var að
gera þrjár góðar plötur, það næsta
að spila í útlöndum og það þriðja að
spila í Japan. Ég held að markmiðið
núna sé að spila aftur í Japan. Við
erum ákaflega þakklátir Ernu fyrir
samstarfið og þessi tækifæri sem
hún hefur veitt okkur.“ - fb
Sjónarhornssprengja í Japan
GAMAN Í JAPAN Haukur (til vinstri)
bregður á leik ásamt Guðmundi Birgi
Halldórssyni, félaga sínum úr Reykjavík!.
AUÐUR ÓMARSDÓTTIR: ÆFIR JIU-JITSU MEÐ KÆRASTANUM
Myndi skíttapa fyrir Nelson
Útvarpsstöðin KEXP frá Seattle sendir út
beint frá tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves
og er þetta fjórða árið í röð sem hún mætir á
hátíðina.
„Útsendingin okkar frá Iceland Airwaves
tengir tónlistarunnendur í Seattle og um
allan heim við það nýjasta og besta í tónlist
um þessar mundir,” sagði Kevin Cole, aðal-
dagskrárstjóri stöðvarinnar og umsjónar-
maður þáttarins Afternoon Show. „Þessar
útsendingar eru stefna okkar í hnotskurn,
þ.e. að vera í fararbroddi spilunar nýrrar
tónlistar.“
Verkefnið er unnið í samvinnu við Iceland
Naturally, KEX Hostel, Icelandair og Kimi
Records. Útsendingar verða frá KEX Hostel
en dagskrárgerðarfólkið Cheryl Waters og
Kevin Cole kynna dagskrárliði á FM 90,3 og
á Kexp.org dagana 31. október til 2. nóvem-
ber frá kl. 13 til kl. 21.
Meðal þeirra fimmtán hljómsveita sem
fram koma á KEX Hostel eru Ólafur Arnalds,
Ghostigital, Sóley, Ojba Rasta, Sólstafir, Úlfur
Úlfur og Seattle-hipphopplistamennirnir í
Shabazz Palaces og THEESatisfaction.
Of Monsters and Men og FM Belfast
spiluðu á Kex Hostel í fyrra og mun síðar-
nefnda sveitin einnig koma fram á hátíðinni
í ár.
Auk beinu útsendinganna mun KEXP
taka upp um 15-20 tónlistarmyndbönd með
íslenskum listamönnum víðs vegar um
Reykjavíkurborg og verða þau sýnd á síðunni
Kexp.org að hátíðinni lokinni.
Fimmtán hljómsveitir í beinni hjá KEXP
Brasilískt jiu-jitsu er einnig nefnt uppgjafarglíma og á uppruna sinn í
japönsku kodokan-júdói. Íþróttin er hönnuð fyrir veikari einstakling á móti
stærri og er markmið hennar að ná yfirburðastöðu gagnvart andstæðingn-
um. Yfirburðastaða er staða þar sem andstæðingnum gefst ekki færi á að
meiða mann. Henni má ná með lás, svæfingu eða einhvers konar taki.
MARKMIÐIÐ AÐ YFIRBUGA ANDSTÆÐINGINN
Í BEINNI Reggísveitin Ojba Rasta verður í beinni
útsendingu á KEXP. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÆFA SAMAN
Auður Ómarsdóttir æfir
gjarnan með kærastanum
sínum, Gunnari Nelson.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sigurður Sævar
Magnúsarson
Aldur: 15 ára
Starf: Nemi í 10.
bekk í Hagaskóla,
sundmaður í KR
og myndlistar-
maður.
Fjölskylda: Tvær systur, Magnea
Herborg, 16 ára og Hrönn, 23 ára.
Foreldrar: Birna Björnsdóttir tón-
listarkennari og Magnús Ólafsson,
deildarstjóri á geðsviði Land-
spítalans.
Stjörnumerki: Meyja
Sigurður Sævar á listaverk á sýningu
Félags frístundamálara sem stendur yfir í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
helgi á Korputorgi – 27. og 28. okt.
helgi á Korputor
gi – 27. og 28. ok
t.
helgi á Korputorgi – 27. og 28. okt.
helgi á Korputor
gi – 27. og 28. ok
t.
Tax Free gildir ekki í Bón
us og af gæludýrafóðri á
Gæludýr.is.
Tax Free jafngildir 20,3%
afslætti nema annað sé
tekið fram. Allar verslan
ir greiða virðisaukaskatt
, en bjóða afslátt sem þv
í nemur.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
23
03
7