Fréttablaðið - 15.11.2012, Qupperneq 47
KYNNING − AUGLÝSING Krakkar15. NÓVEMBER 2012 FIMMTUDAGUR 7
Allir sem komnir eru til vits og ára þekkja söguna um Búkollu en ömmur þessa lands hafa sagt hana
kynslóð eftir kynslóð. Huginn Þór hefur nú
gefið söguna út með fallegum teikningum
á nútímamáli sem börn skilja. Hann segist
hafa farið í leikskóla til að ræða við börnin
um söguna en fæst höfðu heyrt hana. „Það
var ástæða til að rifja þetta ævintýri upp,“
segir hann. Auk Búkollu gefur hann einnig
út ævintýrið um Naglasúpuna sem sömu-
leiðis var þekkt hjá eldri kynslóðum.
„Mér finnst svo mikið til af gömlum,
góðum ævintýrum sem hafa ekki verið gefin
út lengi. Á sínum tíma var notað annað
orðalag en við þekkjum í dag og þessar
bækur hafa ekki verið aðgengilegar lengi. Ég
breyti sögunni ekki en geri hana auðveld-
ari fyrir yngstu kynslóðirnar svo þær megi
kynnast henni,“ segir Huginn. „Ég leik mér
kannski meira með Naglasúpuna en í þeirri
bók eru tvær sögur um súpuna, sagðar á
mismunandi hátt en tengdar saman.“
Huginn er með metnaðarfulla barna-
bókaútgáfu og hefur gert bók sem nefnist
Jólalögin okkar en með henni fylgir geisla-
diskur þar sem kór Öldutúnsskóla syngur
lögin. „Ég bjó til sögur í kringum gömlu,
góðu jólalögin og lét myndskreyta þau fyrir
börnin,“ segir Huginn sem hefur fengist við
barnabókaskrif frá árinu 2006. „Ég á fimm
ára dóttur og við lesum mikið saman. Mér
finnst gaman að segja henni ævintýri en
meðal bóka sem ég hef gefið út á þessu ári
er Myrkfælna tröllið. Ég vil að börnin geti
dregið lærdóm af sögunum án þess að gera
þau hrædd og að þær hafi fræðslugildi. Ein
bókin mín fjallar til dæmis um að kúka í
kopp og er ætluð ungum börnum sem eru að
hætta á bleiu,“ segir Huginn.
„Í gamla daga sagði fólk hvert öðru sögur
og afi minn var alltaf að segja brandara.
Þetta sagnaform hefur haft áhrif á mig. Ég
er líka að leita að fólki sem getur sagt mér
gamlar munnmælasögur því ég vil gjarnan
koma þeim á blað. Öllum er velkomið að
Vekur gömul
ævintýri til lífsins
Huginn Þór Grétarsson, barnabókahöfundur og útgefandi hjá Óðinsauga, hefur
mikinn metnað í að koma gömlum, þekktum ævintýrum til nútímabarna.
Huginn Þór Grétarsson vill gjarnan koma gömlum munnmælasögum í bók
en hann hefur mjög gaman af ævintýrum.
Kringlan – Smáralind
facebook.com/nameiticeland
Full verslun af fallegum jólafatnaði
Ný sending að koma í hús
Waldorfleikskólinn Ylur og Waldorfskólinn í Lækjarbotnum halda
sinn árlega jólabasar á laugardag frá 12 til 17.
Margir fallegir hlutir og skemmtilegheit verða á boðstólum, þar á
meðal brúðuleikhús, barnakaffihús, veiðitjörn, eldbakaðar pitsur,
jurtaapótek, tónlist á vegum nemenda, tívolí og munir þar sem
hugur mætir sköpunarkrafti handanna. Þeir eru allir unnir af
nemendum skólans og foreldrum þeirra.
Nánari dagskrá er sem hér segir:
12-17 Kaffi og kökur, handverk og jurtaapótek
13 og 15 Brúðuleikhús
12-15 Eldbakaðar pitsur og tónlist
1.-2. bekkur sér um veiðitjörn þar sem börn veiða pakka úr hafinu.
3.-4. bekkur sér um barnakaffihús en þar fá fullorðnir einungis að
versla í fylgd með börnum.
5.-6. bekkur sér um tívolí.
7.-8. bekkur verður með happdrætti.
9.-10. bekkur matreiðir eldbakaðar pitsur í Skemmunni.
Menningaratriði nemenda verða í Skemmunni en Brúðuleikhúsið
er í höndum kennara skólans. Þar verður blandað saman brúðum,
sögustund og tónlist.
Jólabasar í Lækjarbotnum
Flestum börnum finnst gaman að leira og skapa alls kyns lista-
verk. Í leiðinni þjálfa þau fínhreyfingarnar. Hér er uppskrift að
góðu leikdegi sem er eiturefnalaust og því er enginn skaði skeður
þó örlítill hluti þess slæðist upp í munn og ofan í maga. Efnið í
deigið er að finna á flestum heimilum og það geymist í lokuðu
íláti eða poka í eina til tvær vikur.
Efni
Heimatilbúin listaverk
Aðferð
Blandið saman hveiti og salti og hellið volgu vatni út í. Ef ætlunin
er að hafa nokkra liti þarf að skipta efninu í nokkra parta og
hella síðan mismunandi matarlit út í. Hnoðið deigið og bætið
við hveiti ef það er of blautt. Látið börnin endilega taka þátt í að
útbúa deigið. Tínið svo til hættulaus eldhúsáhöld eins og köku-
kefli, hvítlaukspressu, piparkökumót og bitlausa hnífa til að nota
við listsköpunina. Ef börnin vilja varðveita verkin og gefa jafnvel
í gjafir má láta þau standa við stofuhita í nokkra daga þar til þau
hafa þornað. Eins má baka þau í ofni við lágt hitastig þar til þau
eru orðin hörð. Þá má mála listaverkið og skreyta að vild.
2 bollar hveiti
1 bolli salt
1 bolli volgt vatn
matarlitur ef vill