Fréttablaðið - 27.11.2012, Page 10
27. nóvember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Noregur
Kína
Rússland
Svalbarði
Japan
SIGLINGAR Flutningaskipið Ob
River er þessa dagana á siglingu
frá Noregi norður fyrir Rússland
og til Japans með fullfermi af jarð-
gasi.
Þetta er í fyrsta sinn sem skipi
af þessu tagi er siglt yfir Norð-
ur-Íshafið. Frá þessu er skýrt á
fréttavef breska útvarpsins BBC.
Siglingin hefur verið í undir-
búningi í eitt ár. Siglingatíminn
er tuttugu dögum styttri en þegar
farin er venjuleg leið frá Noregi til
Japans, en með því sparast um 40
prósent af venjulegum eldsneyt-
iskostnaði við flutninga af þessu
tagi.
Siglt var úr höfn í Hammerfest í
Noregi þann 7. nóvember og reikn-
að með að skipið komi á áfangastað
í Japan í byrjun desember. Sam-
kvæmt frásögninni á fréttavef
BBC hefur ferðalagið verið tölu-
vert ævintýri fyrir skipshöfnina.
Það er hlýnun loftslags jarðar
sem gerir þessa siglingu mögu-
lega, því allt fram á allra síðustu
ár hefur hafísinn lokað þessari leið
allt árið. Með sérútbúnum skipum
er hægt að fara þessa leið æ lengur
fram á vetur.
Skipið er smíðað árið 2007, með
40 manna áhöfn og getur tekið 150
þúsund rúmmetra af gasi. Það er í
eigu gríska skipafélagsins Dyna-
gas, en í leigu rússneska orkufyr-
irtækisins Gazprom. Rússneskur
kjarnorkuknúinn ísbrjótur hefur
fylgt skipinu, en skipið sjálft er
sérstaklega styrkt til siglinga á
hafísslóðum.
- gb
Tímamót í siglingum yfir Norður-Íshafið
Siglt í fyrsta sinn að
veturlagi með gas
SIGLT YFIR ÍSHAFIÐ Ferðalagið hefur verið mikið ævintýri fyrir áhöfnina á Ob River.
MYND/DYNAGAS
NORÐAUSTURLEIÐIN Hlýnun jarðar og bráðnun íss gerir það að verkum að sigl-
ingaleiðin norður fyrir Rússland er fær æ stærri hluta ársins. Leiðin frá Noregi til
Japans er mun styttri en þegar siglt er um Súes-skurðinn og suður fyrir Indland.
Umboðsmenn
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · Hekla Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði