Fréttablaðið - 14.12.2012, Qupperneq 2
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Ólafur, halda þessar kenningar
vatni?
„Já, það er alveg á tæru. Það er
ekkert rotið við þetta.“
Ólafur Örn Haraldsson er þjóðgarðsvörður
á Þingvöllum. Þörungagróður er talinn ógna
tærleika Þingvallavatns. Mengunin gæti að
hluta til tengst slæmu ástandi rotþróa við
sumarbústaði við vatnið.
SÝRLAND, AP „Því miður er ekki
hægt að útiloka sigur stjórnarand-
stöðunnar,“ sagði Mikhaíl Bogd-
anov, einn af aðstoðarutanríkis-
ráðherrum Rússlands, á fundi með
rússneskri ráðgjafarnefnd um
ástandið í Sýrlandi í gær.
Hann sagði nauðsynlegt að líta
á staðreyndirnar: „Það er tilhneig-
ing til þess að stjórnin tapi yfirráð-
um yfir æ stærra svæði.“ Rússar
hafa verið helstu stuðningsmenn
stjórnar Bashar al Assands Sýr-
landsforseta á alþjóðavettvangi.
Atlantshafbandalagið (NATO)
spáir einnig falli Assads forseta.
Anders Fogh Rasmussen segir að
nú sé fall hans ekki annað en tíma-
spursmál. Bandaríkin og NATO
hafa sakað sýrlenska herinn um
að nota Scud-flugskeyti gegn upp-
reisnarmönnum, en Sýrlandsher
segir ekkert hæft í því. Þá hafa
Sýrlendingar verið sakaðir um að
varpa eldsprengjum á uppreisnar-
menn, og Bandaríkjamenn hafa
sagt hættu á því að Sýrlandsher
grípi til efnavopna. - gb
Rússar farnir að efast um að Assad haldi lengi út gegn uppreisnarmönnum:
NATO telur fall Assads í nánd
FLÓTTAMENN Sýrlendingar sigla yfir
landamærafljót til Tyrklands.
NORDICPHOTOS/AFP
VINNUMARKAÐUR Forysta ASÍ
hefur ekki tekið ákvörðun um upp-
sögn kjarasamninga í janúar. Þetta
segir Gylfi Arnbjörnsson, formað-
ur ASÍ, í samtali við Fréttablaðið.
Framhaldið velti á því hvort náist
saman með atvinnurekendum um
aðgerðir til kaupmáttareflingar.
Forvígismenn stjórnarinnar vísa
ásökunum ASÍ á bug.
ASÍ birti í gær blaðaauglýsingu
þar sem stjórnvöld voru sökuð, í
átta liðum, um vanefndir á fyrir-
heitum í tengslum við kjarasamn-
inga. „Það er ljóst af okkar hálfu
að um alvarlegan forsendubrest er
að ræða gagnvart stjórnvöldum og
atvinnurekendum,“ segir Gylfi og
segir ekki líklegt til árangurs að
eiga frekari samskipti við ríkis-
stjórnina.
„Endurskoðun samninganna
mun snúast um kaupmátt okkar
félagsmanna og við munum reyna
að ná saman með okkar viðsemj-
endum um það, þar sem verð-
bólga er niðurstaða ákvarðana
fyrirtækja og sveitarfélaga um að
hækka verð á vörum og þjónustu.“
Vilmundur Jósefsson, formað-
ur Samtaka atvinnulífsins, segir
sjálfsagt að ræða við ASÍ um kaup-
máttareflingu með þessum for-
merkjum.
„Það er útilokað að fara út í frek-
ari launahækkanir, en ef hægt er
að ná saman um kaupmáttaraukn-
ingu með öðrum hætti erum við
tilbúin að skoða það.“
Forustumenn stjórnarinnar vísa
ásökunum ASÍ á bug og lýsa yfir
undrun og vonbrigðum.
„Ekkert þeirra átta efnisatriða
sem þar eru tíunduð sem vanefnd-
ir ríkisstjórnarinnar á við rök að
styðjast,“ segir í yfirlýsingu. - þj
Harðar deilur um efndir ríkisstjórnarinnar vegna gerðar kjarasamninga:
ASÍ og SA ræða um kaupmátt
GYLFI
ARNBJÖRNSSON
VILMUNDUR
JÓSEFSSON
SLYS Leit var hætt í gær að skip-
verja sem saknað er af togaran-
um Múlabergi SI, en varðskipið
Þór, björgunarþyrla og nærliggj-
andi skip tóku þátt í leitinni fyrir
norðan land.
Tilkynnt var um hvarf manns-
ins í fyrrakvöld þegar það hafði
uppgötvast að hann hafði fallið
fyrir borð, einhvern tímann eftir
að skipið lét úr höfn fyrr um
daginn.
Togarinn kom til heimahafnar
í fyrrinótt og var þá tekin
skýrsla af áhöfninni.
- þj/gb
Skipverji ekki fundinn:
Leit var hætt
síðdegis í gær
REYKJAVÍK Borgarstjórn sam-
þykkti á aukafundi í gær tillögur
að breyttu aðalskipulagi og deili-
skipulagi á lóð Landspítalans við
Hringbraut.
Tillögurnar voru umdeild-
ar og bárust 800 athugasemdir.
Sjálfstæðismenn í minnihlutan-
um deila á afgreiðslu málsins.Í
frétt á vef borgarinnar segir að
borgar stjórn telji að sýnt hafi
verið fram á „með sannfærandi
hætti“ að staðsetning nýja spítal-
ans sé skynsamleg. - þj
Fundur í borgarstjórn:
Sjúkrahúslóðin
var samþykkt
UMFERÐARÖRYGGI
Margir eineygðir í umferð
Töluvert er um að Umferðarstofu
berist kvartanir vegna eineygðra bíla í
umferðinni. Stofnunin hvetur fólk til að
kanna reglulega ástand bílljósa og bæta
úr ef bjátar á. „Hægt er að sjá stöðuna
þegar stöðvað er framan við búðar-
glugga og auðvelt að meta hvort öll ljós
logi,“ segir í umfjöllun Umferðarstofu.
MANNLÍF
Jólabærinn opnar í dag
Jólabærinn í Reykjavík verður opnaður
á Ingólfstorgi klukkan 15.30 í dag. Þar
flytur borgarstjóri meðal annars ávarp
og veitir verðlaun fyrir fallegasta búðar-
gluggann. Þar verða sölubásar þar sem
boðið verður upp á íslenska hönnun,
gjafavöru og mat.
SPURNING DAGSINS
FÓLK „Eldri strákurinn kom
sjálfur í heiminn annars hefði ég
verið sett af stað tveimur dögum
seinna. Yngri strákurinn fékk
hins vegar hjálp vegna með-
göngusykursýki,“ segir Guðrún
Sólveig Ríkarðsdóttir Owen, sem
eignaðist strák í fyrradag og er
hann því fæddur þann 12.12.12. Í
Fréttablaðinu í gær var sagt frá
stúlkubarni sem fæddist sama
dag.
Svo ótrúlega vill til að Guðrún
Sólveig á fyrir son sem eru fædd-
ur 09.09.09.
„Við vonuðumst náttúrulega
eftir þessu en þetta er samt ótrú-
leg tilviljun,“ segir Guðrún Sól-
veig.
Fæðingin í fyrradag gekk vel
þótt drengurinn hafi verið tekinn
með sogklukku. Strákurinn var
55 sentímetrar á lengd og 4.125
grömm eða um 16,5 mörk.
Guðni Jónsson, maður Guð-
rúnar Sólveigar, starfar sem yfir-
vélstjóri á Baldvini Njálssyni en
hann var ekki viðstaddur fæð-
inguna nú.
„Nei, því miður er hann úti á
sjó. Hann er mánuð í einu úti en
kemur í land í næstu viku. Við
erum svo heppinn að hann verður
heima út allan janúar. Ég held að
þetta hafi verið miklu erfiðara
fyrir hann en mig,“ segir hún.
Guðrún Sólveig segir það tilvilj-
un eina að drengirnir hafi komið í
heiminn á þessum dögum. Hvorki
hún né maðurinn hennar eru
fædd á degi með slíka talnaröð né
synir Guðna sem hann á af fyrra
sambandi. „Ég er fædd 30. apríl
1976 og hann 27. október 1968,“
segir hún hlæjandi. „Ég veit ekki
af hverju bræðurnir ákváðu að
vera svona spes.“
Spurð hvort Guðrún Sólveig
stefni á að eignast fleiri börn sem
myndu hafa svipaðan fæðingar-
dag segir hún það ekki á dag-
skránni. „Ég fékk sms í gær þar
sem ég var spurð hvort ég ætl-
aði að eignast barn 7.9.13 en það
er sko langt í frá,“ segir hún og
skellir upp úr. kristjan@frettabladid.is
Fæddi strák 12.12.12
og bróðurinn 09.09.09
Guðrún Sólveig Ríkarðsdóttir Owen eignaðist dreng í fyrradag. Hann er því fædd-
ur 12.12.12. Hún átti fyrir dreng sem er fæddur 09.09.09. Þetta er ótrúleg tilviljun,
segir Guðrún Sólveig. Maðurinn hennar missti því miður af fæðingunni.
Ég veit ekki af hverju
bræðurnir ákváðu að vera
svona spes.
Guðrún Sólveig Ríkarðsdóttir Owen
TALNABRÆÐUR Guðrún Sólveig með syni sína tvo, Ríkarð Guðna Guðnason,
þriggja ára, og þann nýfædda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BRETLAND, AP Elísabet Bretadrottning og Filippus maður hennar fengu
að skoða gullforða breska seðlabankans í gær, djúpt í neðanjarðar-
hirslum bankans.
Árið 2008 spurði Elísabet breska hagfræðinga um orsakir krepp-
unnar miklu, sem þá var nýskollin á, og í gær fékk hún hjá yfirmönn-
um bankans þau svör að ástæðurnar væru þrjár: Kreppur væru ill-
fyrirsjáanlegar, rétt eins og jarðskjálftar, almennt andvaraleysi hefði
valdið því að menn töldu ekki þörf á ströngu eftirliti, auk þess sem
fólk hefði ekki áttað sig á hversu samofið alþjóðlega fjármálakerfið
hefði verið. - gb
Bretadrottning fékk loks svör við spurningum:
Elísabet skoðar gullið
ELÍSABET Í BANKANUM Bankastjórarnir útskýrðu orsakir kreppunnar fyrir drottn-
ingu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP