Fréttablaðið - 14.12.2012, Blaðsíða 8
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Smiðjuvegi 2 · Kópavogi
Sími 544 2121
www.rumgott.is
Opið frá kl 10-19
alla virka daga fram
að jólum
og laugardaga kl. 11-16
Löggiltir dýnuframleiðendur
– Starfandi í 60 ár
Hafðu það notalegt um jólin!
– Arineldstæði á jólatilboði! –
STJÓRNSÝSLA Langflestum fulltrú-
um í fulltrúaráði Eirar verður
skipt út á fundi í dag. Í kjölfarið
verður nýtt fulltrúaráð skipað.
Stjórn hjúkrunarheimilisins mun
funda áður en fundur fulltrúaráðs-
ins hefst.
Það eru stofnaðilar Hjúkrunar-
heimilisins Eirar sem velja full-
trúa í fulltrúaráðið. Flesta full-
trúa á Reykjavíkurborg, eða sjö,
en aðrir eiga þrjá fulltrúa í ráðinu.
Það eru Seltjarnarnesbær, Mos-
fellsbær, Samtök blindra og
blindravina, Sjómannadagurinn í
Reykjavík og Hafnarfirði, Skjól,
VR, Félag áhugafólks og aðstand-
enda Alzheimerssjúklinga, Brynja
– hússjóður Öryrkjabandalagsins,
Efling og SÍBS.
Flestir stofnaðilanna ætla sér að
skipta út fulltrúum sínum á fund-
inum í dag. Í kjölfarið er ætlun-
in að skipta út stjórn hjúkrunar-
heimilisins, en óvíst er hvort tekst
að gera það á fundinum í dag eða
hvort boða þarf aukafund til þess.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er samstaða um það
meðal stofnaðilanna að óska eftir
því að fjármál hjúkrunarheimilis-
ins verði rannsökuð.
Óvíst er þó hvernig sú rann-
sókn fer fram, en þrír stjórnar-
menn hjá Eir fóru með gögn á
fund sérstaks saksóknara fyrr í
vikunni og óskuðu þess að hann
athugaði hvort tilefni væri til að
rannsaka starfsemina. Þetta voru
þau Stefán Benediktsson, Þór-
unn Sveinbjörnsdóttir og Björn
Agnar Magnússon, en ekki var
haft samráð við aðra stjórnar-
menn eða stjórnendur hjá Eir áður
en þetta var gert. Að sama skapi
hafa þessir þrír stjórnarmenn
gert athugasemdir við boðun full-
trúaráðsfundar, sem fer fram í
dag, en þeir telja að fundarboð-
ið hafi verið ólöglegt. Í stað þess
að boða skráða fulltrúa til fundar
hafi skrifstofa Eirar sent frá sér
bréf þar sem óskað var eftir því
að stofnaðilar tilnefndu nýja full-
trúa í ráðið.
Samkvæmt reglum er það
stjórnin sem boðar til fulltrúa-
ráðsfunda og þeir verða að vera
haldnir minnst tvisvar á ári.
thorunn@frettabladid.is
Skipt út úr stjórn og
fulltrúaráði Eirar
Flestum ef ekki öllum fulltrúum í fulltrúaráði Hjúkrunarheimilisins Eirar verður
skipt út á fundi í dag. Í kjölfarið verður skipuð ný stjórn. Samstaða er meðal flestra
um að óska eftir rannsókn á fjármálum hjúkrunarheimilisins á næstunni.
AF STJÓRNARFUNDI Þrír hafa þegar hætt í stjórn Eirar og munu aðrir hætta í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Málefni Hjúkrunarheimilisins Eirar komust í hámæli eftir að fréttastofa
Stöðvar 2 greindi frá fjárhagsvandræðum þess í byrjun nóvember. Hjúkr-
unarheimilið skuldar um átta milljarða króna, þar af er skuld við íbúa í
öryggisíbúðum Eirar um tveir milljarðar. Unnið hefur verið að lausn á fjár-
hagsvandanum undanfarna mánuði.
Vandræðin í Eir
Svíar ekki með
í bankasambandi ESB
1 SVÍÞJÓÐ Fredrik Reinfeldt, for-sætisráðherra Svíþjóðar, kveðst
ánægður með þau áhrif sem lönd
utan evrusvæðisins
fá innan nýs banka-
sambands Evrópu-
sambandsins, ESB.
Hann útilokar ekki
að Svíþjóð taki þátt
í sambandinu þegar
fram líða stundir.
Hann segir mögulegt
að Svíar taki þátt ef ákveðið verður
að þeir þurfi ekki að bera kostnað af
bankavandræðum annarra landa.
Tíföld sala á skyri
í Danmörku
2 DANMÖRK Sala á skyri í Danmörku hefur tífaldast á
fjórum árum. Samkvæmt frétt danska
ríkisútvarpsins þykir það þó ekki
undarlegt þar sem neyslan 2009 var
ekki mikil. Þá borðuðu um það bil
þrír af hverjum 10.000 Dönum skyr í
morgunmat en í ár borðuðu um það
bil þrír af hverjum 1.000 skyr. Það eru
einkum Kaupmannahafnarbúar og
Norður-Sjálendingar sem eru sólgnir í
skyr. Langskólagengnir og hátekjufólk
borða miklu meira af skyri en aðrir.
Skyrið sem Danir snæða er framleitt í
dönskum mjólkurbúum.
Börnum smyglað
til Noregs
3 NOREGUR Börnum sem smyglað er til Noregs hefur fjölgað að
undanförnu. Börnin eru látin vinna
sem þrælar á einkaheimilum, í versl-
unum eða í fyrirtækjum í eigu fólks
sem talið er vera landar þeirra sem
standa að smyglinu. Flest barnanna
sem smyglað er til Noregs eru á
aldrinum 14 til 18 ára. Samkvæmt
fréttum norskra fjölmiðla af málinu
eru börnin einnig látin stunda
vændi auk þess sem þau eru notuð í
fíkniefnaviðskiptum.
DÓMSMÁL Íslenska ríkið hefur
verið dæmt til að greiða Einari
„Boom“ Marteinssyni, fyrrverandi
forsprakka Hells Angels, 150 þús-
und krónur í bætur fyrir símhlerun
árið 2009 sem leiddi aldrei til neins.
Einar var á þessum tíma vara-
formaður vélhjólaklúbbsins Fáfn-
is, sem stefndi að því leynt og ljóst
að fá fulla aðild að alþjóðasamtök-
unum Hells Angels. Þau eru víð-
ast hvar skilgreind sem skipulögð
glæpasamtök.
Lögregla fékk dómsúrskurð
fyrir því að hlera síma Ein-
ars í febrúar 2009, aðal-
lega á þeim grundvelli að
hann væri grunaður um að
ætla að flytja mikið magn
af fíkniefnum til landsins.
Í rökstuðningi til dóms-
ins sagði lögregla að
fíkniefnainnflutn-
ingur væri helsta
tekjulind Fáfnis, sem ætlaði sér
meira að segja að taka yfir allan
fíkniefnamarkaðinn á Íslandi.
Hlerunin leiddi sem áður segir
ekki til neins. Héraðsdómur telur
samt sem áður að hún hafi ekki
verið ólögmæt, þótt það að málið
hafi verið fellt niður valdi óhjá-
kvæmilega bótaskyldu.
Fyrir dómi var Einar spurður
hvernig honum hefði liðið þegar
hann frétti af hleruninni. „Hann
svaraði því til að honum hefði liðið
hræðilega, honum hefði fundist
eins og sér hefði verið nauðg-
að,“ segir í dómnum. - sh
Einar „Boom“ Marteinsson vann mál gegn ríkinu:
Fær 150 þúsund
krónur fyrir hlerun
HÆTTUR Einar „Boom“ hætti
fyrr á árinu sem forsprakki
íslensku Vítisengl-
anna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BANDARÍKIN, AP Breski bankinn
HSBC hefur fallist á að greiða
bandarískum stjórnvöldum 1,9
milljarða dala, eða ríflega 240
milljarða króna, til að komast hjá
réttarhöldum vegna ásakana um
peningaþvætti. Þetta er hæsta
sekt sem banki hefur nokkru sinni
greitt.
Rannsókn bandarískrar þing-
nefndar hefur leitt í ljós að bank-
inn auðveldaði fíkniefnabarón-
um í Mexíkó peningaþvætti með
því að millifæra fé frá Mexíkó
til Bandaríkjanna í gegnum
mexíkóska bankann HSMX.
Einnig hafi bankinn auð-
veldað hryðjuverkamönnum í
Mið-Austur löndum að þvætta pen-
inga, auk þess sem bankinn hafi
átt í viðskiptum við Íran, Líbíu,
Súdan og Búrma og þar með brot-
ið gegn alþjóðlegum refsiaðgerð-
um á hendur þessum ríkjum.
Bankinn hefur viðurkennt að
hafa ekki haft nógu strangar regl-
ur til að hindra peningaþvætti og
ítrekaði í gær afsökunarbeiðni
vegna þess:
„Við föllumst á ábyrgð vegna
fyrri mistaka okkar,“ segir
Stuart Gulliver bankastjóri. „Við
höfum sagt að okkur þyki þetta
mjög leitt, og segjum það enn og
aftur.“
- gb
Breski bankinn HSBC viðurkennir peningaþvætti:
Borgar milljarða sekt
NORÐURLÖND
1
2
3