Fréttablaðið - 14.12.2012, Page 16
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Kaffivélar fyrir
skrifstofur
og mötuneyti
Fyrir jól eða áramót
Fullkomið kaffi,
espresso, cappucicino
eða latté macchiato
með einni snertingu.
Með því að kaupa
FRIÐARLJÓSIÐ
styrkir þú hjálparstarf
og um leið verndaðan
vinnustað.
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
1
02
97
5
LÁTUM
FRIÐARLJÓSIÐ
LÝSA UPP AÐVENTUNA
EFNAHAGSMÁL Vandræði evru-
svæðisins eru ekki að baki, en
það versta er sennilega yfirstaðið.
Þetta segir dr. Gianandrea Falchi,
framkvæmdastjóri hjá Seðlabanka
Ítalíu, í samtali við Fréttablaðið.
Hann var með framsögu á mál-
þingi um reynslu evruríkjanna og
Íslands í fjármálakreppunni í gær.
„Kreppan var sennilega líka
vanmetin í upphafi þar sem hún
hefur nú staðið yfir í fimm ár, sem
er afar langur tími,“ segir Falchi
en bætir því við að hún hafi þó haft
ýmsar jákvæðar afleiðingar.
„Þó að fjármálakreppan hafi
vitanlega haft afar alvarleg áhrif
neyddi hún okkur Ítali til að horf-
ast í augu við staðreyndir og hefja
nauðsynlegar umbætur.“
Hið sama segir hann gilda um
evrusvæðið í heild þar sem meðal
annars var ákveðið í fyrrinótt að
samræma reglur og eftirlit með
bankastarfsemi.
Aðspurður um muninn á stöðu
Íslands og Ítalíu eftir hrun, þar
sem Ísland hafði eigin mynt og
Ítalía var með evru, segir Falchi
að sé horft til þróunar efnahags-
mála í löndunum tveimur sé sam-
anburðurinn Íslandi í hag. Hag-
vöxtur sé hafinn á ný á Íslandi,
meðal annars vegna þess að Ísland
hefur eigin mynt, en Ítalía horfi
enn fram á samdrátt þangað til á
næsta ári.
„Aðstæðurnar eru hins vegar
ólíkar þar sem Ítalía er mun
nátengdari mörkuðum í Evrópu,
en við þekkjum þessa hluti frá
fyrri tíð. Áður en við tókum upp
evruna einkenndist efnahags-
lífið af sveiflum. Erfiðleikar köll-
uðu á gengisfellingu lírunnar sem
efldi útflutning og stuðlaði þann-
ig að hagvexti, en innan þriggja
eða fjögurra ára hafði verðbólga
stóraukist og stýrivextir hækkað.
Ábatinn af slíku var því enginn til
lengri tíma og með aðild að mynt-
bandalaginu tókum við ákvörðun
um að segja skilið við slíkt.“
Hann segir að vissulega hafi
almenningur á Ítalíu mátt taka á
sig auknar byrðar, en andstaðan
við aðhaldsaðgerðir hefur ekki
verið neitt í líkingu við það sem
gerst hefur í Grikklandi.
„Svo sjáum við hins vegar evru-
ríkið Írland, sem varð afar illa úti
í hruninu, og gat ekki beitt gengis-
fellingu, en Írum hefur hins vegar
auðnast að snúa aftur á braut
hagvaxtar. Þannig er ekki hægt
að benda á eina lausn í þessum
málum.“
Falchi segir, spurður um horf-
urnar á Ítalíu næstu misseri, að
hann óttist ekki framvinduna
þrátt fyrir að þingkosningar verði
í febrúar og óvíst hverjir taki við
völdum.
„Markaðirnir skilja að landið er
á réttri leið og trúa því að óháð því
hvernig stjórn taki við, muni hún
fylgja stefnunni sem hefur verið
mörkuð.“ thorgils@frettabladid.is
Kreppan bjó í haginn
fyrir umbótastarf
Dr. Gianandrea Falchi, framkvæmdastjóri hjá Seðlabanka Ítalíu, segir að þó fjár-
málakreppan hafi haft alvarleg áhrif hafi hún neytt evruríkin til að horfast í augu
við óþægilegar staðreyndir. Upplausn og erfiðleikum hafi fylgt vilji til umbóta.
BJARTSÝNN Dr. Gianandrea Falchi, framkvæmdastjóri hjá Seðlabanka Ítalíu, segir
nauðsynlegar umbætur hafa verið innleiddar í kjölfar fjármálakreppunnar. Evruríkin
séu ekki sloppin úr kreppunni en hið versta sé yfirstaðið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
EVRÓPUMÁL Alls munu 1,8 milljarðar króna
renna til verkefna á Íslandi á næsta ári í
tengslum við landsáætlun IPA, styrkjakerf-
is ESB en tillögur Íslands í þeim efnum voru
nýlega samþykktar af aðildarríkjum ESB.
Á vef utanríkisráðuneytisins segir að þrjú
verkefni fái IPA-styrki á næsta ári, en fram-
kvæmdastjórn ESB eigi þó eftir að afgreiða
málið og þess sé að vænta í janúar.
Í fyrsta lagi er það stuðningur til Fjármála-
eftirlitsins til að ráðast í umbótaverkefni tengt
eftirliti með allri fjármálastarfsemi og beinist
meðal annars að því að samræma aðferðir og
skipulag stofnunarinnar. Þá fær Hagstofan
stuðning til að hérlend fyrirtækjatölfræði
verði í samræmi við kröfur EES-samningsins
og loks fær Tollstjóraembættið stuðning við
að byggja upp tölvukerfi sem heldur utan um
umflutning á vörum til og frá Íslandi í sam-
ræmi við reglur sem eru gildandi á EES-svæð-
inu, undirbúa upptöku á tölvukerfi tollskrár
sem væri sambærilegt við tollskrárkerfi ESB,
og samtímis innleiða nýtt þjónustulag í upp-
byggingu tölvukerfis Tollstjóra.
Heildarstyrkveitingar til Íslands í gegnum
IPA á tímabilinu 2011 til 2013 verða því rúm-
lega 5,7 milljarðar króna samtals.
- þj
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ Stofnunin fær styrk til að
ráðast í umbótaverkefni.
NÝSKÖPUN Reikna má með að aðkoma norskra sérfræð-
inga að nýsköpun og uppbyggingu vísindagarða hleypi
nýju blóði í áform um uppbyggingu vísindagarða hér
á landi, segir Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri
Klaks, nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins.
Klak hefur samið við Iðnþróunarfélag Noregs (SIVA)
um uppbyggingu hér á landi. Eyþór segir að til að byrja
með muni sérþekking sem sé til staðar innan SIVA skipta
miklu. SIVA hefur byggt upp níu vísindagarða í Noregi.
„Fyrstu skrefin verða að byggja upp þetta samstarf við
Norðmennina og ákveða hvernig við munum vinna þetta,“
segir Eyþór. SIVA mun fá leiðandi sérfræðinga í nýsköp-
un til að verða Íslendingum innan handar við að móta
hugmyndir um nýsköpunarsetur og vísindagarða, auk
leiða til að fjármagna verkefnin.
Bæði Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík hafa
skoðað möguleika á uppbyggingu vísindagarða en vinnan
er lengra komin innan Háskóla Íslands, segir Eyþór. - bj
Semja við norskt iðnþróunarfélag um aðkomu að íslenskum vísindagörðum:
Hleypir nýju blóði í áformin
VATNSMÝRI Háskóli Íslands
hefur stofnað félag sem á að
reisa vísindagarða í Vatnsmýr-
inni, og hefur félagið þegar
fengið lóð fyrir bygginguna.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Vísindagarðar hafa
það markmið að ýta
undir nýsköpun. Þar
á sér stað samstarf
háskóla, rannsóknar-
stofnana, alþjóðlegra
fyrirtækja og sprota-
fyrirtækja á einum
stað. Tilgangurinn er
að til verði ný þekk-
ing, ný verðmæti og
ný fyrirtæki.
Nýsköpun undir einu þaki
Þó að fjármálakreppan
hafi vitanlega haft afar
alvarleg áhrif neyddi hún
okkur Ítali til að horfast í
augu við staðreyndir og hefja
nauðsynlegar umbætur.
Dr. Gianandrea Falchi
framkvæmdastjóri hjá
Seðlabanka Ítalíu
UPPLÝSINGATÆKNI Skrifað hefur
verið undir samning milli Heimil-
is og skóla, Rauða krossins, Ríkis-
lögreglustjóra og Barnaheilla við
ráðuneyti menntamála- og innan-
ríkis- og velferðarmála um SAFT-
verkefnið.
SAFT rekur vakningarátak og
fræðslu um örugga og jákvæða
notkun Netsins meðal barna og
ungmenna, foreldra, kennara, fjöl-
miðla og þeirra sem starfa við
upplýsingatækni. Verkefnið er
hluti af netöryggisáætlun ESB. - óká
Fræða fólk um Internetið:
Ríkið styður
SAFT út 2014
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
Evrópusambandsríkin samþykkja tillögur Íslands um IPA-styrki:
Þrjár stofnanir fá 1,8 milljarða króna