Fréttablaðið - 14.12.2012, Side 34
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 34
Undanfarið hafa hjúkrun-
arfræðingar stigið fram
og reynt að vekja athygli
á ósanngjörnum kjörum
sínum og erfiðu vinnuum-
hverfi. Ástæðan er sú að
ekki hefur enn tekist að
semja um stofnanasamn-
inga þrátt fyrir undir ritun
kjarasamnings í júní 2011
þar sem kveður á um að
stofnanasamningar séu
hluti af kjarasamningi.
Í þessari umræðu hefur
mörgum misgáfu legum
athugasemdum verið
kastað fram í samfélaginu og þá
einna helst á netmiðlum.
Einhverra hluta vegna hef ég
tekið þessar athugasemdir nærri
mér og þær fengið mig til að hugsa
hvers vegna þjóðfélagið hefur lítinn
sem engan skilning á okkar baráttu.
Ég hef spurt sjálfa mig að því hvort
við séum ekki að sinna okkar starfi
nægilega vel eða koma illa fram
við þá sem til okkar leita. Margar
ástæður liggja sennilega þarna að
baki en þó tel ég helstu ástæðuna
vera mikla vanþekkingu á starfinu.
Ég hef alltaf átt mjög erfitt með
að svara spurningunni „hvað gera
hjúkrunarfræðingar?“.
Ástæðan er einfaldlega sú að
starf okkar er svo gríðar-
lega fjölbreytt og oft á tíðum
umfangsmikið að erfitt er
að lýsa því í stuttu máli.
Ég hef ekki áhuga á því að
mála fallega mynd af starf-
inu þar sem við svífum um
með geislabaug og hjálpum
fólki sem á um sárt að binda.
Það hvarflar heldur ekki að
mér að halda því fram að
mitt starf sé mikilvægara
en önnur störf þessa lands.
Hins vegar er það stað-
reynd að sjúkrahús verða
ekki rekin án hjúkrunar-
fræðinga. Svo einfalt er það nú bara.
Upphrópanir
Upphrópanir eins og þær að með
vaktaálagi getum við hækkað launin
okkar umtalsvert og því eigum
við ekkert að vera að kvarta hafa
heyrst víða í þessari umræðu. Það
er vissulega rétt, vaktaálag hækkar
launin. Hins vegar þýðir vaktaálag
það að við vinnum á kvöldin, á nótt-
unni, um helgar og alla rauða daga
allan ársins hring. Það er enginn
öfundsverður af því að þurfa að
vinna vaktavinnu og engum hollt
til lengdar að taka allt að þrjár teg-
undir af vöktum á einni viku eins
og gerist oft í þessu starfi. Vakta-
vinna dregur úr manni andlega og
líkamlega orku og fáir endast á fjöl-
breyttum vöktum í tugi ára.
Og hvað með hjúkrunarfræðinga
sem hafa ekki tök á að vinna vakta-
vinnu, t.d. þeir sem eru einstæðir
með barn/börn og þurfa að fram-
fleyta sér og sínum á dagvinnu-
launum? Er það raunhæft? Og hvað
með hjúkrunarfræðinga sem starfa
á dagdeildum? Við skulum hafa það
í huga í þessari umræðu að það hafa
ekki allir kost á því að vinna vakta-
vinnu og vaktavinna er ekki öfunds-
verð, henni fylgir mikill fórnar-
kostnaður sem oftar en ekki bitnar
á þeim sem næst okkur standa.
Okkar val
Eins hefur því verið kastað fram
að starfið hafi verið okkar val og
við munum hafa vitað áður en lagt
var af stað í námið hversu lág laun
hjúkrunarfræðingar hafa. Árið 2001
þegar ég stóð frammi fyrir því að
velja mér háskólanám var ég 22 ára
gömul. Ég var ung og kannski svo-
lítill kjáni en eftir miklar vanga-
veltur um ýmiss konar nám kaus ég
nám í minni heimabyggð. Ég hafði
starfað við umönnun sumarlangt
á sjúkrahúsi og fann þá að starf af
þessum toga átti vel við mig. Það að
námið væri kennt í minni heima-
byggð var stærsti þátturinn í því
að þessi leið var valin. Ég hugs-
aði aldrei um launakjör. Á þessum
tíma var engin kreppa og góðærið
handan við hornið svo framtíðin
var björt. Ef ég hefði fengið starf
í banka þetta örlagaríka sumar
eins og kom til greina í stað þess
að vinna á sjúkrahúsi þá væri ég ef
til vill viðskiptafræðingur í dag og
hefði frá fyrsta degi verið á umtals-
vert hærri launum en ég hef í dag
eftir fjögurra ára háskólanám (við-
skiptafræðin er þrjú ár), sjö ár í
starfi ásamt viðbótar sérnámi (eitt
og hálft ár til viðbótar þessum fjór-
um). Mín mistök, ég viðurkenni það.
Sökum þessara mistaka hef ég
fjóra valmöguleika:
1Sætta mig við mistökin og það að laun mín munu aldrei verða
mannsæmandi.
2Yfirgefa land og þjóð og halda til starfa erlendis þar sem betri
laun og kjör bjóðast.
3Kasta frá mér allri minni þekk-ingu og reynslu og steypa mér í
frekari námslán og hefja nýtt nám
næsta haust.
4Vekja athygli á stöðu og kjörum hjúkrunarfræðinga og berjast
af krafti fyrir því sem ég tel okkur
eiga rétt á.
Hér tala ég um fjögurra ára
háskólanám en raunin er sú að
okkar námi lýkur aldrei. Daglega
berum við ábyrgð á mannslífum
og því eru eðlilega gerðar miklar
kröfur um endurmenntun. Þessi
endurmenntun felur m.a. í sér bók-
leg og verkleg próf sem ætlast er
til að við stöndumst. Öll þessi nám-
skeið eru þó afar lítils virði þegar
kemur að launamálum og telja lítið
í launaumslagið þrátt fyrir að undir-
búningur og lærdómur fari að miklu
leyti fram í okkar eigin frítíma
launalaust.
Ég bið ykkur því um að hugleiða
áður en þið farið að ergja ykkur á
þessu endalausa væli hjúkrunar-
fræðinga hvort verið sé að væla að
ástæðulausu. Kynnið ykkur okkar
störf og launakjör og berið saman
við aðrar stéttir með sambærilega
langt nám að baki og myndið ykkur
skoðun í framhaldinu.
Með von um betri skilning og
bjartari framtíð.
Væl hjúkrunarfræðinga
Fjármálastofnanir hafa
valdið gífurlegu eigna-
tjóni hjá almenningi.
Þessar fjármálastofnanir
kveiktu verðbólgubál sem
breiddist út um allt sam-
félagið og olli gífur legum
eignabruna í öllu veð-
settu húsnæði. Ólíklegt
þykir að tryggingafé lögin
muni bæta eignabruna af
völdum verðbólgubáls,
enda hæpið að verðbólgu-
bál verði talið viðurkennt
form af eldsvoða.
Verðtrygging
Það er þó til mjög vafasöm trygg-
ing fyrir eignabruna veðsettra
fasteigna af völdum verðbólgu,
nefnilega verðtrygging.
Verðtrygging er undarlega
sviksamleg trygging sem fjár-
málastofnanir selja lán takendum.
Hún leggst mánaðar lega ofan
á höfuðstól lánsins en auk þess
þurfa lántakendur að staðgreiða
verðtryggingargjald mánaðar-
lega. Það vill svo til að þessi
tryggingasvik valda í raun þeim
eignabruna sem eigendur hús-
næðis verða fyrir. En það eru
ekki lántakendur sem fá bætur
frá verðtryggingasala vegna
eignabrunans, heldur er því
öfugt farið. Lántakendur borga
verðbætur til tryggingasalans. Í
stuttu máli er það þannig að lán-
takendur borga ofurháa
tryggingu sem veldur
sjálf eignabrunanum, en
tjónið lendir allt á lán-
takendum sem þurfa
auk þess að borga trygg-
ingasalanum verðbætur
(eftirstöðvar verðtrygg-
ingarinnar) vegna eigna-
brunans.
Tryggingasvik
Hugsum okkur að vá-
trygg ingafélag hefði selt
okkur rándýra bruna-
tryggingu sem við greiddum
mánaðarlega. Ímyndum okkur
einnig að í tryggingaskjalinu
sjálfu væri sjálfvirkur íkveikju-
búnaður sem myndi fara í gang
að nokkrum árum liðnum og
brenna húsið okkar. Við krefðum
tryggingafélagið um brunabætur
en fengum þau svör að það séum
við sem ættum að greiða bruna-
bæturnar til tryggingafélagsins
en ekki öfugt.
Tryggingafélagið seldi okkur
fokdýra brunatryggingu sem
við borguðum mánaðarlega. Svo
kveikti tryggingafélagið í húsinu
okkar en ætlaði samt að rukka
okkur fyrir tjónið.
Það er varla hægt að hugsa sér
grófari tryggingasvik en verð-
tryggingu húsnæðislána. Verð-
trygging veldur eignabruna, lán-
takendur borga trygginguna og
tjónið, en bankarnir hirða eign-
irnar og rukka okkur áfram fyrir
ógreiddar verðbætur.
Óréttmætir viðskiptahættir
Verðtrygging brýtur augljós-
lega í bága við góða viðskipta-
hætti og telst því til óréttmætra
viðskiptahátta sem eru bannaðir
samkvæmt lögum um eftirlit með
viðskiptaháttum og markaðssetn-
ingu nr. 57/2005 (sbr. greinar 5,
8 og 9). Neytendastofa hefur því
fulla heimild til þess að banna
verðtryggingu og/eða úrskurða
að hún teljist til óréttmætra við-
skiptahátta.
Þess ber að geta Neytendastofa
hefur samþykkt að taka til með-
ferðar kvörtun þar sem m.a. er
farið fram á að Neytendastofa
úrskurði að verðtrygging hús-
næðislána skuli teljast til órétt-
mætra viðskiptahátta.
Eignabrunatryggingar bankanna
Hvers eigum við íbúar
á Álftanesi að gjalda í
þeirri umræðu sem er um
nýjan Álftanesveg? Ég er
ung móðir tveggja barna
sem þarf að fara um veg-
inn daglega og oft með
börnin með mér í bílnum.
Ég hef búið á Álftanesinu
frá barnsaldri og valdi
að búa hér áfram eftir að
ég stofnaði fjölskyldu. Ég
lenti sjálf í slysi á Álfta-
nesveginum fyrir mörgum árum
og var heppin að ekki fór verr í það
sinn á þessum hættulega vegi. Í
meira en 10 ár hefur mér og öðrum
íbúum á nesinu alltaf verið sagt að
nýr vegur væri alveg að koma, en
lítið gerst.
Ég hef fylgst með því úr fjar-
lægð hvernig tillögur hafa verið
gerðar um nýjan veg og þær
kynntar og metnar á alla vegu.
Allir virðast hafa fengið gott
tækifæri á þessum langa tíma til
að segja sitt álit á framkvæmdinni
og veginum. Ég veit ekki betur en
að þessi vegur hafi fengið alla þá
lýðræðislegu kynningu og löglegu
samþykkt sem hægt er að hugsa
sér. Ég spyr því, hvernig stendur á
því að hópur fólks sem mér sýnist
vera meira og minna íbúar annars
staðar en af Álftanesi geti leyft
sér það að reyna að stöðva
þessa nauðsynlegu fram-
kvæmd núna loksins þegar
hún er að hefjast?
Hvar er manngæskan í þeirra
huga sem telja sig þess umkomna
að setja öryggi vegfarenda aftur
fyrir hagsmuni hrauns og slóða?
Ég bið ykkur vinsamlega að taka
mannslífin fram yfir þrætur um
vegstæði. Ákvörðun um vegstæði
hefur verið tekin í samræmi við
lög og reglur og þar hafa allir í
langan tíma getað haft áhrif með
því að koma skoðunum sínum á
framfæri á lýðræðislegan hátt.
Stoppið ekki þessa nauðsynlegu
vegaframkvæmd. Ég bið um það
fyrir okkur öll sem förum um
þennan veg og ég bið um öryggi
fyrir börnin okkar. Ég skora á
fleiri að láta í sér heyra sem eru
sama sinnis og ég. Við getum ekki
setið þegjandi hjá. Ég bið um nýjan
Álftanesveg strax.
Ég bið um nýjan
Álftanesveg
KJARAMÁL
Unnur María
Pétursdóttir
bráðahjúkrunar-
fræðingur á Sjúkra-
húsinu á Akureyri
➜ Ég bið ykkur því um
að hugleiða áður en þið
farið að ergja ykkur á þessu
endalausa væli hjúkrunar-
fræðinga hvort verið sé að
væla að ástæðulausu.
FJÁRMÁL
Þórarinn
Einarsson
eigandi bruna-
rústa af völdum
verðbólguíkveikju
bankanna
➜Það er varla hægt að hugsa
sér grófari trygginga svik en
verðtryggingu húsnæðislána.
Verðtrygging veld ur eigna-
bruna, lántakendur borga
trygginguna og tjónið, en
bankarnir hirða eign irn ar
og rukka okkur áfram fyrir
ógreiddar verðbætur.
SAMGÖNGUR
Berglind
Birgisdóttir
íbúi á Álft anesi
➜ Ég bið ykkur
vinsamlega að taka
mannslífi n fram yfi r
þrætur um vegstæði.
4BLSBÆKLINGURSTÚTFULLUR AF SJÓÐHEITUM TILBOÐUM
Tölvutek • Reykjavík • Borgartúni 31 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
OPIÐ
TIL JÓLA
10-19