Fréttablaðið - 14.12.2012, Page 52
12 • LÍFIÐ 14. DESEMBER 2012
1Að halda jólin hjá mömmu. Þegar kirkjuklukkurnar og hátíðleikinn
færist yfir og mamma les jólaguð-
spjallið fyrir okkur, þá
eru jólin komin og
ég fæ tár í augun
enda afar falleg
stund. Svo erum
við miklir sæl kerar
og gjaf mildin er í
hámarki.
2Uppáhaldsjóla-maturinn minn er
önd, og það hefur verið látið eftir mér
síðastliðin jól, ég vona að svo verði
aftur núna. Vona að mamma sé að
lesa þetta.
3Uppáhaldsjólalagið mitt er án efa The Christmas Song með Nat
King Cole.
4Ætli það sé ekki hún dóttir mín sem ég eignaðist fyrir sjö
árum, nokkrum dögum fyrir jól. Hún
breytti öllu og ég var í sæluvímu á
aðfangadags kvöld með hana í
fanginu.
5Maður hefur oft verið að kaupa s í ðus tu
gjöfina á aðfangadag og
því um líkt. Ein jólin var ég
svo þreytt eftir mikla vinnu
að ég sofnaði eiginlega ofan
í súpuskálina en það er líklega
eitthvað sem margir hafa lent í.
Jólin eru yndislegur tími, mikil
nostalgía og lotning færist yfir og
maður minnist þeirra sem eru ekki
lengur á meðal okkar. En svo sér
maður framtíðina og gleðina í barninu
sínu. Ég ætla að eiga frábær jól með
gleði, virðingu og ánægju yfir lífinu.
1Mín er að horfa á White Christmas með Bing Crosby, börnin mín
eru ekki eins spennt. Svo að
fara í bæinn á Þorláks-
messu og sjá jólin þar og
fara út að borða saman
f jö lsky ldan. E innig
pipar kökurnar sem við
bökum saman vel fyrir
jól, það finnst Hönnu og
Hafliða æði. Svo er alltaf
jafn gaman að ná í jólakassana
með öllu jólaskrautinu, jólabókunum
og geisladiskunum og hefjast handa
við jólaundirbúninginn.
2Yfirleitt er bæði lambakjöt og hnetu steik í aðalrétt og humar súpa
í forrétt. Reynt að gera öllum til geðs.
3Já, White Christmas með Bing Crosby!
4Þegar mamma og pabbi gáfu mér „hliðar“-skóla-
tösku úr leðri þegar ég var
11 ára, vá mér fannst hún
flott og svöl!
5Já, það kviknaði eitt sinn í stofu borðinu
þegar jólakransinn brann niður.
Ég sá borðið í ljósum logum þegar ég
vaknaði um tvö leytið til að fara á kló-
settið, 10 ára gömul. Mamma á fullu
að vasast í jólunum í eldhúsinu fram
á nótt. En það var fljótgert að slökkva
með teppi og einhverju fleiru. Þrátt fyrir
þetta notuðum við borðið í nokkur ár.
1Uppáhaldshefðin er að halda í hefðirnar. Hlusta á útvarpið á meðan jólamaturinn er
eldaður. Hringja sérstakri jólaklukku þegar sagt
er ,,gjörið svo vel“, börnin opna einn pakka fyrir
matinn, fara í leiki með gestunum við matar-
borðið, spenningurinn í kringum möndl-
una í möndlugrautnum, útbúa heita
karamellu sósu út á grautinn, opna
jólakortin þegar gestirnir eru farnir,
lesa jólabækur fram á nótt. Allar
þessar hefðir eru svo dýrmætar.
2Eg er yfirleitt með kalkún með tilheyrandi á aðfanga-
dag en hamborgarhrygg um
áramót. Júlíus, maðurinn hennar
mömmu, hefur yfirleitt séð um frá-
bæran humar í forrétt.
3Uppáhaldsjólalagið mitt núna er ,,Það snjóar“ með Sigurði Guðmundssyni. En
einnig sálmur sem ég heyri á Rás 1 um hver jól
og man ekki nafnið á. Svo Gilsbakkaþula og
fleira gamalt og gott. Það er til svo margt fallegt
með tónlistarmönnunum okkar.
4Það getur varla neitt toppað dúkkuhúsið sem afi minn útbjó og gaf mér þegar ég
var lítil stelpa. Það var jólagjöf allra tíma í mínu
lífi. Og jólin finnst mér snúast fyrst og fremst um
það að gleðja börn og veita þeim gleði og frið.
5Nei, það hefur ekkert farið úrskeiðis um jólin. Enda er
þetta bara eðlilegt fjölskyldulíf
og þarf ekkert að vera ,,hann-
að“ eða fullkomið. Ég man þó
eftir einni uppákomu þegar ég
var um tvítugt og hafði skrif-
að smásögu um afa og ætlaði
að gefa honum í jólagjöf. Við
vorum komin til afa og ömmu á
aðfangadag þegar ég áttaði mig á
því að ég hafði gleymt sögunni heima.
Ég var bíllaus og það var allt á kafi í snjó. En
mér fannst þetta svo mikilvægt svo ég kippti
upp um mig pilsinu, skellti mér í gúmmí stígvél
og öslaði snjóinn upp Breiðholtsbrekkuna í
myrkrinu til að sækja gjöfina hans afa. Svona
eru jólin: Þau snúast um ást og að gleðja þá
sem standa hjarta okkar næst.
SPJALLAÐ
UM J LIN…
Jólin eru handan við hornið, af því tilefni spjall-
aði Lífið við nokkrar skemmtilegar konur um jóla-
minningar, jólahefðir og fleira. 1. Hver er uppáhalds-
hefð fjölskyldunnar? 2. Hvað er í jólamatinn? 3. Hvert er
uppáhalds jólalagið? 4. Hver er eftirminnilegasta jóla-
gjöfin? 5. Hefur eitthvað farið úrskeiðis á jólunum?
1Mér finnst mikilvægt að skapa nota-legar stundir með fjölskyldunni fyrir jólin.
Uppáhaldshefð okkar er að fara í Heiðmörk
að höggva jólatré. Það er svo gaman að
vera úti í náttúrunni og upplifa jólastemn-
ingu í fallegu og friðsælu umhverfi,
kíkja á jólamarkaðinn við Ell-
iðavatn, hitta jólasveina og
fá heitt kakó og pipar-
kökur. Einnig er ómissandi
hefð hjá okkur fyrir jólin
að búa til laufabrauð og
mála piparköku hús.
2Ég er f rekar fast-heldin á jólamatinn. Á
aðfangadags kvöld erum við
með reykta gæsabringu í for-
rétt og hamborgarhrygg í aðalrétt en
eftir rétturinn breytist yfirleitt milli ára. Þessi
jól ætla ég að vera með köku með heitri
karamellu sósu og rjóma í eftirrétt. Á jóladag
erum við með hangikjöt og er laufabrauðið
ómissandi með því.
3Mér finnst mörg jólalög skemmtileg en held alltaf mest upp á hið fallega lag Ó
helga nótt.
4 Ég held alltaf mest upp á gjafirnar sem börnin mín hafa búið til sjálf og
gefið mér í gegnum árin.
5 Ég hef stundum lent í því að eitthvað klikkar í
jóla undirbúningnum eða í
matseldinni um jólin. Áður
fyrr gat ég nánast látið það
skemma fyrir mér jóla gleðina
ef t.d. sósan mislukkaðist
eða eitthvað gleymdist en hef
lært það í gegnum árin að hlut-
irnir þurfa langt frá því að vera full-
komnir til að eiga gleðileg jól. Það er allt-
af hægt að gera gott úr hlutunum. Það sem
skiptir mestu máli er að jólin eru yndis legur
tími til að vera með fjölskyldunni, sýna hvert
öðru kærleika og hlýju og skapa góðar
minningar.
UPPÁHALDSGJAFIRNAR FRÁ BÖRNUNUM
Sigríður Arna Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur og höfundur bókarinnar Útivist
og afþreying fyrir börn.
FER Í BÆINN MEÐ FJÖLSKYLDUNNI
Ebba Guðný, heilsukokkur.
JÓLIN SNÚAST UM ÁST
Sigríður Arnardóttir, fjölmiðlakona, rithöfundur og fyrirlesari.
DÓTTIRIN BESTA JÓLAGJÖFIN
Hanna Stína, innanhúsarkitekt.
Lífið telur niður að jólum
Kaffipúðarnir passa í venjulegar skeiðar Senseo vélanna
E
M
M
E
N
N
E
E
N
N
E
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
7
9
2
NÝTT
MEIRI FYLLING
& MEIRImunaður
UPPGÖTVAÐU NÝJAN BRAGÐHEIM SENSEO
„Kaffipúðarnir
passa í allar
tvöfaldar skeiðar
sem fylgja með
Senseo vélum“
LOLITA.IS KYNNIR:
Erum með mikið úrval af
fallegum fatnaði, glæsilegu
skarti og flottum fylgihlutum
á góðu verði.
Finndu okkur á facebook undir
„Lolita.is - Netverslun“.
Verslun að Trönuhrauni 2,
Hafnarfirði
S: 544-5554