Fréttablaðið - 14.12.2012, Blaðsíða 56
„Þetta er uppáhalds-
súkkulaðiostakakan mín
og fær hæstu einkunn
hjá ostakökusjúklingum í
kringum mig,“ segir Helga
Sörensen, matreiðslumaður
með meiru, sem gefur okkur
dásamlega súkkulaðiosta-
kökuuppskrift fyrir helgina.
Sjúklega góð
súkkulaðiosta-
kaka
100 g sykur
3 eggjarauður
150 g rjómaostur
Safi úr 1 sítrónu
100 g súkkulaði
(suðusúkkulaði til dæmis)
2 matarlímsblöð
200 ml þeyttur rjómi
Botn
1 pk. grahamskex
100 g brætt smjör
Aðferð
Kexið mulið, bræddu smjöri
blandað við og þjappað ofan í
kökumót og kælt. Eggja rauðum
og sykri er pískað vel saman
þar til sykur leysist upp. Matar-
límsblöðin lögð í ískalt vatn.
Rjómaosturinn og sítrónu safinn
sett i pott og brætt saman ró-
lega. Matarlímsblaðið leyst upp
í nokkrum rjómadropum sem
eru hitaðir smá upp og blandað
svo saman við brædda rjóma-
ostinn. Bræddu súkkulaðinu svo
blandað út í. Rjóminn er síðan
léttþeyttur og blandað varlega
saman við með sleikju, svo er
þessu hellt yfir
botn inn og
sett í kæli
þar til orðið
stíft. Ég læt
hana oftast
vera yfir nótt
í kæli.
Helga og dóttir hennar Amelía Líf.
Útkomu tónverksins Flétta eftir
Hauk Tómasson var fagnað á
heimili hans í vikunni, en verkið
er komið út á diski og mynd-
diski. Verkið var frumflutt í
Hallgrímskirkju á Listahátíð
2011 og hlaut afar lofsamlega
dóma. Flytjendur eru Schola
cantorum, Mótettukór Hall-
grímskirkju og Kammersveit
Reykjavíkur en stjórnandi er
Hörður Áskelsson.
FAGNA ÚTKOMU FLÉTTU
Ragnheiður Elísdóttir, Sigfríður Björns-
dóttir og Anna Jóhannesdóttir.
Dröfn Rafnsdóttir og Inga Rós Ingólfs-
dóttir.
Bogi Þór Siguroddsson, Haukur Tómasson og
Páll Valsson.
Sjá nánar á visir.is/lifid
Skemmtilegustu skopmyndateiknarar landsins leggja til teikningarnar
– og þú semur brandarann. Þannig er SKRÍPÓ, hrikalega fyndið nýtt
íslenskt spil sem fjölskyldan mun liggja í hláturskasti yfir.
Í SKRÍPÓ eru jafnvel fáránlegustu
myndatextarnir sprenghlægilegir ...
SKRÍPÓ INNIHELDUR
150 FRÁBÆRAR
TEIKNINGAR EFTIR
HUGLEIK DAGSSON,
HALLDÓR BALDURSSON,
LÓU HLÍN HJÁLMTÝSDÓTTUR
OG SIGMÚND
Eftir höfunda
Fimbulfambs
Skrípó er frábært spil …
S P I L A V I N I R
Hlæðu af þér
hausinn um jólin
F J Ö R U G T S P I L F Y R I R A L L A F J Ö L S K Y L D U N A