Fréttablaðið - 14.12.2012, Side 62
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 42TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ANNA ÞORVALDSDÓTTIR
Boðaþingi 5,
áður Háaleitisbraut 31,
andaðist mánudaginn 3. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Dóra Steinsdóttir Páll Guðbergsson
Ásta Steinsdóttir Jörgen Pétur Guðjónsson
Guðmundur Steinsson
Þorvaldur Steinsson Guðrún Ólöf Þorbergsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður
og ömmu,
ÞÓRU JÓHÖNNU HÓLM
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Landspítalans við Hringbraut fyrir frábæra
umönnun.
Magnús G. Pálsson
Karl Óskar Magnússon Guðný Bjarnarsdóttir
Þóra Margrét Karlsdóttir Magnús Gunnar Karlsson
Maðurinn minn og faðir okkar,
ADÓLF ADÓLFSSON
lést þann 10. desember síðastliðinn.
Mónika Magnúsdóttir
Ragnheiður María Adólfsdóttir
Magnús Már Adólfsson
Steinunn Adólfsdóttir
Soffía Adólfsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RANNVEIG HÁLFDÁNARDÓTTIR
Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili
Akranesi, áður Háholti 3,
lést sunnudaginn 9. desember síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
föstudaginn 21. desember kl. 14.00.
Ólafur H. Þórarinsson Sigríður B. Ásgeirsdóttir
Þórgunna Þórarinsdóttir
Kristín S. Þórarinsdóttir Unnþór B. Halldórsson
Þórunn R. Þórarinsdóttir Kristján Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar elskulegu eiginkonu,
móður, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR ÞORGRÍMSDÓTTUR
Höfðabrekku 16, Húsavík.
Halldór Ingólfsson
Þuríður Halldórsdóttir Ólafur E. Benediktsson
Ingunn Halldórsdóttir Einar Halldór Einarsson
Halldór Elís Ólafsson
Guðbjörg Ólafsdóttir
Guðrún Einarsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæru
GERÐU R. JÓNSDÓTTUR
Hvassaleiti 147,
103 Reykjavík.
Sveinn B. Hálfdánarson
Hjalti Jón Sveinsson Soffía Lárusdóttir
Óttar Sveinsson Alda Gunnlaugsdóttir
Hanna Friðriksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SESSELJU ÓSKARSDÓTTUR
Höfða, Akranesi,
áður til heimilis að Suðurgötu 50.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða fyrir
einstaka umönnun.
Ruth Alfreðsdóttir Kristinn Sigurðsson
Bryndís Alfreðsdóttir Ingimundur Ingimundarson
Karl Óskar Alfreðsson Halldóra Elsa Þórisdóttir
Helga Klara Alfreðsdóttir Einar Davíðsson
Guðrún Birgitta Alfreðsdóttir Karl Sigurjónsson
og ömmubörn
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann
www.kvedja.is
Ferðin til stjarnanna eftir Kristmann
Guðmundsson segir frá Inga, mið-
aldra framhaldsskólakennara, sem er
numinn á brott af framandi verum á
kvöldgöngu sinni á Esjunni. Í föru-
neyti þeirra ferðast hann um víðáttur
geimsins og fylgist með lífi á öðrum
hnöttum á leið sinni til plánetunnar
Laí. Á ferðalaginu kynnist hann ást-
inni og horfist í augu við vankanta
mannkynsins.
Bókin kom upphaflega út árið 1959
og er með fyrstu vísindaskáldsögum
eða furðusögum sem skrifaðar voru
hér á landi.
„Þetta er sú bók sem auglýst var
sem fyrsta vísindaskáldsagan þegar
hún kom út,“ segir Ármann Jakobs-
son, doktor í íslenskum bókmennt-
um, sem ritar formála að bókinni.
„Kannski var hún allra fyrsta vísinda-
skáldsagan en það er túlkunaratriði
hvort nefna megi nokkrar bækur á
undan. En Kristmann var mjög áhuga-
samur um vísindaskáldsögur, átti
margar erlendar vísindaskáldsög-
ur og sá áhugi var þekktur á sínum
tíma.“ Kristmann var þekktur höf-
undur árið 1959 og skrifaði Ferðina
til stjarnanna undir dulnefninu Ingi
Vítalín. Ármann bendir á að algengt
hafi verið að þekktir höfundar notuðu
dulnefni þegar þeir skrifuðu bækur í
annarri bókmenntagrein en þeir voru
vanir, til dæmis glæpasögur.
„Fljótlega eftir að bókin kom út var
því ljóstrað upp hver höfundurinn
var,“ segir Ármann. „Ég þekki ekki
söguna á bak við hvers vegna það var
gert. Kannski var auðveldara að selja
bókina ef vitað var að hún væri eftir
þekktan rithöfund. Það duldist þó í
Frumkvöðull á sviði
vísindaskáldsagna
Ferðin til stjarnanna eft ir Kristmann Guðmundsson hefur verið endurútgefi n hjá for-
laginu Lesstofunni. Bókin kom upphafl ega út árið 1959 og er talin með fyrstu íslensku
vísindaskáldsögunum. Ármann Jakobsson skrifar formála.
ÁRMANN JAKOBSSON Segir Ferðina til stjarnanna eftir Kristmann Guðmundsson merkilega bók sem varpi ljósi á fjölbreytnina í íslenskum
bókmenntum fyrr á tímum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
raun engum hver væri á bak við dul-
nefnið, enda er aðalpersónan höfund-
urinn sjálfur.“
Viðtökur bókarinnar voru nógu
góðar til að Kristmann skrifaði fram-
haldssögu ári síðar, og þá undir eigin
nafni, en það fylgdi þó engin vísinda-
skáldsögubylgja í kjölfarið. „Það ger-
ist ekki fyrr en á allra síðustu árum.“
Engu að síður var Kristmann frum-
kvöðull á sviði vísindaskáldsagna-
gerðar, að mati Ármanns en þar sem
Ferðin til stjarnanna hefur dálítið
gleymst þá höfum við kannski aðra
mynd af íslenskri bókmenntasögu
en vert væri. „Hún varpar ljósi á
fjölbreytnina í bókmenntum fyrr á
tímum.“
En er Ferðin til stjarnanna góð bók?
„Það fer auðvitað eftir smekk
manna. Vísindaskáldsögur eru fjöl-
breyttur flokkur; margar þeirra hafa
útópíska vídd, eða staðleysuvídd.
Ferðin til stjarnanna er ein af þeim
og það má líta á hana sem samfélags-
lega ádeilu um mannfélagið. Það er
vel hugsanlegt að lesendur sem kunna
að meta vísindaskáldskap hafi mjög
gaman af Ferðinni til stjarnanna. Mér
finnst hún að minnsta kosti merkileg
bók og vona að hún breiðist vel út.“
bergsteinn@frettabladid.is
Bókaútgáfan Lesstofan
var stofnuð í fyrra að
undirlagi fimm fyrr-
verandi skólafélaga
við Háskóla Íslands.
Forlagið leggur áherslu
á endurútgáfu mikil-
vægra verka í íslenskri
bókmenntasögu, sem
fyrir einhverjar sakir
hafa týnst eða gleymst.
Ferðin til stjarnanna
er þriðja bókin sem
Lesstofan gefur út. Áður
hafa komið út Angantýr
eftir Elínu Thorarensen
og Vögguvísa eftir Elías
Mar, sem var í öndvegi
á Lestrarhátíð Bók-
menntaborgar UNESCO
í október síðastliðnum.
Lesstofan lætur að sér kveða