Fréttablaðið - 14.12.2012, Blaðsíða 64
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 44
BAKÞANKAR
Magnús Þorláks
Lúðvíkssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
Getum við
spjallað
saman, frú
Rúlluberg?
Ég er
hræddur um
að ég hef
vondar fréttir
að færa!
Ég hef athugað aftur og
aftur! Þetta lítur ekki vel út!
Fyrirgefðu að ég að þurfa að
færa þér þessar fréttir, frú...
En í dag fellur
Bold and the
beautiful
niður vegna
landsleiks í
handbolta!
Mér þykir
þetta
leiðinlegt!
Læknir! Má ég
eiga við þig orð
góði minn!
Ég segi þetta í nítjánda
sinn, ég ætla EKKI að
endurtaka mig!
Hún er fyrir yngri menn!
Hæ krakkar! Hvernig var
morguninn með pabba? Við borðuðum kleinuhringi, hamborgara
og sjeik, týndumst á stóru leiksvæði og
Hannes gubbaði á leiðinni heim.Sko...
Ef hinn fullkomni
dagur er til, þá var
þetta hann!
Er kominn sunnudagur?
LÁRÉTT
2. sæti, 6. klafi, 8. magi, 9. flík,
11. eldsneyti, 12. krapi, 14. enda,
16. núna, 17. sérstaklega, 18. annríki,
20. tveir eins, 21. sníkjur.
LÓÐRÉTT
1. hróss, 3. eftir hádegi, 4. fax, 5. arinn,
7. hænsnfugl, 10. samræða, 13. hólf,
15. illgresi, 16. á nefi, 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sess, 6. ok, 8. hít, 9. fat,
11. mó, 12. slabb, 14. klára, 16. nú, 17.
sér, 18. önn, 20. ff, 21. snap.
LÓÐRÉTT: 1. lofs, 3. eh, 4. símbréf,
5. stó, 7. kalkúnn, 10. tal, 13. bás, 15.
arfi, 16. nös, 19. na.
Í hagfræðinni í háskólanum var mér kennt að almennt væri talið skynsam-
legt að beita sveiflujöfnun við hagstjórn.
Samkvæmt fræðunum á hið opinbera að
stíga á bensíngjöfina þegar hægist um í
efnahagslífinu en fjarlægja bolluna þegar
partíið er almennilega komið í gang. Hug-
myndin er sú að stöðugleiki sé æskilegri
en sveiflur. Mér finnst þetta góð pæling
og hef stundum velt fyrir mér hvort hún
sé yfirfæranleg á fleiri svið mann lífsins.
Tökum dæmi. Ef ég byggi til lista yfir
hundrað eftirminnilegustu daga ævi
minnar væru þar færri mánudagar
en föstudagar. Fyrir vikið fær maður
það ósjálfrátt á tilfinninguna að ver-
öldin sé einhvern veginn fegurri um
helgar en örlítið þunglamalegri í upp-
hafi vikunnar.
FLESTIR sem ég þekki gera betur við
sig um helgar en á virkum dögum.
Fólk borðar óhollari mat (nammi-
dagar), er líklegra til að lyfta
sér upp (sem hefur reyndar
sennilega mest með fríið að
gera) og er líklegra til að hitta
vini og vandamenn eða leyfa
sér algjöra slökun. Á mánu-
dögum er lífsstíllinn aftur á
móti meinlætalegri. Það er óal-
gengt að fólk lyfti sér upp snemma
vikunnar (sæll mánudagsklúbbur
Priksins) og þá er alltaf fiskur í
mötuneytinu á mánudögum!
ÞESSI hegðun ýkir hefðbundnar
sveiflur daganna. Mánudagar verða enn
þunglama legri og helgarnar enn skemmti-
legri. Ég hef efasemdir um að þetta sé
skynsam legasta leiðin til að dreifa „góðu
hlutunum“. Af hverju? Jú, vegna þess að
máttur „góðu hlutanna“ er meiri á óhressu
dögunum og máttur þeirra „slæmu“ minni
á hressu dögunum. Á frábærum degi
muntu ekki gera stórmál úr því þegar
dekkið á bílnum springur og hvenær er
notaleg kvöldstund með ástvinum betri
en að loknum erfiðum vinnudegi? Því má
velta fyrir sér hvort ekki sé skynsamlegt
að beita sveiflujöfnun í daglegu lífi; njóta
góðu hlutanna í upphafi vinnuvikunnar en
lifa meinlætalegra lífi um helgar.
NÚ kann einhver að segja að andi mann-
lífsins sé léttari um helgar einmitt vegna
þess að þá gerir fólk betur við sig. Það
kann að vera rétt þótt fríið spili líka inn
í. Ég hef hins vegar þá kenningu að jafn-
vel þótt daglegri sveiflujöfnun sé beitt sé
tilfinningin fyrir ólíkum hressleika daga
svo rótgróin að hún haldist óbreytt. Stóra
áhyggjuefnið er fremur að maður detti úr
takti við annað fólk. Á laugardegi: „Hey
Maggi, kemurðu ekki í partíið í kvöld?“ –
„Nei, því miður, ég kláraði djammkvótann
á þriðjudag …“ Þetta er reyndar svo stórt
áhyggjuefni að það eiginlega eyðileggur
hugleiðinguna. En þetta er tilraunar virði,
jafnvel þótt eina uppskeran verði að vera
laus við ýsuna í hádeginu á mánudögum.
Fiskur í mötuneytinu á mánudögum
Skjalastjóri Mosfellsbæjar
Laust er til umsóknar starf skjalastjóra á bæjarskrifstofu
Mosfellsbæjar
Skjalastjóri gegnir lykilhlutverki í stefnumótun og eftirfylgni með
skjalastjórnun Mosfellsbæjar og ber ábyrgð á því að farið sé að
gildandi lögum og reglum um skjalavistun opinberra aðila og
sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 16. desember 2012.
Sjá nánar auglýsingu á vef Mosfellsbæjar:
http://mos.is/Lesafrett/skjalastjorimosfellsbaejar.
Framleiðsla Kísils í Helguvík
Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar
Stakksbraut 9 ehf. hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar
frummatsskýrslu um framleiðslu kísils í Helguvík, framleiðslugeta
allt að 100.000 tonn á ári.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á
umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá
14. desember til 30. janúar 2013 á eftirtöldum stöðum:
Á bókasafni Reykjanesbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá
Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu
Stakksbrautar 9: www.s9.is.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram
athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 30. janúar 2013 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166,
150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á
umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000
m.s.b.
Skipulagsstofnun
Save the Children á Íslandi