Fréttablaðið - 14.12.2012, Qupperneq 72
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 52
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FÖSTUDAGUR
14. DESEMBER 2012
Sýningar
16.00 Elín G. Jóhannsdóttir opnar sýn-
inguna Pixlar í Listasal Mosfellsbæjar.
Viðfangsefni sýningarinnar er borgar-
náttúran, gleði og glens. Aðgangur er
ókeypis.
Uppákomur
11.00 Stúfur kíkir í heimsókn á Þjóð-
minjasafn Íslands. Aðgangur er ókeypis.
12.34 Fjölbreytt menningardagskrá
er í boði á Jóladagatali Norræna
hússins. Uppákomur hvers dags eru
gestum huldar þar til gluggi dagatalsins
verður opnaður í upphafi atburðarins.
Listamaðurinn Hugleikur Dagsson gerði
dagatalið í ár.
20.30 Ljóða- og lagakvöld verður
haldið á Kaffi Krús á Selfossi. Flytj-
endur og höfundar ljóða eru Benedikt
Jóhannsson og Þorlákur Karlsson en
Katrín Magnúsdóttir og Rúnar Steinn
Benediktsson flytja tónlist.
Tónlist
12.30 Hádegistónleikar til styrkt-
ar Hjálparstarfi kirkjunnar verða
haldnir í Háteigskirkju. Hugljúfir
jólatónar verða sungnir og spil-
aðir. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
17.30 Tónleikaröðin Undiraldan
verður í Hörpu. Fram koma
Kiasmos og AMFJ. Aðgangur er
ókeypis.
21.00 Pétur Ben
heldur tónleika á
Bar 11 en hann
gaf nýlega út
sína aðra
plötu, Gods
Lonely Man.
Aðgangur
er
ókeypis.
21.00
Jóla-
tónleikar
Kristjönu
Stefánsdóttur
og Svavars Knúts
verða á Café
Rosenberg.
21.00 Frönsku þungarokkshljómsveit-
irnar L’esprit du Clan og Hangman’s
Chair halda tónleika á Gauk á Stöng.
Auk þeirra koma fram Momentum,
Dimma, Angist, Moldun, Ophidian I og
DJ Kiddi Rokk. Miðaverð er kr. 1.500 og
18 ára aldurstakmark.
21.30 Tónlistarmennirnir og vinirnir
Jónas Sigurðsson og Ómar Guðjónsson
halda tónleika á KEX Hosteli. Miðaverð
er kr. 2.000.
22.00 Heflarnir ásamt Helga og Hljóð-
færaleikurunum halda tónleika á Græna
hattinum. Miðaverð er kr. 1.500.
23.00 Ingvar Grétarsson og
Tómas Tómasson skemmta á
Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg
8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Leiðsögn
12.00 Boðið verður upp á
leiðsögn um sýningu Þórunnar
Elísabetar Sveinsdóttur, Lauslega
farið með staðreyndir – sumt
neglt og annað saumað
fast, og sýningu
Þuríðar Rósar
Sigurþórsdóttur,
Hinumegin. Báðar
sýningarnar
standa nú yfir
í Hafnarborg
og er aðgangur
ókeypis.
Upplýsingar um
viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
BAR 11 Tónlistarmaðurinn Pétur Ben kemur fram á Ellefunni í kvöld.
MYND/STEINÞÓR ARNSTEINSSON
KEX HOSTEL Jónas Sigurðsson
skemmtir með vini sínum Ómari
Guðjónssyni í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
SVAVAR KNÚTUR
MYNDLIST ★★★★ ★
Mæting
Kristinn G. Harðarson
GERÐARSAFN
Sýning Kristins G. Harðarsonar í
Gerðarsafni er, eins og segir í sýn-
ingarskrá, „yfirlitssýning á þeim
þáttum sem mest mark hafa sett á
listsköpun Kristins síðastliðin tutt-
ugu ár“. Er þar átt við ferðasögur
annars vegar, á efri hæð, og hins
vegar frásagnarleg verk unnin í
teiknimyndasagnaformi, á neðri
hæð.
Verk Kristins fjalla um veru-
leikann í sínu allra hversdagsleg-
asta formi. Það er engin dramatík
á ferðinni, lítil sem engin ljóðræna,
engin upphafning eða æsingur –
bara ofboðslega venjulegar lýs-
ingar listamanns á sínu nánasta
umhverfi í formi texta og mynda,
oftast í bland. Í einstaka verkum er
mynd án texta eða texti án myndar.
Manni verður ósjálfrátt hugsað
til Twitter eða Fésbókarfærslna
samtímans þegar maður les suma
textana, sem margir voru skrifaðir
löngu fyrir daga þeirra miðla. „Ég
gekk frá hótelinu niður að sýn-
ingarbyggingunni og tók myndir
á leiðinni. Það var farið að vora,
stjúpur blómstra og trén bruma,
fallegasta veður og frekar hlýtt.
Þetta var góður spotti,“ segir í
þessum textabút úr verkinu Niður
með Elbu, þar sem listamaðurinn
fær sér göngutúr niður með ánni
Elbu í Hamborg í Þýskalandi.
List Kristins má flokka sem eins
konar skrásetningarlist eða göngu-
túralist. Menn eins og Richard
Long, Stanley Brouwn, On Kaw-
ara og Tehching Hsieh koma upp
í hugann. Þetta eru allt listamenn
sem takast á hendur eitthvað ferða-
lag, eða ferli, og vinna með það og
hinar ýmsu staðsetningar.
Efri hæðin í Gerðarsafni er helg-
uð þessum ferðaathugunum Krist-
ins. Maður fær á tilfinninguna að
umfjöllunarefnið sjálft sé ekki það
sem skipti listamanninn máli, held-
ur að það eitt að vera til sé nægur
efniviður í sjálfu sér, og um það sé
hægt að fjalla í myndlist, síendur-
tekið, á öllum stundum dagsins. Í
einu verki, Tiltekt, er Kristinn t.d.
að sópa rusli inni í eldhúsi og rekur
augun í einhvern aflóga dótakall,
sem hann grípur úr ruslinu og
virðir fyrir sér. Meira þarf ekki til.
Málunarstíll Kristins í verk-
unum á efri hæðinni er misreal-
ískur, þ.e. stundum leggur hann
meira upp úr maleríinu og stund-
um minna. Nálgunin er þó allt-
af realísk, en blátt áfram. Þegar
hann tekur hlutina photo-realískari
tökum er það aðeins til að opinbera
enn frekar „fánýti“ mótívsins, ein-
hvern dimman bakgarð, eða von-
lausan búðarglugga.
Verkin sem ég staldraði mest
við á sýningunni voru verk nr. 15,
Austur – austur á landi frá 2007
(eitt af fjórum verkum með þenn-
an sama titil) þar sem Kristinn er
í essinu sínu, og texti og myndir
eiga í látlausu en fullkomnu sam-
tali. Í vatnslitamyndum nr. 6 er það
staðsetning myndarinnar á flet-
inum sem er áhugaverð, sem og
umfjöllunarefnið sem listamaður-
inn velur sér, en þarna eru á ferð
myndir sem flestir hefðu hent úr
ljósmyndasafni sínu, en nokkuð
sem Kristinn hrífst af í forgengi-
leik sínum.
Myndbandsverk nr. 8 Austur
– á Austurlandi 2007 er einnig
heillandi – en þar koma svipleiftur
í mynd, á milli þess sem skjárinn
myrkvast. Stóra teiknimyndin niðri
um drauminn er einnig í sérflokki.
Varðandi sýninguna sem heild
hefði mátt nýta tækifærið betur
og vinna meira með einstaka hluta
hennar, til að ramma betur inn sér-
stöðu Kristins sem listamanns.
Þóroddur Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Kristinn er lista-
maður með heillandi nálgun, og það
er kærkomið að fá þessa yfirsýn yfir
ferilinn. Hægt hefði verið að lyfta
sýningunni sem heild enn frekar upp
með meiri afmörkun og úrvinnslu
einstakra hluta hennar.
Engin dramatík
Miðasala harpa.is - midi.is og í síma 528 50 50
FRÁBÆR JÓLAGJÖF
Ásamt strengja- og blásarasveit
HÖRPU 3. FEBRÚAR
,,Brilliant“The Sun,,Flawless“
Mojo