Fréttablaðið - 14.12.2012, Page 78
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 58
1. Jorge Garcia
(Hugo „Hurley“ Reyes)
Sjónvarpsþættirnir Alcatraz
og kvikmyndin When We Were
Pirates undir leikstjórn Jims
Hanks, bróður Toms.
2. Matthew Fox
( Jack Shephard)
Fjöldamorðingjamyndin Alex
Cross og World War Z, nýjasta
mynd Brads Pitt.
3. Josh Holloway
( James „Sawyer“ Fox)
Mission Impossible: Ghost
Protocol og Ten með Arnold
Schwarzenegger í aðalhlutverki.
4. Evangeline Lilly
(Kate Austen)
Hasarmyndin Real Steel og
álfkonan Taureil í Hobbitamynd-
unum.
5. Daniel Dae Kim
( Jin Kwon)
Teiknimyndin The Legend of
Korra (talsetning) og lögguþætt-
irnir Hawaii Five-O.
6. Yunjin Kim
(Sun Kwon)
Suður-kóreska myndin The
Neighbors og sjónvarpsþátta-
röðin Mistresses.
7. Naveen Andrews
(Sayid Jarrah) Þættirnir Sinbad og
myndin Diana, um síðustu tvö ár
prinsessunar.
8. Terry O‘Quinn
( John Locke) Þættirnir Hawaii
Five-0 og 666 Park Avenue.
9. Emilie de Ravin
(Claire Littleton)
Þættirnir Once Upon a Time og
Air Force One Is Down. Stríðs-
myndin The 34th Battalion.
10. Dominic Monaghan
(Charlie Pace)
Þættirnir FlashForward, Good-
night Burbank og The Unknown.
Stríðsmyndin Soldiers of
Fortune.
Lífi ð eft ir Lost
Rúm tvö ár eru liðin síðan þættirnir Lost luku
göngu sinni. Síðan þá hafa aðalleikararnir tekið
að sér hin ýmsu verkefni, sum hver merkilegri en
önnur.
Þættirnir Lost luku fimm ára göngu sinni hér á landi í Sjónvarp-
inu 30. ágúst 2010. Framan af nutu þessir dularfullu þættir mikilla
vinsælda en þær dvínuðu með hverju árinu enda urðu þeir sífellt
ruglingslegri.
Mest horfðu tuttugu milljónir manna á Lost í viku hverri í
Bandaríkjunum en talan lækkaði niður í tólf milljónir eftir því
sem lopinn var teygður. Lost fjallaði um hóp fólks sem komst lífs
af úr flugslysi eftir að hafa brotlent á eyðieyju og alls voru sex
þáttaraðir gerðar.
Aðalleikararnir urðu umsvifalaust að stjörnum en hvernig ætli
þeim hafi gengið að fóta sig eftir að ævintýrinu mikla lauk?
1
2
3
4
5
6
10
8 97