Fréttablaðið - 14.12.2012, Qupperneq 80
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 60
Diskódrottningin Donna Summer
verður tekin inn í frægðarhöll rokks-
ins á næsta ári, en söngkonan lést
fyrr á árinu eftir skamma baráttu við
lungnakrabbamein.
Tilkynnt var um útnefningarnar í
fyrradag, og venju samkvæmt er það
fjölbreyttur hópur sem prýðir listann.
Auk Summer verða rappararnir í
Public Enemy heiðraðir, píanistinn
Randy Newman, rokksveitin Heart,
blúsarinn sálugi Albert King og upp-
tökustjórarnir Lou Adler og Quincy
Jones.
Þá er kanadíska proggtríóið Rush
í þessum glæsilega hópi, en hljóm-
sveitin siglir inn í 45. starfsár sitt um
áramót.
„Þetta er mikill heiður og við
mætum með bros á vör,“ segir Geddy
Lee, söngvari og bassaleikari sveitar-
innar, en ekki er sjálfgefið að hinir
útnefndu láti sjá sig við athöfnina.
Flestir muna eflaust eftir fýlukasti
hins lokkaprúða söngvara Axl Rose, en
hann þverneitaði að vera viðstaddur
þegar hljómsveit hans, Guns N‘ Roses,
var tekin inn í höllina fyrr á þessu ári.
Athöfnin fer fram í Los Angeles
hinn 18. apríl næstkomandi. - hva
Rapp, progg og diskó í frægðarhöllina
Public Enemy og Donna Summer eru meðal þeirra sem fá inngöngu. Tríóið Rush mætir með bros á vör.
KANADÍSKA INNRÁSIN proggprinsarnir eru á leið í höllina
Íslandsvinurinn Tom Cruise
hefur sagt frá því að hann ætli að
fagna jólunum með börnum sínum
þremur, Bellu, Connor og yngsta
barninu Suri, en þau hafa ekki sést
síðan um miðjan nóvember.
Suri hefur starfað sem fyrir-
sæta þrátt fyrir að vera einungis
sex ára. Sjálfur hefur Tom verið
að starfa í Bretlandi við tökur á
nýrri kvikmynd, All you need is
kill. Þrátt fyrir að hann og tvö
elstu börnin séu meðlimir Vísinda-
kirkjunnar ætla þau sér samt að
fagna jólunum með Suri.
Þess má geta að Katie Holmes,
móðir Suri, hafði ætlað að eyða jól-
unum með dóttur sinni.
- gþg
Cruise með
Suri um jólin
Raunveruleikastjarnan Kim
Kard ashian hefur viðurkennt að
vera enn meira í sviðsljósinu en
áður eftir að hún kynntist rappar-
anum Kanye West. Spurð hvort
það væri erfiðara að halda sig frá
sviðsljósinu sagði hún við tíma-
ritið You: „Þetta er erfiðara núna
með kærastanum mínum. Við
erum mun meira áberandi þegar
við erum saman,“ sagði hún.
Hin 32 ára Kardashian og
Kanye sáust fyrst saman opinber-
lega í apríl síðastliðnum. Síðan þá
hefur hjörð ljósmyndara elt þau á
röndum hvert sem þau fara.
Enn meira í
sviðsljósinu
HJÁ PABBA Suri Cruise mun eyða jól-
unum með föður sínum. Þau hafa ekki
hist síðan í nóvember. NORDICPHOTOS/GETTY
SAMAN Kim Kardashian og Kanye West
hafa verið saman síðan í apríl.
NORDICPHOTOS/GETTY
Æstir aðdáendur hjartaknúsarans
Justins Bieber héldu nýlega fyrir
honum vöku er hann gisti á Hard
Day‘s Night-hótelinu í Liverpool.
Hundruð aðdáenda höfðu safnast
saman fyrir utan hótelið. Lögregl-
an ráðlagði honum að fara ekki út
á svalir hótelherbergisins vegna
ótta við að óeirðir brytust út. Just-
in bað aðdáendur sína í gegnum
samskiptavefinn Twitter að hafa
ekki svona hátt og leyfa
sér að hvílast
fyrir tónleikana
um kvöldið. - hh
Héldu vöku
fyrir Bieber
SVEFNLAUS
BIEBER Hundruð
aðdáenda
héldu vöku fyrir
honum þegar hann
dvaldi í Liverpool fyrir
skömmu.