Fréttablaðið - 14.12.2012, Síða 82
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 62
TÓNLIST ★★★ ★★
Í huganum heim
Magni
SENA
Magni Ásgeirsson er löngu lands-
þekktur tónlistarmaður. Lengst af
starfaði hann með hljómsveitinni
Á móti sól, auk þess sem hann sló
í gegn í raunveruleikaþættinum
Rockstar: Supernova. Í huganum
heim er önnur sólóskífa Magna. Á
henni er að finna 11 lög sem flest
eru frumsamin af þeim Magna og
Vigni Snæ Vigfússyni, sem var
lengi kenndur við hljómsveitina
Írafár.
Magni hefur löngum sýnt að
hann er metnaðarfullur tónlistar-
maður sem hefur fyrirtaks þekk-
ingu á tónlistarsögu undanfar-
inna 45 ára eða svo. Það vita þeir
sem hafa séð Magna spila sem
trúbador. Á þessari plötu reyn-
ir Magni að leggja þessa kunn-
áttu, allt sitt vopnabúr, á borðið.
Hann sækir mikið til 7. og 8. ára-
tugs síðustu aldar, þá sérstaklega
til sveita rokks í ætt við Crosby,
Stills, Nash og Young. Frábærar
raddanir í laginu „Lífið“ bera vott
um það. Magni sækir einnig tals-
vert í arf bandarískra rokkhljóm-
sveita frá 10. áratugnum og stund-
um má greina trommutakta í ætt
við keltneskt þjóðlagarokk (Það
grær ekkert án þín). Hinn tilfinn-
ingaþrungni Eurovision-slagari
„Hugarró“ fær að fljóta með á plöt-
una, auk þess sem lagið „Valsinn“
gæti vel átt heima í undankeppni
Eurovision.
Textarnir eru mjög persónu-
legir, en þeir eru flestir samdir af
Magna og Ásgrími Inga Arngríms-
syni. Magni syngur um það sem er
honum kært, um heimaslóðirnar,
um ástina og lífið… það má jafn-
vel greina smá Bill Withers-takta í
fallegu lagi um sonarást (Ásberg).
Heilt yfir er Magni ef til vill að
berjast á of mörgum vígstöðvum
á plötunni, sem á þó marga góða
spretti. Það væri til að mynda
gaman að fá heilt verk í anda
sveita rokks frá Magna, en þar nær
hann helst flugi á þessari plötu.
Björn Teitsson
NIÐURSTAÐA: Ágætis sólóplata
frá Magna sem hefði þó mátt hafa
þrengri fókus.
Vopnabúrið á borðið
Í HUGANUM HEIM „Magni syngur um það sem er honum kært, um heimaslóðirnar,
um ástina og lífið… “ FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Skrautleg
tískusýning
Rauði krossinn hélt í samvinnu við Sow Icelandic
Creation tískusýningu á miðvikudagskvöldið á Bar
46. Þar var sýndur fatnaður úr fatasöfnun Rauða
krossins í bland við fatnað eft ir íslenska hönnuði og
úr íslenskum „vintage“-verslunum. Fatnaðurinn var
síðan boðinn upp, en uppboðshaldari var Bjarndís
Helga Tómasdóttir og sáu Kanilsnældur um að spila
undir sýningunni. STUÐ Mikið stuð var á tískusýningunni.
FLOTTAR Þessar tvær biðu spenntar eftir að sýningin hæfist.
BROSMILDAR Þessar vinkonur brostu til ljósmyndara.
SÝNINGIN Fatnaðurinn var sambland
af úrvali Rauða krossins, íslenskra
hönnuða og „vintage“-verslana.
GRANDSKOÐAÐ Gestir tóku fatnaðinn
út.
MARGIR GESTIR Fjölmargir lögðu leið sína á sína á tískusýninguna.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Ég hef ágætis reynslu af jóla-
útgáfunni, hún er geðveiki en
skemmtileg engu að síður,“ segir
Bergur Ebbi Benediktsson, með-
limur í uppistandshópnum Mið-
Íslandi, en fyrsti sjónvarpsþáttur
þeirra félaga er nú kominn út á
DVD.
Af því tilefni hefur hópurinn
tekið sig til ásamt félögum sínum
í gríni, þeim Steinda jr. og Hug-
leiki Dagssyni. Þeir taka einnig
þátt í jólaflóðinu í ár, Steindi jr.
með þriðju seríuna af Steindanum
okkar og Hugleikur með bækurn-
ar Opinberun og Enn fleiri íslensk
dægurlög.
Bergur segir þá hafa ákveð-
ið að halda allsherjar útgáfu og
gríngleði, enda séu þeir tengdir
ákveðnum böndum. „Við erum
svolítið eins og ein stór fjölskylda.
Tengjumst grínböndum,“ segir
Bergur Ebbi og uppljóstrar að
upphaflega hafi Steindi jr. átt að
vera hluti af Mið-Íslandshópnum.
„Það var planið að hann væri með
okkur á fyrsta uppistandskvöld-
inu en hann mætti ekki. Svo meik-
aði hann það bara á eigin vegum.“
Uppskeruhátíðin svokallaða fer
fram á Kex Hosteli þann 19. des-
ember og hefst klukkan 20.
Hugleikur sýnir myndir úr bók-
unum á skyggnum og Mið-Ísland-
hópurinn og Steindi jr. verða með
uppistand, ásamt því að sýna áður
óbirt atriði úr sjónvarpsþáttunum
og fara yfir vinnuferlið í kringum
þá. Bergur Ebbi lofar miklu stuði,
gríni og glensi. „Svo verður líka
spurningakeppni með grínþema,
en ég get lofað því að vinningarn-
ir eru stórkostlegir.“
- áp
Tengdir sterkum grínböndum
Mið-Íslandshópurinn, Steindi jr. og Hugleikur Dagsson standa fyrir allsherjar
grínútgáfugleði í næstu viku. Allir láta til sín taka í jólafl óðinu í ár, Steindi jr. og
Mið-Ísland með sjónvarpsþætti sína á DVD og Hugleikur með tvær bækur.
EINS OG EIN STÓR FJÖLSKYLDA Halldór Halldórsson, Magnús Leifsson, Jóhann Alfreð, Hugleikur Dagsson, Ari Eldjárn, Bent,
Bergur Ebbi og Steindi jr. eru svo sannarlega komnir í jólaskap. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM