Fréttablaðið - 14.12.2012, Side 94
14. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 74
Hljómsveitin Of Monsters and Men
er að láta útbúa fyrir sig æfinga-
rými í húsinu þar sem Fjölbrauta-
skóli Garðabæjar var áður til húsa.
Rýmið ætlar hljómsveitin að nota
til að semja lög á sína næstu plötu.
Framkvæmdir hafa staðið yfir í
húsinu að undanförnu til að gera
allt klárt fyrir hljómsveitina.
Aðspurð segir umboðsmaðurinn
Heather Kolker að ekkert hljóð-
ver verði í húsnæðinu. „Þau hafa
ekki efni á því að byggja sitt eigið
hljóðver en auðvitað dreymir þau
um það einn góðan veðurdag. Þau
geta ekki gert það alveg strax,“
sagði hún.
Of Monsters and Men er þessa
dagana á umfangsmikilli tón-
leikaferð um Bandaríkin. Eins og
kunnugt er spilaði sveitin í kvöld-
þætti Jay Leno á sjónvarpsstöðinni
NBC í annað sinn á þessu ári fyrir
skömmu þar sem hún flutti lagið
Mountain Sound af plötu sinni
My Head Is an Animal sem hefur
slegið rækilega í gegn um heim
allan. Um fjórar milljónir horfa á
Jay Leno að jafnaði og því er um
geysilega mikla kynningu að ræða
fyrir hljómsveitina, sem kemur
svo heim um jólin og heldur tvenna
tónleika á sínum „gamla heima-
velli“ Faktorý í byrjun janúar.
Tónleikaferðin um heiminn
heldur svo áfram af fullum krafti
á næsta ári þar sem ferðast verð-
ur út um allar trissur, þar á meðal
til Japans, Ástralíu og Evrópu.
Sveitin er þegar búin að bóka sig á
fjölda tónlistarhátíða næsta sumar,
þar á meðal á T in the Park í Skot-
landi, Lollapalooza í Brasilíu og
Oya í Noregi. Einnig spilar hljóm-
sveitin á hátíðinni Rock-A-Field í
Lúxemborg þar sem rokkararnir
í Queens of the Stone Age verða
aðalnúmerið. Eins og áður hefur
verið greint frá mun Mugison hita
upp fyrir Of Monsters and Men á
væntanlegri tónleikaferð um Evr-
ópu í febrúar og mars. Líklega
hefur hann með í för hljóðfærið
sitt Mirstrument sem hann ætlar
einmitt að nota á Sónar-hátíðinni í
Hörpu í febrúar.
freyr@frettabladid.is
Æfa í gamalli fj ölbraut
Of Monsters and Men hreiðrar um sig í gamla Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
HJÁ JAY LENO Hljómsveitin Of Monsters and Men ætlar að semja lög á næstu plötu sína í Garðabæ. NORCIPHOTOS/GETTY
„Í kvöld ætla ég að hafa það
virkilega gott með fjölskyldunni. Á
morgun verð ég aðallega í vinnu en
á sunnudag ætlum við fjölskyldan
niður í miðbæ að fá okkur heitt
kakó, skoða í búðarglugga og fá
jólastemninguna beint í æð.“
Sigríður Sunneva Vigfúsdóttir hönnuður.
Sunneva framleiðir vörur sem eru prjónaðar
úr mokkaskinni.
HELGIN
Hljómborðsleikarinn Steingrímur Karl Teague úr hljóm-
sveitinni Moses Hightower hlaut mikla eldskírn þegar
hann spilaði með Of Monsters and Men í kvöldþætti Jay
Leno á dögunum. Steingrímur gekk til liðs við sveitina á
tónleikaferð hennar um Bandaríkin eftir að hljómborðs-
leikarinn Árni Guðjónsson sagði óvænt skilið við
sveitina og var nýbyrjaður að spila með henni þegar
hún steig á svið í þættinum. Um fjórar milljónir
manna horfa daglega á Jay Leno og því hafa
taugar Steingríms vafalítið verið þandar til hins
ítrasta þegar upptökuvélarnar byrjuðu að rúlla.
Eldskírn í kvöldþætti Jay Leno
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
NÝR VEISLUBAKKI
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
Steikt Peking önd með
Peking sósu, gúrkum,
blaðlauk og salatblöndu
í mjúkri tortilla köku.
eða á www.somi.is
Frí heimsending*
Pantaðu í síma
PRÓFAÐUEITTHVAÐNÝTT!
30 bitar
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
TORTILLA
OSTABAKKI
FIMM ÚTVARPS-
STÖÐVAR Í BEINNI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
„Ég hef áður gert tónlistina fyrir
tvær kvikmyndir í fullri lengd en
þessar eru tvímælalaust stærri,“
segir tónlistarmaðurinn Biggi
Hilmars.
Biggi er staddur í Glasgow
þessa dagana að semja tónlist
við bresku kvikmyndina My
Brother The Ark Raider ásamt
félaga sínum Scott Twynholm.
„Við Scott erum búnir að sitja við
síðustu þrjá daga að leika okkur
og spinna af fingrum fram. Við
blöndum saman alls kyns ólíkum
hljóðfærum og reynum þannig að
túlka þær blendnu en sterku til-
finningar sem eru í myndinni,“
segir Biggi og nefnir sem dæmi
að þeir hafi dregið fram hörpu,
banjó, gítar og píanó.
Nýlega lauk Biggi við að
semja tónlist fyrir aðra mynd,
Brash Young Turks, sem er hans
stærsta mynd hingað til og leik-
stýrt af bræðrunum Ash og
Naeem Mahmood. „Ég reikna
alveg með að sú mynd komi í bíó-
hús á Íslandi snemma á næsta
ári,“ segir Biggi. Hann er nýlega
fluttur aftur heim til Íslands eftir
að hafa verið búsettur í Bretlandi
síðustu sex ár. Hann fer þó út
reglulega í alls kyns verkefni eins
og þetta, auk þess sem hann reyn-
ir að taka verkefni með sér heim.
„Ég var að vinna hjá Universal
í London og var þar aðallega að
semja fyrir auglýsingar eða stutt-
ar kvikmyndir. Þetta er því öðru-
vísi en það sem ég hef verið að
gera. Það er meira frelsi í þessu
og ég fæ að gera þetta eftir til-
finningu. Það er ekkert of ákveð-
ið og það er alveg frábært,“ segir
Biggi. - trs
Semur tónlist fyrir tvær breskar kvikmyndir
Tónlistarmaðurinn Biggi Hilmars blandar saman ólíkum hljóðfærum í sínu viðamesta verkefni hingað til.
NÝFLUTTUR HEIM Þrátt fyrir að vera
nýfluttur aftur heim á Frón eftir sex ár í
Bretlandi ferðast Biggi samt mikið utan
til að vinna.
„Mér fannst það svo fallegt sem
þeir eru að gera þarna úti að mig
langaði að setja upp kvöld í þeirra
anda hér,“ segir Leifur Kolbeins-
son, eigandi Kolabrautarinnar.
Andrew Parkinsson, yfirkokk-
ur á veitingastaðnum Fifteen í
London, er væntanlegur hingað
til lands í janúar ásamt fríðu föru-
neyti. Staðurinn er í eigu sjón-
varpskokksins Jamies Oliver.
Jamie, sem stofnaði hann árið 2002
í tengslum við verkefni sem snýst
um að hjálpa ungu fólki í erfið-
leikum. „Hann tekur krakka inn á
veitingastaðinn og kennir þeim og
hjálpar. Svo fer allur ágóði Fifteen
í styrktarsjóð til að hjálpa ungu
fólki í erfiðum aðstæðum,“ segir
Leifur.
Styrktarkvöldið verður haldið á
Kolabrautinni 19.janúar. Aðgangs-
eyrir með mat og víni er 15.000
krónur og rennur hann óskertur í
unglingastarf SÁÁ. Gallerí 8 gefur
einnig listaverk á hljótt uppboð til
styrktar málefninu og öll vinna
kvöldsins og hráefnið fyrir hana
er gefið. Andrew og félagar annast
eldamennskuna en kokkar Kola-
brautarinnar verða þeim til aðstoð-
ar. „Ég skræli það sem þeir segja
mér að skræla,“ segir Leifur og
hlær. Miðasala hefst í næstu viku
og verður hægt að nálgast allar
upplýsingar á Kolabrautinni.
Elda og gleðjast til styrktar SÁÁ
Yfi rkokkur veitingastaðar Jamies Oliver í London eldar fyrir landann.
GEFUR TIL BAKA Árið 2002 byrjaði
Jamie Oliver að gefa til baka til sam-
félagsins með stofnun veitingastaðarins
Fifteen og sjóðsins til að styrkja og
aðstoða ungt fólk í vandræðum.