Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.07.2012, Page 2

Fréttatíminn - 06.07.2012, Page 2
R íflega 35 milljóna króna tap var á rekstri skíðasvæða höfuðborgarsvæðsins fyrstu fjóra mánuði ársins. Rekstrartekjur þess námu tæpum 107,5 milljónum króna en gjöldin hins vegar tæpum 143 milljónum. Bæjarráð Kópa­ vogsbæjar lýsir áhyggjum sínum af rekstrartapi skíðasvæðanna og hefur falið bæjarstjóra að taka málið upp í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuð­ borgarsvæðinu, SSH. Ekki náðist í forsvarsmenn skíða­ svæðisins en í viðtali við Morgun­ blaðið í apríl sagði Magnús Árnason, framkvæmdastjóri þess, að þrátt fyr­ ir að skíðasvæðið hefði verið opið í 64 daga, sem þætti gott, hafi talsvert færri sótt í fjöllin nú en fyrir þremur til fjórum árum vegna veðurs. Hann sagði 46 þúsund manns hafa sótt svæðið heim í vetur, en árin 2008 til 2009 hafi á milli 85 og 90 þúsund komið á ári. Fyrstu þrjá mánuði ársins var tapið rúmar 28 milljónir króna og það átti því aðeins eftir að aukast þegar á leið. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, segir þessa niður­ stöðu langt undir áætlunum. „Áætl­ anagerðin er áhyggjuefni,“ segir hann. „Hins vegar ef litið er til út­ komuspárinnar er reiknað með því að afkoman batni til muna og heildar­ niðurstaðan verði sú að tapið nemi 8,7 miljónum króna yfir árið. En í ljósi þeirra mánaða sem þegar eru liðnir óttumst við að þessi útkomuspá komi ekki til með að ganga eftir. Þá er hætt við að það séu engin önnur úrræði til taks en að leita í vasa skattgreiðenda,“ segir hann. „Ég hef óskað eftir því að þetta verði tekið upp innan SSH og að menn fari yfir málið og ræði það hvernig eigi að bregðast við þessu. Ég vil ekki gefa út yfirlýs­ ingu varðandi hvernig það eigi að gera að svo stöddu,“ segir Ármann ennfremur. Spurður um hvort rétt sé að halda úti skíðasvæð­ unum, svarar hann: „Við sveitarstjórnarmenn þurf­ um raunhæfar áætlanir þannig að við vitum út frá hverju við göngum,“ segir hann. „Ég tel að við eigum að halda úti skíðasvæði á höfuðborgarsvæðinu.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is  Skíði ÁhyggjuR af RekStRaRtapi Tugmilljóna tap af skíðasvæðunum Bæjarráð Kópavogsbæjar lýsir yfir áhyggjum sínum af rekstrartapi skíðasvæða höfuðborgar- svæðisins og hefur falið Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra að taka málið upp innan sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins. Hann segist óttast að rekstrarútkomuspá gangi ekki eftir og að tapið lendi á skattgreiðendum. Ármann Kr. Ólafs- son, bæjarstjóri. „Ungt fólk og fólk í vaktavinnu verslar á nótt­ unni og ætlum við því að gera tilraun með að bjóða upp á pizzur allan sólarhringinn í sumar,“ segir Magnús Hafliðason, rekstrar­ og markaðsstjóri Domino‘s á Íslandi. Dom­ inos verður með opið allan sólarhringinn á útsölustað sínum í Skeifunni. Ekki verður þó boðið upp á heimsendingu. „Æ fleiri verslanir og þjónustufyrirtæki eru með opið allan sólarhringinn og virðist það ganga vel. Við ætlum að prófa þetta í sumar þegar fólk er kannski meira vakandi fram á nótt,“ segir Magnús. Andrés Magnússon, formaður Samtaka verslunar og þjónustu, er hlynntur þessari þróun. „Við höfum lagt áherslu á frelsi á öll­ um sviðum og er afgreiðslutími verslana og þjónustufyrirtækja eitt af því sem við höfum barist fyrir,“ segir hann. Aðspurður segir hann að samkvæmt upp­ lýsingum frá þeim fyrirtækjum sem eru með opið allan sólarhringinn er það einkum ungt fólkið að verslar fram yfir miðnætti. „Síðan er rólegt til fjögur eða fimm en þó nokkuð af fólki sem vinnur vaktavinnu virð­ ist vilja nýta sér að geta verslað á nóttunni,“ segir Andrés. Viðskiptavinir Dominos geta kjamsað á pizzum allan sólarhringinn í sumar.  VeRSlun SólaRhRingSopnun hjÁ DominoS í SumaR Selja pizzur allan sólarhringinn Svavari bauðst skipsrúm Í sumarfríi, fæðingarorlofi og að gera upp sögulegar kosningarnar eftir síðustu helgi; þessi er staða þeirra Þóru Arnórsdóttur forsetaframbjóðanda og Svavars Halldórs- sonar eiginmanns hennar. Ummæli Þóru skömmu eftir kosningar, þegar hún sagði í léttu gríni að hún leitaði nú eftir plássi fyrir Svavar á sjó til að rétta heimilisbókhaldið af, vöktu athygli. Ummælin voru þó ekki meira úr vegi en svo að Svavari hefur boðist skipsrúmsráðning. „Hann spurði hvort ég væri vanur en ég náði því ekki hvaðan hann hringdi,“ sagði Svavar sem hafði nýverið slitið símtali við ónefndan skipstjóra þegar Fréttatíminn náði tali af honum á mánudag. Þótt stuðningsmenn Þóru hafi lagt út fyrir útgjöldunum í kringum forsetaframboðið viðurkennir Svavar að þau hafi síðustu vikurnar ekki haft svigrúm til að leita eftir besta verðinu í innkaupum til heimilisins hverju sinni. - gag Guðmundur Rúnar Árnason, fyrr­ um bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, verður á bæjarstjóralaunum næstu þrjá mánuði, en bæjarstjóraskipti urðu nú á dögunum. Þá tók Guð­ rún Ágústa Guðmundsdóttir við keflinu. „Stundum er gott að vera forsjáll í pólitík,“ segir Valdimar Svavars­ son oddviti Sjálfstæðismanna og minnihlutans í bænum. Fyrir til­ stuðlan þeirra hafi verið ákveð­ ið að þau Guðmundur og Guðrún skiptu á milli sín biðlaununum: Í stað þess að fá sex mánaða laun að loknu starfi fái þau hvort fyrir sig þrjá mánuði. „Þannig að þótt þau séu bæði á bæjarstjóralaunum núna verður kostnaðurinn fyrir bæ­ inn ekki meiri en ella þegar uppi er staðið,“ segir hann. Bæjarstjóraskiptin eru hluti af samkomulagi sem meirihluti Sam­ fylkingar og Vinstri grænna í Hafn­ arfirði gerðu í upphafi kjörtímabils­ ins. Guðrún er fyrst kvenna í 104 ára kaupstaðarsögu Hafnarfjarð­ arbæjar til að gegna stöðu bæjar­ stjóra. ­ gag Guðrún tók við taumunum í Hafnarfirði á dögunum af Guðmundi. Rúm 150 af 500 eintökum ljóðabókarinnar Úr fjötrum til frelsis hafa selst á síðustu þremur vikum. Bókin er skrifuð og unnin frá grunni til enda af sextán ein- stæðum mæðrum sem hafa farið útaf beinu brautinni, staðið á krossgötum í lífinu og risið upp aftur – í átt til frelsis, eins og þær segja. Einstæðu mæðurnar stefna á útskriftarferð í Tívolí í Kaupmannahöfn fyrir ágóðann á bókinni, en þær luku eins og hálfs árs endurhæfingarnámi á vegum velferðarráðs Reykjavíkur, Tryggingastofnunar og Námsflokka Reykjavíkur fyrr í mánuðinum. „Við höfum allra breyst,“ sagði Matt- hildur Matthíasdóttir í viðtali við Fréttatímann fyrir hálfum mánuði. Kaupa má bókina með því að senda póst á netfangið kvennasmiðja14@gmail.com eða hringja í númerin 8952639 eða 8668137. Hún kostar 2.500 krónur. - gag Bæði á bæjarstjóralaunum í þrjá mánuði í stað sex Stefna ótrauðar til Kaupmannahafnar Fyrstu fyrirtækin fá Vakann frá Ferðamálastofu Fyrstu íslensku fyrirtækin hafa lokið inn- leiðingu á Vakanum frá Ferðamálastofu, nýju gæða- og umhverfiskerfi fyrir aðila í ferðaþjónustu. Fyrirtækin eru: Elding hvalaskoðun, Bílaleiga Akureyrar – Höldur, Ferðaskrifstofan Atlantik og Iceland Excursions Allrahanda. Gæðakerfið felur í sér viðameiri úttekt á starfsemi íslenskra fyrirtækja í ferðaþjónustu en áður hefur þekkst hér á landi. Kerfinu er ætlað að auka öryggi og efla gæði og fagmennsku á sviði ferðaþjónustu. Vakinn tekur meðal annars til aðbúnaðar, þjónustu við ferðamenn, þjálfun starfsfólks og umgengni við náttúruna. - jh Ekki hafa margir kosið að skíða í vondu veðri í vetur, en þrátt fyrir veðrið hefur skíðasvæðið verið opið. Tapið nemur tugmilljónum. Nordicphotos/Getty Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is 2 fréttir Helgin 6.-8. júlí 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.