Fréttatíminn - 06.07.2012, Blaðsíða 8
Þú velur
og draumasófinn þinn er klár
GERÐ (yfir 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (yfir 2000 tegundir)
Torino T2T
Sófinn þinn
útfærður eftir þínum óskum
Íslensk
framleiðsla
H Ú S G Ö G N
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík
Sími: 557 9510 | Vefsíða: www.patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga lokað
Sunnudaga lokað
Rín Hornsófi 2H2
Verð frá 285.900 kr
Roma sófasett 311
Verð frá 251.900 kr
Basel sófi
Verð frá 172.900 kr
Oslo stóll
Verð frá 52.900 kr
Áður 343.700 kr
Nú aðeins 274.960 kr
É
g held að menn hafi mis-
reiknað að andstæðing-
urinn hét Ólafur Ragnar
Grímsson. Það er ekki auð-
velt að undirbúa sig fyrir
slag við hann. Það er einfalda svarið,“
segir Atli Rúnar Halldórsson, spurður
um hvað hafi klikkað í kosningabaráttu
Þóru Arnórsdóttur, helsta keppinautar
Ólafs Ragnars um forsetaembættið?
Atli Rúnar er einn eigenda almanna-
tengslafyrirtækisins Athygli og fyrrum
fréttamaður.
Hann telur að vandræðagangurinn
á Ólafi meðan beðið var eftir afgerandi
svari um það hvort hann ætlaði fram
fimmta kjörtímabilið og áhugaleysið í
kringum hann þá hafi blindað Þóru og
hennar fólk strax í upphafi. „Og reyndar
aðra frambjóðendur líka.“ Atli Rúnar
hélt að þessi áhugi annarra yrði þess
valdandi að Ólafur pakkaði saman og
hætti, en svo reyndist ekki heldur þvert
á móti.
„Svo var þessi ótrúlegi dagur –
sunnudagur – þegar hann steig fram
og hóf kosningabaráttuna. Þá sá maður
fylgið næstum fljóta af götunum í áttina
til hans.“ Margir snérust á punktinum
frá vangaveltum sínum um að kjósa
Þóru. Þeir hafi ekki viljað kjósa „full-
trúa ríkisstjórnarinnar“!
Frakkur Ólafur, jafnvel ósvífinn
„Þetta var frökk, jafnvel ósvífin nálgun
hjá Ólafi. En þannig ganga hlutirnir
og hann tók þau bara í bælinu. Og það
í orðsins fyllstu merkingu: Hann tók
hana algjörlega á sæng.“ Þóra hafi ekki
getað svarað fyrir sig þar sem hún beið
fæðingarinnar og hlúði svo að barninu.
„Og stuðningsmennirnir voru í ein-
hverskonar fríi og biðu þess að barnið
kæmi og að þá fengi hún fjölmiðlaat-
hygli út á fæðinguna – sem mér fannst
alltaf undarleg hugsun. Þarna gerðist
eitthvað og þá var ekki aftur snúið,“
segir Atli Rúnar.
Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræð-
ingur, segir sigur Ólafs sýna hvað hann
sé vinsæll í hugum margra. Þeir hafi
kunnað að meta atbeina hans í Icesave-
deilunni og óttast óvissuna sem hann
talaði um að væri framundan. Þá hafi
hann náð að festa sig í hugum margra
sem mótvægi við óvinsæla ríkisstjórn
og Alþingi sem sé rúið trausti.
„Ósvífin nálgun“ Ólafs skilaði honum sigri
Þessi „ótrúlegi“ sunnudagur, þegar Ólafur Ragnar Grímsson steig fram hálfum mánuði áður en hann
sagðist ætla að hefja kosningabaráttuna – og Þóra beið eftir barninu – lagði grunninn að sigri hans.
Forsetinn komst á óstöðvandi flug meðan Þóra lá í nauðvörn nær alla kosningabaráttuna. Búið var að
spyrða hana saman við Samfylkinguna, henni vafðist tunga um tönn á opnum fundum, með maka sem
átti það til að grípa fram í fyrir henni og leiðrétta. Þannig lesa rýnendur Fréttatímans í kosningabarátt-
una. Meðbyrinn með framboði Þóru fjaraði út á sama tíma og Ólafur vann á. Fréttatíminn fer yfir hnökra
og sigra kosningabaráttunnar.
„Þar að auki er hann mjög klókur og
snjall stjórnmálamaður sem spilar á
strengi þjóðarinnar eins og hljóðfæri og
veit alveg hvað fólki líkar vel við að heyra.
Að síðustu naut hann þess að Þóra Arnórs-
dóttir, sem var eini keppinauturinn sem
gat velt honum af stalli, hafði ýmsar byrðir
að bera. Hún var tengd við hina óvinsælu
ríkisstjórn og fullyrt að hún styddi heils-
hugar – eins og hún hafði áður gert – að-
ild Íslands að Evrópusambandinu. Þetta
kynnti Ólafur undir,“ segir hann.
„Þannig að Þóra átti alltaf í vök að verj-
ast. Svo var það hitt að mörgum fannst
hún of ung. Einhverju máli skiptu svo
makarnir. Dorrit aflaði honum einhvers
fylgis en Svavar aflaði henni örugglega
einskis fylgis, þó að Þóra hafi ekki endi-
lega tapað fylgi vegna hans.“
Svavar greip fram í fyrir Þóru
Atli Rúnar telur að Þóra hafi tapað á um-
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Hún sem
persóna
höfðar til
fólks, en
hún náði
ekki að
segja neitt
sem höfð-
aði til fólks.
Forsetafram-
bjóðendurnir
bíða eftir fyrstu
tölum á RÚV.
Ólafur Ragnar
Grímsson, Andr-
ea J. Ólafsdóttir,
Ari Trausti
Guðmundsson,
Þóra Arnórs-
dóttir og Herdís
Þorgeirsdóttir.
Mynd/Ingó
Framhald á næstu opnu
8 fréttaskýring Helgin 6.-8. júlí 2012