Fréttatíminn - 06.07.2012, Blaðsíða 60
Plötudómar dr. gunna
matur fyrir tvo
Melchior
Lúmskt og
kenjótt
Þetta er önnur plata
Melchior eftir að
bandið raknaði úr rotinu
á nýrri öld. Platan er mun
sérviskulegri og seinteknari
en sú frá 2009 og nær
þeim listrænu kenjum
sem bandið sinnti á 8.
áratugnum. Kammerpopp
sveitarinnar er lúmskt í
sinni einföldu umgjörð og
lögin læðast að hlustand-
anum. Söngurinn er nánast
feimnislegur og undirspilið
er oftast hið sparlegasta.
Því er ennþá skemmtilegra
þegar vel er á smurt. Lögin
fjórtán eru fjölbreytt í lund
og eru merkt stað og stund.
Mörg skemmtileg og fersk
lög er hér að finna og ljóst
að Melchior er að blómstra
í fullorðinspoppinu.
Feathermagnetik
Kira Kira
Lífshættir
ánamaðka
Þessi plata er ekki eins
fjaðurmögnuð og titillinn
gefur til kynna, heldur
öll hin drungalegasta og
þungbúnasta. Kira Kira
(Kristín Björk Kristjánsdótt-
ir) hækkar nú erfiðleikastuð-
ullinn til muna miðað við
fyrri plötur sínar tvær, sem
innihéldu frekar auðmeltan-
legt dúllerí, og ber á borð
óárennilegt melódíuleysi,
sem er vandvirknislega flutt
af allskonar kláru fólki, bæði
íslensku og finnsku. Þetta
er erfið plata, hægfljótandi
og tyrfin, eins og samin
fyrir heimildarmynd um
lífshætti ánamaðka. Vottur
af léttleika og takti gerir
vart við sig undir lokin og er
það sannarlega vel til fundið
eftir allan alvarleikann.
Stutt í brosið
Grasasnarnir
Húsbílaköntrí
Steinar Berg var einn
helsti plötuútgefandi
landsins áratugum saman,
en snéri baki við poppinu
og fór að sinna ferða-
mennsku í Borgarfirð-
inum. Poppið togaði þó og
eftir að Steinar keypti sér
gítar árið 2008 þróuðust
málin þannig að nú er
komin fimm laga diskur
þar sem hann syngur
eigin texta við erlend lög í
köntrí og þjóðlagastíl, en
liprir hljóðfæraleikarar af
Vesturlandi leika undir.
Steinar syngur með bros
á vör og yfirbragðið er
allt hið sólríkasta. Þetta
er plata sem er eins og
sérhönnuð til að óma út
úr húsbíl, áhyggjulaus og
afslöppuð og ekki að fara
neitt sérstakt.
Þú grípur einfaldlega pakka af uppáhalds
Maryland kexinu þínu og gætir um leið eignast
glæsilegt grill.
ER
VINN
INGS
SKÍFA
Í PAK
KANU
M
ÞÍNU
M?
VINNUR ÞÚ GLÆSILEGT
WEBER GRILL?
2 x Weber E310
kr. 132.990
28 x Weber Smokey Joe
kr. 16.950
Í takt við tÍmann alexander Briem
Snyrtipinni en ekki spjátrungur
Alexander Briem er 22 ára Reykvíkingur. Hann er á leið út til London í leiklistarnám í Central
School of Speach and Drama. Í sumar er hann að vinna að tónlist, leika í myndböndum og
undirbúa sig fyrir námið.
Staðalbúnaður
Ég fer ekki út úr húsi án þess að grípa með mér
veski, lykla og símann. Svona eins og flestir
strákar. Þessa dagana hoppa ég oftast beint í
Doc Martens-skóna, þeir eru mjög praktískir.
Fötin versla ég í Spúútnik og Herrafata-
verslun Kormáks og Skjaldar. Svo er
ég hrifinn af Kron Kron og Farmers
Market. Íslendingar eru voða klárir í
hönnun núna. Annars versla ég þegar
ég fer til útlanda. Þá kemur karladeildin
í Zöru oft á óvart. Ég er nettur snyrti-
pinni þegar fatasmekkur er annars
vegar en ég myndi ekki kalla mig
spjátrung. Ég hef gaman af retró-inu.
Hugbúnaður
Bestu kaffihúsin eru Kaffismiðjan,
Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda
og Grái kötturinn. Þegar ég fer út að
skemmta mér fer ég á Nýlenduvöru-
verslun Hemma og Valda, Kaffibarinn,
Faktorý og Boston. Ég fer reglulega á
tónleika og í bíó. Mér finnst rosa gaman
að fara í Bíó Paradís en ég fer líka í Há-
skólabíó. Ég ferðast oftast um á tveimur
jafnfljótum og það mótar svolítið það
hvaða staði ég sæki. Svo fer ég auðvitað
mikið í leikhús og ekki bara stóru leik-
húsin. Norðurpóllinn, Iðnó og Tjarnarbíó...
leikhúsið er farið að dreifast út um allt og
það er frábært. Ég horfi líka á sjónvarp.
Uppáhaldsþættirnir eru Twin Peaks, Mad
Men, Girls, Breaking Bad, Sex and the City
(sem voru mjög skemmtilega skrifaðir),
Freaks and Geeks, Six Feet Under voru
frábærir og Eastbound and Down eru
alveg æðislegir.
Vélbúnaður
Ég er með iPhone 4 og er alveg límdur
við hann. Skemmtilegasta appið er Logo
Quiz þar sem maður á að reyna að þekkja
vörumerki. Þetta er algjör dægrastytting-
arparadís fyrir neytandann. Svo nota
ég Instagram. Mér finnst það rosa
þægilegt og ljósmyndirnar lúkka
vel. Ég á 787 vini á Facebook og er
nokkur virkur þar. Það er praktísk
leið til að halda utan um fólk. Hins
vegar hefur aldan ekki skolað mér
ennþá á Twitter.
Aukabúnaður
Ég er mjög hrifinn af indverskum og
mexíkóskum mat. Ég elda hins vegar
lítið sjálfur. Stjúppabbi minn er kokkur
og er alltaf að pína mig í að fá áhuga á
að eldamennsku. Það kemur kannski
síðar. Ég held að ég hafi komið til
svona 16-18 landa en ég ferðast ekkert
í sumar enda er ég að spara. Ég fer þó
á LungA. Helstu áhugamálin eru hús-
tónlist, listir, menning og heimspeki.
Og leiklistin, hún er líka stórt áhugamál
í lífi mínu. Þegar ég fer á bar panta ég
mér Classic, hvort sem það er Tuborg
eða Víking. Og stundum Branca Menta.
Ég nota rakakrem frá Gamla apótekinu,
það er algjörlega málið. Og Yves Saint
Laurent rakspíra sem tengdamamma
gaf mér.
Alexander Briem verslar gjarnan í Herrafata-
verslun Kormáks og Skjaldar. Hann kveðst þó
ekki vera spjátrungur. Ljósmynd/Hari
Undirbúðu fæturna fyrir ferðalagið
Þú færð Heelen fóta-og húðvörurnar í apótekum
www.portfarma.is
60 dægurmál Helgin 6.-8. júlí 2012