Fréttatíminn - 06.07.2012, Page 4
FERÐAGRILL
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Er frá Þýskalandi
12.90016.900
8.900
Helmingur áskriftartekna Spalar
af höfuðborgarsvæðinu
25%
Áskriftartekna
kemur af
akranesi
Júlí 2012
Spölur
OYSTER PERPETUAL MILGAUSS
Michelsen_255x50_G_0612.indd 1 01.06.12 07:22
Ferðir Guðni í Sunnu ætlar að ná í ríka kínverja
Dýrar ferðir fyrir fólk
með mikil peningaráð
ríkir kínverjar sækja í víðerni og óbyggðir í stað þess að vera „eins og sardínur í dós“. Guðni
Þórðarson, frumkvöðull íslenskra ferðamála, opnar ferða- og viðskiptamiðstöð í Hong kong og
stefnir að því að ná þessum auðugu ferðamönnum til Íslands og Grænlands frá og með næsta vori.
Guðni Þórðarson,
frumkvöðull
íslenskra ferða-
mála, stefnir
á nýjar lendur,
kína. Þar er helsti
ferðamarkaður
framtíðarinnar og
ríku fólki fjölgar
stöðugt. Hann vill
bjóða því víðerni
Íslands og Græn-
lands, óbyggðir,
fjöll og jökla. Ljós-
mynd Hari
í Kína fjölgar gríðarlega ríku fólki. Það þarf að bjóða því ferðir sem eru dýrar og vandaðar. Þetta er markaður sem þarf að taka mjög alvarlega,“
segir Guðni Þórðarson, frumkvöðull íslenskra ferða-
mála, Guðni í Sunnu, sem hóf afskipti af ferðamálum
á sjötta tug liðinnar aldar og kynnti meðal annars
sólarlönd fyrir Íslendingum. Hann lætur ekki sitja við
orðin tóm því Sunna mun opna fyrirtæki í Hong Kong
í haust til að selja stöndugum Kínverjum ferðir til Ís-
lands og annarra norrænna slóða frá og með næsta
vori.
„Kína verður stærsti markaður ferðamála í fram-
tíðinni,“ segir Guðni. „Talið er að eftir fá ár fari um
100 milljónir Kínverja til útlanda. Við þurfum ekki
að fá nema um eina milljón af þeim,“ bætir hann við
í léttum dúr. Guðni segir að stofna þurfi fyrirtæki í
Kína sem selji ferðir frá Kína og aftur þangað. Að því
er unnið. „Við völdum að vera í Hong Kong því þar er
alþjóðleg viðskiptamiðstöð, án tolla og skatta. Það
hefur ekkert breyst frá því að Bretar voru þarna enda
sömdu þeir við Kínverja, þegar þeir yfirtóku Hong
Kong, að þessi sérstaða innan Kínaveldis héldist í 50
ár. Starfsemi í Hong Kong hefur full starfsréttindi alls
staðar í Kína,“ segir Guðni.
Hann segir nafn komið á fyrirtækið í Hong Kong,
Iceland Travel and Trade Center. „Við munum fá ís-
lenska aðila sem hafa áhuga á viðskiptum við Kína til
að nota þjónustu okkar, ekki eingöngu í ferðamálum
en bjóðum ferðir frá Kína til Íslands og notum áætl-
unarflug til að byrja með frá næsta vori.
Þetta verða dýrar ferðir fyrir fólk sem hefur mikil
peningaráð, sem mikið er orðið um í Kína, og vill
fara í ferðir utan alfaraleiða, ekki vera bara í borgum
þótt upp á það verði boðið líka. Kínverjarnir sjálfir
segjast vera eins og sardínur í dós og þrá að komast í
slíkar ferðir. Áhersla verður lögð á Ísland sérstaklega
en sumar þessara ferða verða þannig að við tökum
farþegana frá Kína í áætlunarflugi til Evrópu þar sem
þeir munu stoppa á einum eða tveimur stöðum, síðan
til Íslands og svo áfram til Bandaríkjanna, New York.
Við notum því bara tvö flugfélög, kínverskt flugfélag
til Evrópu og Icelandair í allt hitt.
Svo verðum við með sérstakar heimskautaferðir
með óbyggðaferðum um Ísland og siglingu til Græn-
lands. Sú útgerð heitir Arctic Explorer. Boðið verður
upp á ferðir um fjöll og jökla á óbyggðum Íslands og
síðan siglingu með norsku skemmtiferðaskipi sem
verður hér næsta sumar, tíu daga ferðir með vestur-
strönd Grænlands. Farþegar okkar fara í þessar ferðir
og fá með þeim hætti raunverulegan heimskautaleið-
angur og fá skírteini um það að vera heimskautafarar.
Við erum því að bjóða nýja hluti á nýjum mörk-
uðum.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
icelandair með nær
70 prósent ferða
Þegar litið er til umferðar farþegaþotna
um Keflavíkurflugvöll sést að Ice-
landair ber þar höfuð og herðar yfir
önnur flugfélög, en nær 70 prósent af
ferðum frá landinu voru á vegum þess,
að því er fram kemur á vefnum túristi.
farþegaþotur hófu sig á loft tæplega tólf
hundruð sinnum frá Keflavíkurflugvelli í
júní. Hlutfall icelandair er 68,5 prósent.
iceland express er annað umsvifamesta
fyrirtækið í millilandaflugi með 9
prósent hlutdeild og WOW air er í þriðja
sæti með 6 prósent. airberlin og sas
eru stærstu erlendu félögin með 3,5 og
3 prósent. - jh
umferðin í Hvalfjarðargöngum dróst örlítið saman í júní
eða um 0,6 prósent. Það svarar til 1.200 bíla eða tæplega
fimmtungs meðalumferðar í göngunum á sólarhring í júní,
að því er fram kemur á heimasíðu spalar. Hafa ber í huga
að hvítasunnan var í maí í ár en í júní í fyrra, sem skekkir
samanburð talna nokkuð fyrir báða mánuði. „ef hvítasunnan
hefði líka verið í júní í ár má ætla að umferðartölur þess
mánaðar hefðu verið ögn hærri en tölur fyrir maímánuð hins
vegar ögn lægri,“ segir þar. spölur hefur tekið saman hvaðan
tekjur fyrirtækisins koma en þar kemur fram að tæplega
helmingur tekna spalar af sölu ferða í áskrift á rætur að rekja
til ökutækja sem skráð eru á höfuðborgarsvæðinu. tæplega
fjórðungur áskriftarteknanna kemur af Akranesi og ríflega 8
prósent úr Borgarbyggð.- jh
minni vöruskiptaafgangur
afgangur af vöruskiptum við útlönd í júní var
í minna lagi miðað við undanfarið ár, og mun
minni en hann var í júní í fyrra en vöruskiptin
voru hagstæð um rúma 4,8 milljarða króna í
mánuðinum. Á sama tíma í fyrra voru þau hag-
stæð um rúma 8,7 milljarða. minni afgangur
skýrist einkum af miklum vexti í innflutningi á
milli ára á sama tíma og útflutningur stendur
nánast í stað. Inn voru fluttar vörur fyrir 47
milljarða króna í júní sem er 9 prósenta aukn-
ing frá því í júní í fyrra, reiknað á föstu gengi.
Vöxturinn skýrist af 60 prósenta aukningu á
innflutningi flutningatækja sem nam 6,1 millj-
arði og 43 prósenta aukningu í eldsneytisinn-
flutningi sem nam 8,6 milljörðum. Útflutningur
í júní nam 51,8 milljörðum króna og er nánast
óbreyttur frá því í júní í fyrra. - jh
veður FöStudaGur lauGardaGur SunnudaGur
SuðveStlæg átt dálítil Súld v-til,
annarS bJartviðri. Hlýtt.
HöfuðborgarSvæðið: HæG suðVestlæG
átt, sKýjAð og smá sÚld.
SuðveStlæg átt og SkýJað v-til en bJartviðri
annarS Staðar. áfram Hlýtt.
HöfuðborgarSvæði : HæG suðVestlæG Átt
OG skýjað
SuðveStæg átt en SnýSt í norðauStlæga átt
nv-til. Þykknar upp n-til með rigningu.
HöfuðborgarSvæðið: VestlæG Átt OG skýjað
með köflum.
Hlýtt um allt land
Helgarveðrið einkennist af vestlægum
áttum, suðvestan 3-8 en 5-10 m/s um
landið NV-vert. dálítil súld um landið
vestanvert, en bjartviðri í öðrum lands-
hlutum. Á laugardag er svipuð vindátt,
en úrkomuminna vestanlands
og í heildina á litið heldur
hlýrra. Á sunnudag þykknar
upp n-til og fer að rigna og
snýst í norðaustlæga átt
um nV-vert landið.
Hiti á bilinu 13-18
stig, hlýjast s- og
sa-lands.
13
13 14
16
14 13
13 15 16
16
12
12 14
17
17
elín björk Jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
4 fréttir Helgin 6.-8. júlí 2012