Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.07.2012, Page 6

Fréttatíminn - 06.07.2012, Page 6
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@ frettatiminn.is G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s Njóttu þess að heyra betur með ósýnilegu heyrnartæki! Intigai eru fyrstu ósýnilegu heyrnartækin frá Oticon. Intigai eru sérsmíðuð og liggja svo djúpt í eyrnagöngunum að enginn mun sjá þau eða átta sig á því að þú sért með heyrnartæki. Intigai eru fullkomlega sjálfvirk og aðlaga sig að því hljóðumhverfi sem þú ert í hverju sinni. Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880 og fáðu heyrnartæki til prufu í vikutímaStærð á Intigai í samanburði við kaffibaunir „Þegar ný flugfélög hefja flug eða eldri bæta nýjum stöðum inn í leiðakerfi sitt er afar mikilvægt að ábyrgðarmenn ferðamála hjá Reykjavíkurborg séu vel vakandi fyrir þeim tækifærum sem í því felast. Jómfrúarferðir eða aðrar kynnisferðir í slíku samhengi eru þannig hentugar til að koma á tengslum við erlenda ferðaskipu- leggjendur og fjölmiðla á viðkomandi markaði,“ segir í minnisblaði Svanhildar Konráðsdóttur, sviðstjóra Menningar og ferða- málasviðs, sem lagt var fyrir borgarráð í síðustu viku vegna ferðar tveggja fulltrúa Höfuðborgarstofu í boðsferð Wow Air til Parísar í maí. Þar segir að Einar Örn Benediktsson borgarfulltrúi hafi ekki verið á þeirra vegum. Greinargerðin var lögð fyrir ráðið að beiðni fulltrúa Sjálfstæðis- flokks og Vinstri grænna, sem gagnrýndu fulltrúa borgarinnar fyrir að þiggja boðið. - gag  Boðsferðir Kynna þurfi Borgarfulltrúum reglur um ferðaheimildir Siðareglur borgarinnar óskýrar Innri endurskoðun Reykjavíkur- borgar sker ekki með skýrum hætti úr um það hvort Einar Örn Benediktsson, borg- arfulltrúi, hafi brotið siðareglur þegar hann þáði boðsferð með Wow Air til Parísar í maí. Niðurstaða þess er að kynna þurfi reglur um ferðaheimildir borgar- fulltrúa og starfsmanna betur og útfæra með skýrum hætti. Einnig er bent á nauðsyn þess að settur verði á fót vettvangur til að fjalla um möguleg brot á siðareglum. Innri endurskoðun telur ákvæði siðareglna um „óverulegar“ gjafir til fulltrúa og starfsmanna borgarinnar óskýrt og geta valdið óvissu um hvað megi þiggja og hvað ekki. Reglur um skráningu fjárhagslegra hags- muna kveði á um skyldu til skráninga ferða sem geti tengst setu í borgar- stjórn og því háð túlkun hverju sinni hvort skrá eigi ferðir eða ekki. Skráningarskyldu hafi verið fullnægt í tilfelli Einars Arnar. Vinstri grænir og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins óskuðu eftir úttektinni. Vildu vera vel vakandi gagnvart Wow Air Á ttu þroskahefta vini? Svo spyr móðir þrettán ára þroskahefts drengs sem alla tíð hefur gengið í sérskóla. Hún berst fyrir því að foreldrar fái val fyrir börnin sín um að geta sent þau í almennan skóla eða sérskóla. Ekki eigi að skikka þroska- heft börn í almennan skóla, þar sem þau mörg einangrist og líði ekki vel. „Það er verið að pína þau til þess að vera eins og aðrir,“ segir Ásta Krist- rún Ólafsdóttir. Kristín Guðmunds- dóttir, móðir átján ára pilts sem er þroskaskertur eftir erfið veikindi í Danmörku tveggja ára gamall, vill einnig eiga val: „Af hverju getum við ekki lært af reynslu heyrnalausra barna, sem fengu sinn eigin skóla eftir erfiða reynslu innan almennra skóla?“ Ásta og Kristín fylgjast með bar- áttu Ágústar Kristmanns og Maríu Bjargar Benediktsdóttur fyrir því að koma Inga Kristmanns inn í Kletta- skóla. Ingi er ellefu ára með þroska- hömlun og annað tveggja barna sem foreldrarnir vilja að gangi í sérskólann en hefur verið synjað vegna hertra inntökureglna frá 2008. Hann skuli ganga í almennan skóla. Foreldr- arnir hafa kært ákvörðun skólans til menntamálaráðuneytisins og stendur Ásta, ásamt fleirum, fyrir stuðningsyf- irlýsingu við drenginn sem send hefur verið menntamálaráðherra. Undir stuðningsyfirlýsinguna rita ásamt stjórn foreldrarfélags Kletta- skóla; stjórn íþróttafélags Aspar, stjórn Félags áhugafólks um Down- heilkennið og stjórn umsjónarfélags einhverfra, ýmsir þekktir einstak- lingar – þar á meðal Gerður Kristný, rithöfundur, Sigtryggur Baldursson, tónlistarmaður, Björgvin Halldórsson söngvari og Ólafur Darri Ólafsson leikari. Þá eru Dagmar Margrét Erics- dóttir, sem gerði myndina Sólskins- drengurinn, Margrét Pála Ólafs- dóttir, frömuður Hjallastefnunnar og Guðmundur Ármann Pétursson, framkvæmdastjóri Sólheima, einnig í hópnum. Sjálf á Ásta Kristrún þrettán ára þroskaheftan dreng, Harald, sem alla sína skólagöngu hefur gengið í Öskju- hlíðarskóla, sem nú heitir Klettaskóli. „Mér finnst ljótt, andstyggilegt, blinda og heimska auk þess að vera gerræðislegt og mikil forræðishyggja að pína þroskaheft börn í almennan skóla. Þar eru tækifærin fá og lítið val um að kynnast öðrum krökkum sem eru eins og þau. Sonur minn á kær- ustu, hann er skotinn í stelpu sem er skotin í honum. Ef hann væri í Vestur- bæjarskóla ætti hann líklegast enga vini,“ segir hún. Ásta Kristrún segir flest þroska- skert börn finna að þau eru öðruvísi en þau heilbrigðu. „Það gerir sonur minn,“ segir hún og ætlar það engum holt að búa við að upplifa stöðugt slíkan mun. Aðbúnaður barna með þroskahömlun í almennum skólum sé ekki fullnægjandi. Sonur Kristínar er nú í Fjölbrauta- skólanum í Ármúla eftir farsælan skólaferil í Öskjuhlíðarskóla. Hún seg- ir hann ekki kvarta. „En hann saknar sérskólans. Fjölbrautaskólinn er stórt og mikið bákn fyrir hann.“ Kristín segir að líkja megi skólagöngu hans og hans líkra í fjölbrautaskólanum við það að taka sjö ára barn úr grunnskóla og segja því að fara í framhaldsskóla, þó hvorki félagsleg geta sé ekki til staðar né forsendur til að takast á við námið – en lögin krefjast þessa. Ásta Kristrún segir að þær vildu gjarnan sjá opnari umræðu um mál- efni þroskaheftra. Staðan nú – að synja þeim sem búa við þroskhömluð- um um sérskólamenntun – beri merki fordóma. „Þetta eru fordómar og andúð á þroskahömlun og samfélagi þroskaheftra. „Þetta er eina sam- félagið, fyrir utan Hells Angels eða skiplagða glæpastarfsemi, sem þetta má ekki vera til,“ segir hún. „Við viljum ekki tipl á tánum og viljum sjá pólitískan rétttrúnað burt,“ segir hún. „Margir eru svo með okkur, skilja okkur og eru sammála en beita sér ekki. Svo virðist sem fólk telji þann sem hlynntur er því að barn fari í sérskóla vondan við fatlaða, að- skilnaðarsinna og fordómafullur. Það er fáránlegt,“ segir Ásta. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is  fréttaviðtal Þroskaheftir þvingaðir í almenna skóla Mæður þroskaheftra drengja segja að foreldrar þurfi að hafa val um hvort þeir sendi börn sín í almenna skóla eða sérskóla. Þær vilja opnari umræðu um málefni þeirra sem búa við þroskahömlun og segir önnur þeirra fordóma valda því að börnin séu pínd til að ganga í almenna skóla. Þær Ásta Kristrún og Kristín með syni sína Harald, þrettán ára, og Ragnar, átján ára. Ófullnægj- andi svör frá borginni Kæra foreldra Inga Krist- manns er nú í umsagnarferli hjá menntamálaráðu- neytinu. Ráðuneytið hefur krafið borgina svara og bíður þeirra áður en það kveður upp úrskurð sinn. Þrátt fyrir að Fréttatíminn hafi í tvo daga reynt að ná sambandi við Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóra Skóla- og frístundarsviðs borgarinnar, tókst það ekki og var hann á endanum sagður í fríi. Fréttatíminn beindi þá fjórum spurningum til upplýsingafulltrúa Skóla- og frístundasviðs í tölvu- pósti: 1. Tveimur börnum hefur verið synjað um inn- göngu í Klettaskóla síðustu tvö ár. Af hverju er ekki hægt að gera undanþágu frá inntökuskilyrðum fyrir þessi tvö börn, ef foreldrar þeirra vilja að þau gangi í sérskóla og telja þeim ekki vegna vel innan almennra grunnskóla? 2. Hvers vegna var inntökuskilyrðið í sér- skóla þrengt árið 2008? 3. Hefur aðstaða og líðan barna með þroskahömlun innan almennra grunnskóla verið rannsökuð? 4. Snýst afstaða borgarinnar um peninga? Svör fengust ekki en Fréttatímanum bent á nokkrar skýrslur á vef borgarinnar. - gag 6 fréttir Helgin 6.-8. júlí 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.