Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.07.2012, Side 10

Fréttatíminn - 06.07.2012, Side 10
ræðunni í kringum Svavar, en þó lík­ legast ekki þannig að tapið það hafi skipt sköpum. „En ef margt safnast saman hjálpar það alla vega ekki. Ég varð var við það á vinnustaðafund­ um að það fór til dæmis í taugarnar á mörgum; og þá sérstaklega konum, að hann var oft í að grípa fram í og leiðrétta hana. Það heyrði ég oftar en einu sinni, oftar en tvisvar. Þeim fannst þetta óþægilegt og svona smá­ atriði geta skipt máli.“ Önnur athygli sem beindist að Svavari var líkamsárás fyrri ára. Áverkavottorð móðurömmu þriggja dætra hans, bréf til Hannesar Hólm­ steins Gissurarsonar um hánótt, svo dæmi séu tekin, og fréttin um það þegar hann neitaði að taka í hönd Ástþórs Magnússonar sífram­ bjóðanda sem dæmdur var úr leik... Menn eru sammála um að Svavar hefði mátt halda sig meira til hlés. Atli Rúnar segir kosningabarátt­ una hafa verið háða á forsendum Ólafs. Taka megi dæmi af málsskots­ réttinum, sem hann hafi sjálfur vak­ ið máls á. Vangaveltum um hvenær ætti að beita honum, hvort og hvern­ ig. „Þetta var eins og eftir hans upp­ skrift. Hann er búinn að nota hann og það var engin tilviljun að hann notaði tíma sinn í umræðunum til að fjalla um hann,“ segir hann. „Hann iðaði í skinninu. Það var ótrúlegt að vera heima í stofu og horfa á þetta. Hann sýndi það enn einu sinni að það á aldrei að vanmeta Ólaf Ragnar Grímsson.“ Datt í fréttamannagírinn Þrátt fyrir að hafa haft margt gott fólk með sér og reynt, eins og Gauk Úlfarsson – sem stóð að baki kosn­ ingabaráttu Jóns Gnarr borgarstjóra og stuðning málsmetandi stjórn­ málamanna – kom allt fyrir ekki. Heimildamaður segir að innan her­ búða Þóru hafi togast á sjónarmið á stundum um hvort nýta ætti þennan stuðning eða ekki. Það hafi orðið yfirsterkara að gera það ekki og úr­ ræði sem þekkt eru úr pólitíkinni; eins og það einfalda ráð að tefla fram nafnalista stuðningsmanna, stuðn­ ingsmannayfirlýsingu, hafi komið fram of seint. Þá hafi Þóra glímt við ákveðið reynsluleysi. Hún hafi dottið í gír fréttamannsins að útskýra og spyrja í stað þess að svara. Það kunni hún. „Hún hefði unnið nánast hvern sem er – annan en Ólaf.“ Fólk nálægt Þóru hafi metið sem svo að aldur hennar hafi ekki farið eins illa í fólk eins og fyrst virtist ætla að verða en stuðningsmenn hennar hafi fundið á vinnustaðafundunum að mörgum hafi fundist sem svo nýbökuð móðir og með svo ung börn ætti að vilja vera heima. Fólk hafi sagt sem svo að það vildi ekki gera börnunum hennar þetta... „Hún sem persóna höfðar til fólks, en hún náði ekki að segja neitt sem höfðaði til fólks,“ seg­ ir viðmælandi Fréttatímans. Atli Rúnar bendir á að Þóra hafi ætlað að marka sér sérstöðu, en sér­ staðan hafi ekki náð að vera nógu skýr gagnvart kjósendum. „Hún hefði átt að taka Ólaf meira í gegn, berja meira á honum en ekki láta hann berja á sér,“ segir hann og finnst leðjuslag kosningabaráttunn­ ar hafa vantað. Sagnfræðingurinn Guðni segir þessa tilgátu einmitt vinsæla kenn­ ingu núna – að segja að hún hefði átt að vera hvassari; taka slaginn við Ólaf, deila við hann um stöðu forseta og hreinlega skora hann á hólm. „En mig grunar að hefði hún gert það hefðu margir álitsgjafar komið og sagt eins vissir í sinni sök að Þóra hefði átt að stilla sér upp sem sam­ einingartákn í anda Vigdísar því hún hafi ekkert í Ólaf í pólitískum leðju­ slag. Kannski er þetta því svona eft­ irá skýring,“ segir hann. Guðni er þó á því að margt í bar­ áttu beggja hefði mátt fara betur. „Mér fannst Ólafi takast verr upp þegar hann varð hvass og fór í skæt­ ing við fréttamenn, Þóru eða aðra forsetaframbjóðendur. Mér fannst hann frekar líklegur til að afla sér fylgist þegar hann var forsetalegur, talaði af virðingu um Þóru og með­ frambjóðendur sína, reyndi að líta í eigin barm og viðurkenna mistök sín og þess háttar,“ segir hann. „Með Þóru má náttúrlega segja að það voru vissir hlutir sem hennar kosningalið bar ekki ábyrgð á, en virkuðu öfugt á marga: Þórudagur, Þórubolir, Þórulög... Það var bragur yfir þessu sem mörgum fannst an­ kannalegur. Eftir á að hyggja held ég að þetta verði í síðasta sinn sem við sjáum svona forsetadaga, boli og þess háttar.“ Hin hefðu þurft kröftugri maskínur Guðni bætir við að þótt þau tvö séu aðalatriðin megi líka líta til þess að Ari Trausti Guðmundsson og Herdís Þorgeirsdóttir hafi goldið þess frá upphafi að hafa horfið í skuggann á turnunum tveimur. Þau geti þó ekki aðeins kennt öðrum um. „Herdís hóf kosningabaráttuna ekki vel. Það var of mikil áhersla á nám hennar og gráðuna og greinilegt að reynt var að breyta því þegar fram liðu stundir, en skaðinn var skeður,“ segir hann. „Ari Trausti náði aldrei því flugi sem þarf. Svona kosningabarátta þarf að vera massífari. Það þurfa fleiri að koma að. Það þarf fleiri sjálfboðaliða og baráttan þarf að vera umfangsmeiri til að ná árangri. Það þarf einfaldlega að vera meiri skriðþungi.“ Atli Rúnar bendir á að þótt Ólaf­ ur hafi misstigið sig víða á leiðinni hafi hann komist upp með það vegna daufra og bitlausra fjölmiðla. „Ég skal nefna eitt dæmi: Ólafur Ragnar velti upp sjálfur að eigin frumkvæði að sjávarútvegsmálin væru vel not­ hæf í þjóðaratkvæðagreiðslu. Síðan samþykkir Alþingi lögin um veiði­ gjald. Hann var aldrei spurður hvort hann ætlaði að skrifa undir lögin eða ekki?“ En þegar öllu er á botninn hvolft segir Atli Rúnar einfalda svarið þetta: „Það er auðveldara að vera góður spyrill í Kastljósi en svara spurningum. Með öðrum orðum: Mér fannst hún sem frambjóðandi, þegar á hana reyndi, ekki nógu sterk. Mér fannst henni oft vefjast tunga um höfuð! Hún er glæsileg kona og góður spyrill. Þetta var áber­ andi. Hún skólaðist þegar á leið en framan af baráttunni, og ég sá hana á fundum, fannst mér hún ekki standa sig nógu vel.“ Guðrún sér glatað tækifæri En þótt baráttunni sé lokið og Ólaf­ ur sitji nú sem fyrr á Bessastöðum er ekki svo að allt hafi fallið í ljúfa löð. Guðrún Ögmundsdóttir, fyrr­ um þingmaður Samfylkingarinnar, studdi Þóru þótt hún hafi ekki gert það opinberlega vegna áróðursins um að framboðið væri í boði flokks­ ins. „Mér finnst þjóðin ekki hafa átt­ að sig á því hvað gæti komið út úr þessu. Mér finnst hún hafa misst af tækifæri til að breyta í anda rann­ sóknarskýrslu Alþingis,“ segir hún. „Við erum kannski með svona mikla sjálfseyðingarhvöt og þá verður það bara að vera þannig. Þjóðin vill þetta og þá verðum við að taka því. Við lif­ um við það og getum það.“ Ólafur hafi sterkari maskínu: „Hann var með sitt örugga fylgi sem vatt upp á sig,“ segir hún. „Það sem mér fannst flottast við baráttu Þóru var að hún lét aldrei hafa sig út í neinn óþverragang eða neitt sem gat orkað tvímælis. Það þarf rosa­ lega sterk bein í það. Ég held að fólk átti sig ekki á því fyrr en eftir á hvað hún hafði sterk bein,“ segir hún. „Þetta er glæsileg útkoma fyrir glænýja manneskju sem fer gegn sitj­ andi forseta.“ Talar svo landanum líki Guðrún segir þjóðina nú strax fá smjörþefinn af því hvernig Ólafur starfi. Hann hafi sagt eitt í kosninga­ baráttunni en geri nú annað. „Það vissum við sem vildum ekki kjósa hann að hann myndi gera.“ Guðni segir að auðvitað óski menn forsetanum velfarnaðar. „Og Ólafi er ekki alls varnað. Hann er þraut­ reyndur og þurfi að verja hag Íslands á alþjóðavettvangi eru fáir eins harð­ ir í horn að taka, eins klókir og eins óskammfeilnir jafnvel eins og þarf í harðri milliríkjadeilu. Komi til þess að við þurfum að standa í ströngu vegna Icesave áfram, þá mun hann örugglega láta í sér heyra þannig að landanum líki.“ ÓDÝRASTI ÍSINN Í BÓNUS Á ÞRIÐJA HUNDRAÐ EURO SHOPPER VÖRUTEGUNDIR Í BOÐI 398 kr. 12 stk. 498 kr. 8 stk. 298 kr. 3 stk. Tveir þeirra sem helst voru áberandi og um leið umdeildastir í kosningabaráttunni. Ólafur Ragnar forseti og Svavar Halldórsson, eiginmaður Þóru Arnórsdóttur. Mynd/Ingó Þetta var frökk, jafn- vel ósvífin nálgun hjá Ólafi. En þannig ganga hlutirnir og hann tók þau bara í bælinu. Og það í orðsins fylgstu merk- ingu: Hann tók hana algjörlega á sæng. 10 fréttaskýring Helgin 6.-8. júlí 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.