Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.07.2012, Qupperneq 14

Fréttatíminn - 06.07.2012, Qupperneq 14
Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Caso vínkælar – FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • AKUREYRI ellingsen.is PIPA R\TBW A • SÍA • 1123 43 Það er enginn svikinn af útivistarfatnaðinum frá Mountain Hardwear. Veldu gæði. á Englandi 2005. Þar varð hann mjög óánægður. Honum fannst allir vondir við sig í vinnunni og það var eiginlega þar sem ofbeldið gagnvart mér byrjaði. Svo fluttum við til Íslands 2006 og vorum hér. Hann missti vinnuna í október 2008, en hann vann hjá Kaupþingi. Hann fór út í janúar 2009 og fékk vinnu hjá Legó. Og við í endaðan júní.“ Ráðlagt að flytja heim Þar urðu vatnaskil í sambandi þeirra. „Þegar ég ákvað að segja frá ofbeldinu hafði ég ekki ákveðið að fara frá honum. Þá hafði hann horfið í tvær vikur. Leikskólastjór- inn sá að eitthvað var að og spurði. Ég sagði henni frá ofbeldinu. Þá fékk ég félagsráðgjafa til mín og ræddi að auki við heimilislækni, en var samt ákveðin í að fara aftur til hans – ekki fara frá honum,“ segir hún og skilji ekki hvað hún hafi verið að hugsa. „Svo var mér ráðlagt árið 2010, af félagráðgjafa úti í Danmörku, að fara heim til Íslands sem ég gerði. Þá sá ég málið í öðru ljósi. Ég talaði við Kvennaathvarfið hér heima,“ segir hún. „Ég var að afla mér upplýsinga því ég fékk stöð- ugar hótanir frá manninum: Ef að þú kemur ekki núna læt ég dönsku lögregluna koma og sækja börnin og þú færð aldrei að sjá þau aftur. Ég var að skoða hvaða rétt ég hafði og hvað ég ætti að gera. Þá var talað við ráðherra og fullt af fólki,“ segir hún og undrast linkind í málinu. „Þá ráðlagði Bagi Guðbrands- son forstöðumaður Barnaverndar- stofu mér að drífa mig aftur út og klára málið. Sem ég trúði að væri hægt og var svo vitlaus að trúa. Þá var ekkert dómsmál hafið. En hann sagði að í Danmörku væri allt svo æðislegt að ég myndi hlæja að þessu öllu saman seinna meir. Þetta sagði hann fyrir framan systur mína og fyrir framan að- stoðarmann innanríkisráðherra. Það voru mörg vitni að því,“ segir hún þar sem hún situr nú eftir án dætra sinna. „Ég hefði viljað sjá Ögmund Jón- asson innanríkisráðherra banka í borðið fyrir þessi íslensku börn og segja: Hingað og ekki lengra, í stað þess að bíða og bíða. Mér þykir vænt um þennan mann sem hefur alltaf gefið sér tíma fyrir okkur, en það er eins og það sé ein- hver hræðsla. Það þarf einhver að taka á skarið og segja: Það verður rætt við þessi börn,“ segir hún og þau systkin segja þetta þeirra heitustu ósk sem ítrekað hefur verið hunsuð. Vilja sannleikann fram „Í mínum huga hefur ofbeldis- maður fengið hjálp við að fá börnin,“ segir Hjördís. „Yfirvöld vitna í Haag-samning um að senda eigi börnin tafarlaust til baka, en í síðasta lið hans stendur að ef að rökstudd ástæða er um andlegri og líkamlegri heilsu sé stefnt í hættu beri að víkja frá fyrri greinum hans. Það er búið að biðja um vernd fyrir þessi börn. Það er búið að biðja um að kyrrsetja þau bara til þess eins að fá klukkutíma sam- tal svo sannleikurinn komi í ljós. Það eru til áverkavottorð, sjúkra- skýrslur þegar dóttir mín var lögð inn á sjúkrahús. Það er enginn sem hlustar. Það er eins og enginn þori að gera neitt.“ Að sögn Hjör- dísar eru þetta skýrslur frá því að faðir stúlknanna fékk dæturnar um hverja helgi á síðasta ári eftir að hún fór með þær út í kjölfar hæsta- réttardómsins. Ragnheiður tekur undir og seg- ir: „Þetta mál er til skammar fyrir íslensk stjórnvöld.“ Stefán tekur við: „Mér finnst sem íslensk yfir- völd séu að lúffa fyrir þeim dönsku. Þau séu hrædd við þau dönsku og eru að fría sig allri ábyrgð. Þau vilja þvo hendur sínar af málinu.“ Stefán lýsir því að aðgerð lög- reglunnar á föstudag hafi verið eins og að vera lentur í miðri bíó- mynd. Tíu aðstandendur stúlkn- anna hafi verið mættir til að vera viðstaddir þegar yfirvöld komu til að fjarlægja þær frá móður sinni. Aldrei hafi þó staðið til að taka á móti og viðbúnaðurinn hafi komið flatt upp á þau. Hann hafi fylgst með málinu frá upphafi og hefur ávallt hvatt Hjördís til að fara rétta leið innan kerfisins. „Ég er með samviskubit yfir því að hafa hvatt hana til þess að fara eftir lögum þegar þau hafa ekki staðist. Maður hefði ekki getað trúað því að manneskju sem stígur út úr ofbeldissambandi yrði ekki hjálpað – sem við hvöttum hana til þess að gera því við trúðum því að þannig fólki væri hjálpað. Það er enginn að biðja um sérmeð- ferð. Við erum bara að biðja um að börnin njóti vafans og að það sé talað við þau,“ segir Stefán, bróðir Hjördísar. Nýjum gögnum hafnað Hjördís segir alla tíð litið framhjá nýjum gögnum í málinu en horft á málið út frá fyrri dómi, sem sé í raun búið að framfylgja með því að hún hafi aftur flutt út með börnin. „Ef allt hefði átt að vera rétt hefði hann átt að fara í annað afhending- armál við mig í héraðsdómi, þegar ég flutti heim í annað sinn, þar sem öll þessi nýju gögn yrði skoðuð,“ segir hún og vísar í tímann sem hann hafði börnin á síðasta ári. „Ég get ekki lýst tilfinningunni þegar kom í ljós að þær áttu að fara til föður síns. Þær áttu að fara á föstudegi og koma á mánudegi – hverja einustu helgi. Það var verið að refsa mér því ég hafði farið með þær heim til Íslands. Það var ekkert hlustað á börnin. Allur föstudagurinn fór í að tala við þær, gráta, segja þeim að vera sterkar og vera saman, halda utan um hver aðra og að þær vissu að mamma væri að hugsa um þær,“ segir hún. „Eins og heimilislæknir okkar lýsir: Þetta varð verra, verra, verra. Ég fór þrisvar með Emmu vegna áverka til heimilislæknis. Hann sendi tilkynningu til kommúnunn- ar. Kommúnan gerði ekkert. Ég fór þangað fimm sinnum og bað þær um að gera eitthvað. Mér var sagt að ef þær ættu að rannsaka málið þá myndi ofbeldismaðurinn þurfa að fá að vita það og þá yrði hann örugglega verri við stelpurnar,“ segir hún. Hún lýsir því að móðir hennar hafi sótt Emmu til hans þar sem hún hafi verið á leið fyrir danska réttinn í forræðismálinu. „Hún hringdi og sagði að ekki sé allt í lagi. Emma gráti viðstöðulaust. Þær fara inn á klósett lestar á leið heim og mamma tók hana úr á ofan og sá að barnið var með áverka á báðum höndum. Hún sendi mér mynd af því sem ég svo sýndi lög- fræðingnum mínum. Lögfræðing- ur minn bað dómarana um frest, því ný gögn séu komin fram í mál- inu sem verði að rannsaka. Dómar- arnir neituðu því,“ segir hún. „Mamma fór strax með börnin á slysavarðsstofuna, þar sem þetta var skoðað, lýst og ég fæ áverka- vottorð fyrir barnið. Ég talaði við heimislækni, hún hafði áhyggjur af vöðvabólgu og krónískum höfuð- verk Emmu, svo hún var lögð inn á sjúkrahús. Þar sagði Emma barna- lækni sína sögu. Barnalæknirinn sagði svo við mig: Ég hef verið barnalæknir í tuttugu ár og því miður er þetta þannig í Danmörku að ofbeldisfullir foreldrar mega hafa börnin sín hjá sér. Þegar hún sagði þetta var ég búin að ákveða að ef dæmt yrði mér í óhag að ég myndi fara heim til Íslands með börnin,“ segir hún og það gerði hún þegar dómurinn lá fyrir. Grétu og héldu í móður sína Hjördís gagnrýnir nú barna- verndaryfirvöld fyrir að horfa framhjá þessum gögnum. „Barna- verndaryfirvöld höfðu heimild til þess að kyrrsetja börnin og skoða málið. Því var hafnað. Formaður barnaverndarnefndar í Kópavogi hafði lofað að hann ætlaði að mæta ásamt fjórum öðrum í nefndinni á föstudaginn þegar börnin voru tek- in. Ef þetta yrði erfitt fyrir börnin ætlaði hann að stoppa þessa aðgerð – sem þeir hafa heimild til að gera. Hann mætti ekki. Hann hefur ekki gefið neina skýringu á því en hann mætti ekki,“ segir hún. Hjördís segir þennan föstudag, þegar dæturnar voru teknar af henni, hafa verið hræðilegan. „Þær grétu. Þær héldu í mig og það end- aði með því að lögreglumaður hélt mér niðri og reif af mér börnin. Þær fóru grátandi í burtu frá mér,“ segir hún. „Faðirinn þorði ekki að vera viðstaddur þessa aðgerð, því hann veit alveg að þegar hann birt- ist truflast þær af hræðslu. Hann lét lögfræðinginn mæta og vildi frekar að börnin væru í höndum ókunnugs fólks í tvær nætur, en svo kom hann í skjóli nætur og fékk þær,“ segir hún undrast að þrátt fyrir áhugaleysi á að rann- saka ásakanir hennar hafi staðan verið önnur þegar hann átti í hlut. „Lögmaður hans sendi inn kæru á hendur mér vegna þess að ég flutti frá Hornafirði með stelpurn- ar til Kópavogs. Kæran snerist um það að það væri ekki gott fyrir þær að flytja og að það þyrfti að kanna ástand barnanna. Kópavogsbær ákvað strax að taka viðtal við mig og börnin. Ég hugsaði: Ég hef ekk- ert að fela. Ég hugsa fullkomlega um þessi börn, þannig að auðvit- að fór ég með þau í viðtöl ef að á að kanna líðan þeirra. Þau fóru öll fjögur í viðtal hjá Barnaverndar- nefnd Kópavogs. Sonur minn sagði við mig: Mamma núna ætla ég að segja frá ofbeldinu og hvað þessi maður er búinn að gera okkur,“ lýsir hún. „Ég var ekki viðstödd þessi viðtöl en Emma segir mér að hún hefði verið spurð: Hver er heitasta óskin þín? Hún hafi svarað, það er að fá að búa í friði á Íslandi. Þá var hún spurð hvað væri það skemmtilegasta sem hún gerði og Emma svaraði: Það er að hlæja með mömmu minni, því mamma er besta vinkona mín.“ Nú berstur rödd Hjördísar. „Þetta voru konurnar sem rifu þær úr höndunum á mér á föstudagskvöld. Og ég sem hafði sagt við dætur mínar: Þetta eru konur sem ætla að hjálpa okkur. Verið duglegar og segið þeim sann- leikann, segið frá. Ég sagði við aðra þeirra: Þú veist að þú spurðir Emmu hver hennar heitasta ósk væri; manstu svarið við því? Hún sagði já, auðvitað veit ég það. Ég sagði þá: Þú veist að Sólon sonur minn sagði þér hvað þessi maður er búinn að gera börnunum? En samt voru þær teknar,“ segir hún og grætur. Veit ekki um dætur sínar Nú eru dæturnar úti í Danmörku en hvar veit Hjördís ekki. „Þar eiga þær sér engan málsvara,“ segir hún. Gætir þú farið út og hitt þær? „Ég veit ekki hver staða mín er. Ég veit það ekki.“ En getur þú haldið baráttunni áfram, eða ertu komin á endastöð? „Núna vinna lögfræðingar mínir á fullu. Enn veit ég voða lítið.“ Er ekkert sem segir að þú þurfir að vita hvar þær séu niðurkomnar? „Það hlýtur eiginlega að vera. Þegar ég hef tekið þær hingað til Íslands hef ég aldrei verið í felum með þær. Hann hefur alltaf haft símanúmerið mitt og getað haft samband. Tölvupóstfang sem hann hefur vitað, en hann hefur aldrei reynt að hafa samband við þær,“ fullyrðir Hjördís. En af hverju sækist hann þá eftir því að fá dæturnar? „Þetta er hefnd hans gagnvart mér. Hann var búinn að segja við mig að ef ég myndi segja fá ofbeldinu myndi hann taka af mér börnin. Ef honum væri ekki sama um þessi börn hefði hann ekki látið svona. Hann veit hvað þær eru glaðar á Íslandi. Hann hefði aldrei gert þetta svona ef þetta væri góður maður.“ Lögreglustjórinn á vettvangi þegar dæturnar voru teknar á föstudag (t.v.) og Hjördís með dætrunum þremur á góðri stund (t.h.). Elst er Emma, svo Mathilda og loks Mia. 14 viðtal Helgin 6.-8. júlí 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.