Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.07.2012, Síða 48

Fréttatíminn - 06.07.2012, Síða 48
48 bækur Helgin 6.-8. júlí 2012  RitdómuR Boðið vestuR Sumarhús með sundlaug, ný bók hollenska rithöf- undarins Hermans Koch, situr í efsta sæti kiljulistans á metsölulista Eymunds- son. Gagnrýnandi Frétta- tímatímans gaf henni fullt hús stiga, fimm stjörnur, í síðustu viku. vinsæll HollendinguR  RitdómuR má ekki elska þig J enny Downham er ensk leikkona sem hefur á fáum árum sent frá sér tvær skáldsögur sem hafa náð nokkurri hylli. Fyrsta verk hennar, Áður en ég dey, kom út í íslenskri þýðingu fyrir fjórum árum og var nærfærin og áhrifa- mikil frásögn í fyrstu persónu af ung- lingsstúlku sem haldin var banvænum sjúkdómi. Nú, réttum átján mánuðum eft- ir útkomu nýrrar skáldsögu, You against me, birtist okkur þýðing Nönnu B. Þórs- dóttur í kilju undir heitinu: Má ekki elska þig. Titillinn á íslensku er öllu þrengri merkingarlega en á frummálinu. Átökin í verkinu er lögð út frá fornu þema; ást í meinum og forboðnu sambandi unglinga af ólíkum stéttauppruna. En að baki þeim átökum eru stærri átök, tryggð, traust, samband foreldra og barna. Flétta sög- unnar nýju er vandlega hugsuð, skáld- konan hefur næman skilning á mannfólki í vanda og ræður yfir kunnáttu til að tjá hann í stóru og smáu. Systkinin Tom og Ellí voru rifin upp frá heimaslóðum sínum í London þegar faðir þeirra fasteignasalinn nýtti sér verðmun húseigna í borginni og ótilgreindri smá- borg á Suður-Englandi að því virðist. Tom á í vandræðum með að ná fótfestu í nýjum vinahóp. Ellí, sem er yngri, er einangruð. Í bæjarblokkunum býr Mikey ásamt systrum sínum, Karyn og Holli. Móðir þeirra er að basla ein, faðirinn er fjarri. Karyn er veik fyrir Tom og fer heim til hans í partí. Ellí er heima og verður vitni að því þegar Karyn ofurölvi á samræði við Tom. Daginn eftir kærir Karyn hann fyrir nauðgun. Báðar fjölskyldurnar mynda skjaldborg um sitt: Mikey finnur útrás fyrir óánægju sína og hyggur á hefndir, dúkkar upp í veislu sem haldin er á heimili Tom og Ellíar sakamanninum til stuðnings, þar hittir hann Ellí og þau eiga saman, fara að hittast og verða skotin. En þá eru málaferlin eftir yfir bróðurnum og allt verður flóknara. Hér er semsagt verið að kanna sálar- líf tveggja ungmenna náið, jafnframt stöðu foreldranna, yngri systra og fórnarlambsins. Heimilin, skólinn, vinnu- staður, gatan, borg og sveit notar Down til sviðsetningar á þessari örlagasögu þar sem örvæntingarfullar tilraunir for- eldra til að vernda börn sín í aðstæðum sem eru óyfirstíganlegar að því virðist taka sitt rúm að baki tilraunum Mikey og Ellíar til að komast að hinu sanna og rétta og um leið að finna blíðari tilfinningum sínum farveg. Lýsingin á þeirra sambandi er fallega unnin. Ekki síðri er persónu- lýsing geranda og fórnarlambs, Toms og Karynnar. Og að baki er sögusvið vel- stæðrar millistéttar úthverfanna og eymd þeirra sem læstir eru í faðmi velferðar- þjónustunnar – þau duldu stéttaátök sem einkenna samfélag Bretlandseyja eru hér grunnur sögunnar, óbifandi raunveru- leiki með sárum örlögum, ólíkt því sem viðgengst í tjáningu íslenskra höfunda sem halda kirfilega fyrir augun og vilja ekki sjá hið lagskipta samfélag hér á landi, nema litið sé til baka. Skáldsaga á borð við þessa ratar örugg- lega til margra lesenda. Frásögnin er línulaga, stokkið milli tveggja aðalsviða sem eru bundin við Mikey og Ellí, þeirra sjónarhorn er ráðandi í frásögninni, sakleysi þeirra og skyldurækni er fyrir- ferðarmikið þema í byggingu sögunnar, hér er varla að finna neikvæða persónu- lýsingu, nema ef vera skyldi lýsingin á föðurnum og vinkonu Karynnar, en þær persónur taka líka þróun, breytast í fram- gangi sögunnar. Hér er því í boði sann- færandi skáldsaga, vandlega hugsuð, prýðilega þýdd og snertir í senn á fallegu tilfinningalífi ungmenna og stórum háska sem ofbeldiskennt kynlíf getur leitt yfir fjölskyldur þar sem á endanum allir verða fórnarlömb. Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is Ný ljóðabók, Hugsjór, eftir Jóhann Hjálmarsson skáld og þýðanda er komin út á forlagi JPV. Hann hefur ekki sent frá sér safn ljóða nú í níu ár. Jóhann á að baki merkilegan feril, einn af brautryðjendum í formbyltingunni með Aungli í tímanum 1956. Hann á nú að baki átján frumsamdar ljóðabækur, fimm söfn ljóðaþýðinga og hefur að auki verið afkastamikill ritrýnir um langt skeið en ferill hans í opinberu bókmenntalífi spannar nú nær sextíu ár. Ljóð hans hafa farið víða í þýðingum á nær 30 tungumálum og einnig komið út í sérstökum bókum í fimm löndum. Í nýju bókinni birtir Jóhann tæplega sextíu ljóð í þremur köflum. Hugsjór Jóhanns Hjálmarssonar Útgáfufyrirtækið Undirheimar, krimmadeild Uppheima, hefur sent frá sér tvær nýjar þýðingar á nýlegum sakamálasögum. Drauga- verkir eftir Thomas Enger kemur í kjölfar sögunnar Skindauða sem kom út í fyrra. Halla Sverrisdóttir þýðir úr norsku. Blaðamaðurinn Henning fær skilaboð frá dæmdum morðingja sem kveðst vita hvað hafi gerst á dánardegi sonar Hennings. En fyrir þær upplýsingar þarf að greiða gjald. Tvíeykið Roslund og Hellström átti fyrir fáum misserum á lesborðum landsmanna söguna Ófreskjan, Nú kemur frá þeim saga af skuggahliðum Svíþjóðar í þýðingu Sigurðar Þórs Salvarssonar. Box 21. Ung vændiskona finnst illa leikin og líf hennar og ungs fíkils reynist samtvinnað. Tveir nýir norrænir krimmar Vakning virðist hafin í dreifðum byggð- um landsins um að matarmenning lið- inna tíma kunni að vera efniviður í ný- sköpun í matargerð. Þessa verður vart samfara því að einokun valdamikilla samsöluaðila er rofin og framleiðendur matvöru af sjó og landi sjá sér hag í að stíga af brautum samþjöppunar og taka upp vænlegri, verðmætari og vandaðri dreifingu, milliliðalítið til neytenda. Þá standa bara eftir hin fornu virki meðalmennskunnar í matseld, sjopp- urnar, bensínskúrarnir sem alla jafna eru drýgstir í sölu þriðja flokks fæðu úr verksmiðjum, virki sem verða að hverfa ef byggðir landsins eiga að eiga sér von í ferðamennsku. Hjónin Guðlaug og Karl hafa sett saman bók sem er í senn óður til nátt- uru á Vestfjörðum og þess sem hafa má úr þeirri matarkistu. Bókin er komin út á þremur tungumál- um, prýðilega skrýdd ljósmyndum af matföngum og fjarlægum stöðum sem stöðum í alfaraleið hinna vondu vega þar norðurfrá. Þau hafa dregið saman ýmsan eldri fróðleik en aðalatriði verksins eru upp- skriftir af hollum og góðum mat; fiski, fugli, kvikfén- aði, sjávarfangi og góðgæti úr jurtaríkinu. Bókinni er skipað niður eftir mánuðum; hefst á sólardeg- inum með sígildir pönnukökuuppskrift, svo tekur saltfiskurinn við þar er gerð grein fyrir sólþurrk- un og léttsöltun okkar daga og bætt í tveimur upp- skriftum, á eftir fylgja kaflar um hákarl og harðfisk og þannig feta þau sig áfram. Lesefni verksins er þannig í senn fróðleikur um matarmenningu okkar, endurnýjun hennar og uppskriftir. Og með þessari þrennu er brugðið upp árstíðarlýsingu á lífi þeirra fyrir vestan. Nú er verkið til marks um aukna vitund um mögu- leika, ávísun á betra mataræði en flestir búa við. Hindrun mín í því að njóta þessa er landfræðileg: Hvar fæ ég hamflettan skarf? Kerfil, hundasúru, fífla og bláskel get ég tínt, svo ekki sé talað um hvönn, skarkola og skötusel fæ ég víða, en bútung og þyrskling – hvar kemst ég yfir slíkt? Boðið vestur er fallega hugsuð bók og kærkom- in upprifjun um að bætt matarmenning er brýn, hún lýsir átakshugsun sem er nauðsynlegur þáttur í þeirri endurreisn Vestfjarða sem við að vestan viljum sjá og er því þakkarverð. -pbb Óður til Vestfjarða  má ekki elska þig Jenny Downham Þýðing: Nanna B. Þórsdóttir JPV 384 síður, 2012  Boðið vestur Guðlaug Jónsdóttir og Karl Kristján Ásgeirsson Ljósmyndir: Ágúst Atlason Uppheimar, 260 síður, 2012. Guðlaug og Karl bjóða fólki að kynn- ast matarmenningu Vestfjarða. Ást í meinum Jenny Downham. Flétta sög- unnar nýju er vandlega hugsuð, skáldkonan hefur næman skilning á mannfólki í vanda og ræður yfir kunnáttu til að tjá hann í stóru og smáu. H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t Grillpakkar fyrir hópa og samkvæmi Allt í grillmatinn www.noatun.is

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.