Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.07.2012, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 06.07.2012, Blaðsíða 54
Sýningar eru hafnar á bresku heimildar- myndinni Glastonbury the Movie (in Flas- hback) í Bíó Paradís. Hér er um að ræða endurgerð samnefndrar myndar sem fékk góðar viðtökur þegar hún kom út árið 1995. Robin Mahoney, einn stjórnenda mynd- arinnar, hefur nú endurunnið myndina frá grunni, bætt við efni úr hrátökum og tekið upp nýtt efni að hluta. Þá hefur öll tónlistin verið endurhljóðblönduð og þykir myndin lýsa stemningunni á þessari stærstu tón- listarhátíð heims árið 1993 ákaflega vel. Í myndinni koma meðal annars fram hljómsveitirnar og listamennirnir Charlie Creed-Miles and Dexter Fletcher, Co- Creators, Lemonheads, Omar, Stereo MCs, Spiritualized, The Verve, Chuck Prophet, McKoy, Porno For Pyros, Ozric Tentacles, Airto Moreira, Back to the Planet og The Orb. Endurútgáfan er glæný og var frumsýnd í London 29. júní 2012. 54 bíó Helgin 6.-8. júlí 2012 Lee er eina mann- eskjan sem kom að gerð þríleiks- ins sem auðnaðist að hitta höfundinn J.R.R. Tol- kien í eigin persónu.  FrumsýndAr Hjónakornin Daniel Craig og Rachel Weisz leika saman í spennumyndinni Dream House sem segir frá útgefanda sem flytur ásamt eiginkonu og tveimur börnum í út- hverfi þar sem hann ætlar að hægja á sér og skrifa skáldsögu. Dularfullir atburðir raska þó ró fjölskyld- unnar og einhver virðist stöðugt fylgjast með húsinu utanfrá. Þegar útgefandinn fer að grennslast fyrir um málið kemst hann að því að fyrri eigandi hafði myrt eiginkonu sína og tvær dætur í húsinu og að sá sé nú sloppin af geðveikrahæli. Nágrannakona hans vill lítið segja honum og veit greinilega meira en hún lætur uppi og lögreglan hefur lítinn áhuga á því að aðstoða hann. Frekara grúsk útgefandans dregur síðan fram enn óhugnanlegri staðreyndir og setja málið í nýtt samhengi. Aðrir miðlar: Imdb: 5.6, Rotten Tom- atoes: 6%, Metacritic: 35% Geðbilað umsátur um draumahús  Christopher Lee níræður erkiskúrkur Hávaxinn, dökkur og hryllilegur Breski leikarinn Christopher Lee fagnaði níræðisafmæli sínu þann 27. maí. Þessi magnaði maður er enn í fullu fjöri. Nafn hans hefur lengst af verið tengt hryllingi enda er hann einn þekktasti Dracula-leikari sögunnar. Ferill hans er án hliðstæðu, eins og maðurinn sjálfur enda getur enginn annar státað af því að hafa leikið sjálfan Drakúla greifa, illmenni í James Bond-mynd og skúrka í Star Wars- myndum og The Lord of the Rings. C hristopher Lee er ekki aðeins magnað-ur leikari. Hann hefur hlotið viður-kenningar fyrir hermennsku sína og syngur með þungarokkshljómsveitum. Hans er getið í heimsmetabók Guiness fyrir að vera hávaxnasti aðalleikari í heimi sem gerir það að verkum að hann er einnig hávaxnasti mað- urinn sem hefur leikið Drakúla greifa. Enginn leikari annar hefur leikið í jafn mörgum stórgróðamyndum en myndir hans hafa skilað yfir 40 milljörðum dollara í kass- ann en á afrekalista hans eru Star Wars- myndirnar Attack of the Clones og Revenge of the Sith auk Lord of the Rings-mynda Peters Jackson. Þegar George Lucas gerði fyrstu Stjörnustríðsmyndina var Lee boðið hlutverk Moff Tarkin, nánasta samstarfsmanns Svart- höfða í Helstirninu, en að lokum fór svo að góðvinur hans Peter Cushing lék illmennið en þeir áttu sér langa sögu og voru burðarásar í bresku Hammer-hrollvekjunum þar sem Cus- hing lék blóðsugubanann Van Helsing sem jafnan var á hælum Lees í skykkju Drakúla. George Lucas nýtti síðar krafta Lees í seinni Stjörnustríðsþríleiknum þar sem hann lék Sith-illmennið Count Dooku. Lee var að nálgast áttrætt þegar hann lék í Attack of the Clones en tók samt sprellfjörugur þátt í flestum geislasverðabardögum sínum. Lee var ekki síður ábúðarmikill sem hinn svikuli galdramaður Sarúman í Hringadrótt- ins sögu en hann er eina manneskjan sem kom að gerð þríleiksins sem auðnaðist að hitta höfundinn J.R.R. Tolkien í eigin persónu. Hann var fyrsti kostur leikstjórans í hlutverk Sarúmans og fyrsti leikarinn sem ráðinn var í myndabálkinn. Hann fékk á sínum tíma bless- un Tolkiens um að hann mætti leika Gandalf ef bækur hans yrðu einhvern tíma kvikmynd- aðar. Lee hefur að sögn lesið Hringadrótt- ins sögu á hverju ári frá því hún var gefin út. Hann hefur ekki alveg sagt skilið við ævin- týraheiminn þar sem hann mun koma fyrir í The Hobbit. Lee tengdist Ian Fleming, höfundi James Bond-bókanna, fjölskylduböndum og höf- undurinn vildi sjálfur að Lee léki Bond í fyrstu bíómyndinni, Dr. No. Hann lék hins vega morðingjann Scaramanga, manninn með gylltu byssuna, löngu síðar og þá á móti Roger Moore. Lee var efstur á óskalista Bryans Singer yfir leikara sem hann vildi fá í hlutverk Magneto í X-Men en rullan endaði hjá Ian McKellen sem leikur Gandalf á móti Saruman Lees í Hringadróttins sögu. Það er ekki nóg með að Lee geti státað af því að hafa verið Drakúla, og skúrkur í Bond-mynd, Star Wars og Lord of the Rings. Hann lék einnig Lord Summerisle, sérlega ógnvekjandi mann sem stundar mannfórnir, í The Wicker Man frá 1973 sem er einhver allra besta hryllingsmynd sem gerð hefur verið. Hann þáði ekki laun fyrir leik sinn í myndinni og telur hlutverk sitt þar vera með sínum allra bestu. Eftir að hann meiddist á baki árið 2010 þurfti hann að draga sig út úr framhaldsmynd- inni The Wicker Tree en beit engu að síður á jaxlinn og birtist þar í smáhlutverki. Christop- her Lee hefur leikið Drakúla tíu sinnum og nafn hans er vandlega samofið persónunni. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  hungurLeikArnir Bætist í hópinn Jena Malone í Catching Fire Ýmsar leikkonur hafa að undanförnu verið nefndar til sögunnar sem líklegar í hlutverk Johanna Mason í The Hunger Games- framhaldinu Catching Fire en viðræður eru nú hafnar við Sucker Punch- gelluna Jena Malone. Náist samningar er næsta víst að Malone muni einnig leika í þriðju myndinni, Mockingjay, en þar kemur Johanna lítið við sögu en gegnir engu að síður mikilvægu hlutverki fyrir framvindu sögunnar. Johanna berst fimlega með exi og beitir einnig fyrir sig hárbeittu háði og er kynnt til sögunnar í Catching Fire sem hættulegur andstæðingur Catniss en verður síðan mikilvægur liðsauki í baráttu Catniss og Peeta gegn hinum illa forseta og þeim ljótu leikum sem hann stendur fyrir.  rAging BuLL ii móðgAndi FrAmhALd MGM vill lögbann á Raging Bull II Jena Malone sýndi vopnfimi í Sucker Punch og getur byggt á þeirri reynslu í Catching Fire. Robert De Niro var rosalegur í Raging Bull og í fljótu bragði virðist með öllu tilgangslaust að ætla að bæta við sögu Jake LaMotta sem De Niro og Scorsese sögðu fyrir rúmum þrjátíu árum. Ógnvaldurinn Count Dooku í Star Wars. Lee var ekkert lamb að leika sér við sem Scaramanga í Bond-myndinni The Man with the Golden Gun. Glastonbury í endurliti MGM-kvikmyndaverið tekur ákaflega illa í áform um að gera framhaldsmynd af meistaraverki Martins Scorsese, Raging Bull, frá árinu 1980. Til stendur að taka Raging Bull II upp í sumar með William Forsythe í hlutverki hnefaleikarans Jake LaMotta sem Robert De Niro lék með mögnuðum tilþrifum á sínum tíma. Handrit Raging Bull II er unnið upp úr seinni bókinni sem LaMotta skrifaði, árið 1986, um líf sitt og feril. MGM hefur stefnt hinum 91 árs gamla fyrrum boxara og fram- leiðendum nýju myndarinnar, með það fyrir augum að koma í veg fyrir gerð myndarinnar og fá lögbann á hana þannig að hún muni aldrei koma fyrir augu almennings. Í stefnunni kemur fram að MGM telji LaMotta ekki hafa heimild til að selja kvikmyndaréttinn á bók sinni án þess að MGM njóti forkaupsréttar. Þá eru allir aðstand- endur Raging Bull II sakaðir um að bendla nýju myndina við óskars- verðlaunamynd Scorsese frá 1980 en slíkt tal sé fallið til þess að kasta rýrð á Raging Bull og sverta minninguna um þá mynd. MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS  CAFÉ/BAR, opið 17-23 VERTU FASTAGESTUR! Ódýrara í bíó með aðgangskortum! Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS SKÓLANEMAR: 25% afsláttur gegn framvísun skírteinis! NÝTT Í BÍÓ PARADÍS! BÍÓ- OG TÓNLISTAR- UPPLIFUN SUMARSINS! “Þetta er meistaraverk.” -Mike Leigh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.