Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.07.2012, Qupperneq 26

Fréttatíminn - 20.07.2012, Qupperneq 26
Verslunarmannahelgin að Laugalandi í Holtum: hvað er edrú-hátíð? Útgefandi: SÁÁ - Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann efstaleiti 7, 103 Reykjavík. Sími: 530 7600 ÁbyRgðaRmaðuR: gunnar Smári egilsson. RitStjóRi: mikael torfason. umbRot: janus Sigurjónsson. INGÓ TÖFRAMAÐUR: LES HUGA FÓLKS TÓNAHEILUN OG SPÁLESTUR DANSA SIG Í GEGNUM TILFINNING- ARNAR KIRIYAMA FAMILY: VINSÆLASTIR Á ÍSLANDI Hvað: Matur Hvenær: Alla helgina Klukkan: Á matmálstímum Þórir Bergsson Kemur beint af veitingastaðnum Bergsson sem hann opnaði nýlega. ágúst garðarsson Gústi er kallaður Gústi Chef og það ekki að ástæðulausu. Ótrúlegt verð inn! Á Edrúhátíðinni er fjöldinn allur af viðburðum í boði og tjaldstæðið að Laugalandi í Holtum (rétt hjá Hellu, sami afleggjari af þjóðvegi og liggur að Galtalæk) er frábært en verðið inn er aðeins 4.500.- krónur fyrir alla helgina og frítt inn fyrir yngri en tólf ára. Miðað við hvað kostar fyrir fjölskyldu að gista á tjaldstæðum almennt gerist þetta ekki betra. Dagpassar verða seldir á aðeins 2.000.- krónur alla dagana. 2 Edrú VErsLunarMannaHELGina 3.- 6. ÁGúst Ókeypis karatekennsla Jóhannes Karlsson er titlaður sandan en það þýðir að hann er með svarta beltið, þriðja dan, og um helgina ætlar hann að vera með sérstaka kynn- ingu á Karate en í allan vetur (og aftur nú í vetur) hefur Jóhannes boðið öllu tólf spora fólki að koma ókeypis í Karate á þriðju- dögum og fimmtudögum kl. 18.30 (reyndar kl. 18 í sumar). Kennslan fer fram í kjallara Laugardalslaug- ar. sýnikennslan um helgina verður nánar auglýst á hátíðinni. Mannakorn á Laugalandi Hljómsveitina Mannakorn þarf vart að kynna fyrir lesendum en þeir verða á Laugalandi um helgina og troða upp. rétt áður en blaðið fór í prentun fengum við þetta staðfest frá Pálma Gunnarssyni sem er spenntur fyrir Verslunar- mannahelginni og lofar öllum þeirra bestu lögum. Listinn í þessu blaði er nefnilega ekki tæmandi og margt skemmtilegt á eftir að koma í ljós. Geðveiki í Njálu Óttar Guðmundsson geðlæknir verður með fyrirlestur á sunnudeginum undir yfirskriftinni: Það eru fleiri geðveikir en alkar. Þá mun hann fjalla um geðveiki í Íslendingasögunum og þá sérstaklega í njálu en við erum einmitt á njáluslóðum á Edrúhátíðinni að Laugalandi í Holtum. Fyrirlesturinn er klukkan 14 og verður nánar kynntur á hátíðinni sjálfri. Tælensk matstofa Á Edrúhátíðinni verður hent upp tælenskri matstofu eins og þær gerast bestar í reykjavík. Verðum er að sjálfsögðu stillt í hóf. morgunverður fyrir sigurvegara – 500 kall! Á laugardags-, sunnudags- og mánudagsmorguninn verður hægt að fá ódýran en bráð- hollan og bragðgóðan morgunverð fyrir aðeins 500 krónur á manninn. Þetta er sunnlenskur morgunmatur; hafragrautur, aB-mjólk, múslí, ávextir, egg, kaffi, te og tilheyrandi. Það er ókeypis fyrir börn yngri en 6 ára og krakkar á aldrinum 6-12 ára borgar hálfvirði. edrú-súpa í hádeginu – 1.000 kall! Í hádeginu á laugar- og sunnudeginum er hægt að fá kraft- og matarmikla súpu með brauði á aðeins 1.000 kr. aftur er ókeypis fyrir börn yngri en 6 ára og krakkar á aldrinum 6-12 ára borga hálfvirði. gefið af sér á daginn og grillað á kvöldin – 1.500 kall! sameiginlega grillveislan verður á laugar- dags- og sunnudagskvöldið. Á laugardeginum veður kjúklingur og salsa en á sunnudeginum lamba- læri og alles. Veislan kostar 1.500 kr. á manninn, ókeypis fyrir yngri en 6 ára og hálfvirði fyrir þá sem eru 6-12 ára. edrúafmælisveisla – öllum boðið! Á sunnudagseftirmiðdaginn verður boðið til sameiginlegrar edrú-afmælisveislu að sunnlenskum sveitasið; hnallþórutertur, flatbrauð með hangikjöti, súkkulaðitertur, hjónabandssælur, rúgbrauð með kæfu, kakó og tilheyrandi. Og eins og í öðrum afmælisveislum kostar ekkert; allt er ókeypis. matarsala og sjoppa auk þessa verður opin sjoppa á svæðinu og ýmisskonar matarsala önnur; thailenskur matur, alvöru espresso-kaffi og hvaðeina. Hátíðargestir geta komið með mat með sér og eldað — eða keypt sér ódýran mat og góðan í matsalnum, sem seldur er á kostnaðarverði: hlægilega ódýr en rosalega góður Þórir og gústi Kokkarnir sjá um matinn og fá hjálp frá fjölda fólks sem mannar hið frábæra eldhús að Laugalandi. Þar er stór matsalur og öll aðstaða til þess að setja upp prýðis veitingastað til fyrirmyndar. MYNDIR: Gunnar Gunnarsson Gunnar Smári EGilSSon Skrifar: Orðið edrú er eldgamalt grísk hugtak sem þvældist í gegnum kirkju- söguna og endaði hjá okkur. Í gömlum skilningi merkir það að lifa lífinu til fullnustu í sátt við takmarkanir þess. Það finnst okkur skynsamt; að hafa gaman alveg upp að því að það fari að verða leiðin- legt. Börn eru heiðurgestir á Edrú-hátíðinni. Og allir eru í liði með börn- unum. Og enginn svíkur það lið. Þess vegna er öll neysla áfengis og vímuefna bönnuð á svæðinu og drukkið fólk beðið að halda sig fjarri. Og þar sem allir eru alsgáðir eru allir virkir, glaðir og tilbúnir til þátttöku. Öll dagskráin miðar að því að fólk taki þátt og skemmti sér á fjölbreytilegan hátt; njóti félagsskapar annara gesta ekki síður en skemmtiatriða. Dagskráin er eins og kaðall sem fléttaður er úr ólíkum reipum. Þarna verður þétt tónleikadagskrá með áhugaverðustu ungu hljóm- sveitunum; Kaffi, kökur og rokk & ról á miðju sumri. Barnadagskrá er frá morgni til kvölds; listasmiðja, leikhús, söngvakeppni og hvað- eina. Íhugun og andleg iðkun er alla daga; líka líkamsæfingar og heilsubót; gönguferðir, fræðsluerindi og 12-sporafundir og 12-spora kynningar. Fólk kemur saman í matsalnum; borðar hollan mat og segir góðar sögur. Á kvöldin eru partí, tónleikar, dansiböll, sund- laugadiskó og varðeldur með söng. Markmiðið er að allir fari í betra standi heim en þeir komu. — Og eins undarlega og það hljómar; þá er þetta líklega eina útihátíðin þetta sumarið með það markmið. að skila fólki vel af sér.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.