Fréttatíminn - 20.07.2012, Qupperneq 36
Stuttbuxur eða stígvél?
Ú
Útlend stórstirni undrast íslenska sumar-
tíð, einkum að nóttin sé björt. Tveir heims-
kunnir leikarar sem hér eru kunna sér ekki
læti, að því er lesa má í fréttum. Ben Stiller
naut sólarlagsins við Ægisíðu í Reykjavík,
gat ekki á sér setið og sendi frá sér mynd
þar sem hann tiltók að hún væri tekin
klukkan 23.04. Samt er mánuður frá því að
sú gula var hæst á lofti. Sama á við um hinn
frægðarmanninn, Russel Crowe. Hann fór
snemma á fætur og bauð Reykjavík góðan
daginn á Twitter-síðu sinni fyrr í vikunni.
„Að minnsta kosti held ég að það sé morg-
unn... lítur út eins og kvöldið,“ sagði hann
í morgunsárið. Sá dagur rann saman í eitt,
eins og verða vill þegar vel viðrar og hásum-
ar er á landinu bláa. Fátt jafnast á við það.
Í slíkri dýrð vill fólk ekki fara inn að sofa.
Það fer út að ganga eða dundar fram eftir
í görðum sínum. Hafið er eins og spegill
þar sem sólin sér sjálfa sig rétt áður en hún
gengur til viðar. Sú sýn heillaði Ben Stiller
og hún hrífur okkur öll.
Veðrið hefur leikið við okkur það sem af
er sumri. Júní og júlí hafa verið bíðir, sól-
ríkir og þurrir. Það þekkjum við af langri
reynslu að oft er veðri misskipt á landinu. Ef
það er rigning syðra er blíða fyrir norðan og
öfugt. Í sumar hafa hins vegar komið margir
dagar með góðviðri um land allt. Svo þurrt
er að tún gulna og bændur hafa áhyggjur.
Er á meðan er. Við njótum blíðunnar
meðan hún varir og vitum að brugðið getur
til beggja vona. Ástandið í sumar hefur verið
suðrænt, útikaffihús blómstra og Íslend-
ingar hafa skipt um húðlit. Föli liturinn er
horfinn. Margir hafa haft á orði að auðvelt
sé að þola langan vetur megi treysta svo
góðu sumri. Svo er þó ekki. Hann getur
lagst í rigningar og jafnvel kulda þótt sumar
sé samkvæmt almanaki. Framtaksamir
menn hafa jafnvel farið í kröfugöngur þegar
vætutíð gerist löng og krafist sólskins. Á því
taka veðurguðir lítið mark.
Þess vegna panta margir utanlandsferðir
þegar sumar er í vændum. Það gerðum við
hjónakornin og skruppum í júní talsvert
sunnar í álfuna. Það voru dýrðardagar en
því er samt ekki að neita að ljúf tilfinning
var að halda af stað heim í kvöldmyrkri
sunnan að og fljúga inn í birtu sumarnætur-
innar. Þær nætur eru forréttindi. Eiginlega
ætti maður að sleppa svefni frá maí og fram
í ágúst þegar nóttin fer aðeins að gera vart
við sig á ný.
Að sama skapi runnu tvær grímur á son
okkar hjóna og tengdadóttur sem fyrir
löngu höfðu pantað sér sumarvist í Dan-
mörku með börn sín nú um miðjan júlí.
Þegar þau ákváðu tímann vildu þau vera
þokkalega viss um blíðu þar og stóluðu á
júlí. Sumarið hefur hins vegar farið framhjá
Dönum að þessu sinni og ýmsum öðrum
nágrannalöndum í norðanverðri Evrópu.
Hæð hefur verið yfir Grænlandi og Íslandi
og því hafa lægðirnar farið langt sunnan við
okkur og tekið land í Skandinavíu og fleiri
Evrópuríkjum. Þar hefur því rignt meira en
góðu hófi gegnir og víða orðið flóð.
Sumarrigning angrar frændur okkar
Dani, ekki síst ef slík tíð er langvarandi.
Það hefur hún verið og langtímaveðurspá
segir þeim, ef marka má fréttir danskra fjöl-
miðla, að ekkert sumar sé í kortunum þar
í landi næsta mánuðinn. Það þykir Dönum
afleitt og ekki síður okkar fólki sem hélt
þangað, með farseðlana löngu klára. Við
það varð samt að una. Það var einfaldlega
spáð rigningu í Danmörku en blíðu á Íslandi
frídagana.
Þegar Íslendingar pakka fyrir utan-
landsferðir að sumri til fara stuttbuxur og
sólaráburður fyrst í töskuna en nú voru það
regnföt og stígvél á krakkana. Auðvitað er
hægt að hafa það gott í Kaupmannahöfn þótt
það rigni og nokkuð má treysta mildu veðri,
þrátt fyrir allt, það er jú júlí. En skemmti-
legra er vissulega að eyða þar dögum þegar
sólin skín. En skýjafari ráðum við ekki,
hvorki þar né hér. Ungu hjónin horfðu að
sönnu hvort á annað þegar ég skutlaði þeim
á flugvöllinn og hitamælir bílsins sýndi 21
gráðu. Hann er kannski ekki jafn nákvæmur
og hinn opinberi mælir Veðurstofunnar en
sagði samt sína sögu. Hitinn og þurrviðrið
var okkar megin Atlantsála.
Nú standa yfir svokallaðir hundadagar,
dagar „hundastjörnunnar“ Síríusar, tímabil-
ið frá 13. júlí til 23. ágúst. Þetta er að meðal-
tali hlýjasti tími ársins, að því er fram kem-
ur hjá Trausta Jónssyni veðurfræðingi en
hundadaganafnið tengist annars íslenskri
sögu Jörundar hundadagakonungs en hans
stutta valdatímabil hér árið 1809 stóð frá 25.
júní til 22. ágúst. Trausti segir að hundadag-
arnir hafi verið verulega hlýir í Reykjavík
frá árinu 2003, en stundum blautir í aftur-
endann. Það kann vel að vera að svo verði
einnig í sumar. Það er að minnsta kosti spáð
rigningu um helgina, hvernig svo sem fram-
haldið verður.
Bændur á þurrkasvæðum munu eflaust
gleðjast en ekki er víst að það veki sömu
kátínu hjá okkar fólki í Danaveldi ef það fær
þau tíðindi á heimleiðinni, í upphafi næstu
viku, að regntímabilið sé hafið á Íslandi – en
það þarf þá ekki að taka krakkana úr stíg-
vélunum.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík Sími: 534 7268
1.250 kr
1.350 kr
HOLLT
OG GOTT
PHO víetnamskur veitingastaður Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími: 588 6868
1.250 kr
ALLT FYRIR
AUSTURLENSKA MATARGERÐ
699 kr. 550 kr.
387 kr.
320 kr.
Opið:
mán - föst Kl. 11 - 21
lau - sun Kl. 12 - 21
Meira í leiðinniWWW.N1.IS
GJAFIR
FYRIR DUGLEGA
STIMPLA-
SAFNARA
Náðu þér í Vegabréf á næstu þjónustustöð N1 og fáðu
stimpil í hvert skipti sem þú verslar fyrir 300 kr.
eða meira – og lærðu að þekkja nokkra
skemmtilega farfugla í leiðinni.
Duglegir stimplasafnarar fá gjafir
og þeir sem skila fullstimpluðum
Vegabréfum fyrir 7. ágúst eiga
möguleika á glæsilegum
vinningum.
Vertu á ferð og flugi með
okkur í allt sumar!
Gönguferðin þín er á utivist.is
Skoðaðu ferðir
á utivist.is
28 viðhorf Helgin 20.-22. júlí 2012