Fréttatíminn - 20.07.2012, Side 46
38 bíó Helgin 20.-22. júlí 2012
Áhorfend-
ur horfðu
síðan
á eftir
Batman
hverfa út
í myrkrið
í lok The
Dark
Knight.
Hundeltur
af lögreglu
lætur
Batman
sig hverfa
í sjálfskip-
aða útlegð.
hungurleikar lengi von á einum christopher nolan klárar Batman með stæl
Bane (Tom Hardy) og Batman (Christian Bale) takast harkalega á í The Dark Knight Rises og nú er allt undir þar sem komið er
að leiðarlokum hjá Christopher Nolan og Leðurblökumanninum.
Magnað endatafl
l eðurblökumaðurinn var afskrifaður árið 1997 þegar Joel Schumacher misbauð aðdáendum grímuklædda
bófabanans sem og almennum bíógestum
með myndinni Batman and Robin sem var svo
slæm að líkamleg óþægindi voru meðal þeirra
aukaverkana sem fylgdu því að sitja undir
ósköpunum þar sem George Clooney og
Arnold Schwarzenegger gerðu sig að fíflum
í einni verstu bíómynd sögunnar í hlutverkum
Batmans og Mr. Freeze.
Almennt og eðlilega var talið að með
Batman and Robin hefði Schumacher tekist
að drepa Leðurblökumanninn. Eitthvað sem
Jókernum, Mörgæsinni og öðrum erkióvinum
Batmans hafði aldrei auðnast. Christopher
Nolan gerði því kraftaverk þegar hann reisti
Batman upp úr öskustónni með Batman Beg-
ins árið 2005.
Christian Bale smellpassaði í uppfærðan
Batman-búninginn og tók sig ekki síður vel
út í hlutverki moldríka glaumgosans Brue
Wayne sem fáum gæti dottið til hugar að væri
einbeittur maður sem héldi í krossferðir gegn
glæpum í Gotham þegar skyggja tekur. Nolan
var ekki með nein fíflalæti og sýndi viðfangs-
efni sínu tilhlýðilega virðingu í tilraun sinni til
þess að uppreisa æru Leðurblökumannsins.
Hann eyddi miklum tíma og púðri í persónu-
sköpun hetjunnar og að því leyti má segja að
Nolan hafi fetað svipaða braut og Tim Burton
í tímamótamyndinni Batman frá árinu 1989.
Burton setti spurningarmerki við andlega
heilsu hetjunnar og Nolan gerir enn markviss-
ar út á bresti í sálarlífi Bruce Wayne. Í Batman
Begins glímir Wayne við fortíðardrauga og
reynir að vinna bug á sorginni sem heltók
hann þegar foreldrar hans voru myrtir með því
að berjast gegn glæpum í Gotham-borg.
Batman hafði í nógu að snúast í The Dark
Knight, millikafla þríleiksins. Þar herjaði Jó-
kerinn, í ógleymanlegri túlkun Heaths heitins
Ledger, á Gotham og tókst áður en yfir lauk
að drepa æskuást Waynes, Rachel Dawes.
Rachel var trúlofuð hinum dáða saksóknara í
Gotham, Harvey Dent, en eftir að Jókerinn rúll-
aði Dent í gegnum andlega hakkavél sína gekk
Dent af göflunum og breyttist í skúrkinn Two-
Face. Batman kaus að taka ábyrgð á glæpum
Dents, til þess að ekki félli á hetjuímynd
saksóknarans sem kveikt hafði vonarneista
í brjóstum borgarbúa. Áhorfendur horfðu
síðan á eftir Batman hverfa út í myrkrið í lok
The Dark Knight. Hundeltur af lögreglu lætur
Batman sig hverfa í sjálfskipaða útlegð.
Átta ár líða á milli The Dark Knight og
The Dark Knight Rises en þegar bandbrjálaði
hryðjuverkamaðurinn Bane mætir til leiks til-
búinn til þess að jafna Gotham við jörðu neyð-
ist Batman til þess að bregðast við neyðarkalli
síns góða félaga, Gordons lögreglustjóra.
Dökki riddarinn rís upp á ný, til þess eins að
mæta sínum erfiðasta andstæðingi til þessa.
Bane er stórhættulegur og er sannkölluð
mulningsvél í meðförum hins frábæra leikara
Tom Hardy sem magnar illsku persónunnar
upp með miklum tilþrifum. Bane er ekki síst
frægur í myndasögunum fyrir að hafa afrekað
að bakbrjóta Batman í slagsmálum þannig
að feigðin vomir yfir Batman og Gotham sem
aldrei fyrr þegar þessir fjendur mætast í
mögnuðu endatafli Nolans.
Þriðja og jafnframt síðast mynd leikstjórans Christophers Nolan um Leðurblöku-
manninn og endalausa baráttu hans fyrir friði og réttlæti í hinni syndum spilltu
Gotham-borg verður frumsýnd í næstu viku. Óhætt er að fullyrða að engrar mynd-
ar hafi verið beðið með jafn mikilli eftirvæntingu í sumar og The Dark Knight Rises
enda voru fyrri myndirnar tvær frábærar. Nýja myndin hefur nú þegar fengið
frábæra dóma og almennt virðast gagnrýnendur á einu máli um að eins ótrúlega
og það kann að hljóma þá toppi Nolan Batman Begins og The Dark Knight.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Jackie Chan til í
Expendables 3
Kínverski slagsmálahundurinn og
grínkallinn Jackie Chan var í stuði á
Comic-Con-hátíðinni í San Diego þar
sem hann mætti til þess að kynna
næstu mynd sína Chinese Zodiac.
Þar rakst hann á þá félaga Arnold
Schwarzenegger og Sylvester
Stallone sem voru í svipuðum erinda-
gjörðum. Komnir til þess að kynna
harðhausaveisluna The Expendables 2.
Chan var á léttu nótunum í hlaðvarpi
kvikmyndatímaritsins Empire og sagð-
ist þar hlæjandi ekki hafa haft tíma til
þess að vera með í The Expendables 2.
Hann hefði hins vegar rekist á Stallone
á Comic-Con og Stallone hafi þar sagt
honum að hann yrði að vera með í
þriðju myndinni og Chan er nú bara að
bíða eftir símtali.
Chan segist vera málkunnugur Stallone
en hann og Schwarzenegger séu hins
vegar góðir vinir og að þeir heyrist
reglulega. Chan sagðist einnig fagna
því að Arnold væri hættur í pólitík og
ríkisstjórabrölti sínu. Hann hefði miklu
meiri tíma aflögu eftir að hann sneri
aftur í bíómyndirnar og væri miklu
slakari.
Leikarahópur The Hunger Games-
framhaldsins Catching Fire heldur
áfram að stækka og nú liggur fyrir að
Amanda Plummer muni fara með
hlutverk Wiress, keppanda úr Umdæmi
3, sem snýr aftur á vígvöllinn í 75.
Hungurleikunum.
Plummer er þekktust fyrir að hafa
leikið Honey Bunny í Pulp Fiction
og Lydiu í The Fisher King. Persóna
hennar í Catching Fire er bráðgáfuð
en sérvitur og á erfitt með að tjá hug-
myndir sínar við aðra keppendur og
fær því uppnefnið Nuts.
Variety hefur greint frá því að Sam
Claflin úr Snow White And The
Huntsman sé líklegur til þess að taka
að sér hlutverk Finnick Odair í Catch-
ing Fire og að búið sé að bjóða Melissa
Leo og Tony Shalhoub hlutverk Mags
og Beetee. Shaloub er vitaskuld fyrst
og fremst þekktur fyrir túlkun sína á
hinum taugaveiklaða og snertifælna
spæjara Monk.
k vikmyndaframleiðandinn Richard Zanuck er látinn
77 ára að aldri. Hann var í hópi
fremstu og farsælustu manna
í sínum hópi og setti sterkan
svip á Hollywood og banda-
ríska menningu um hálfrar
aldar skeið.
Hann sópaði til sín Óskars-
verðlaunum í bílförmum og
kom að gerð fjölda frábærra
kvikmynda auk þess sem
hann ræktaði náið samband
við þekktar stjörnur á borð
við Paul Newman og Robert
Redford. Þá slípaði hann til
unga leikstjóra eins og Steven
Spielberg og náði á seinni
hluta ferils síns að starfa með
Tim Burton.
Banamein Zanucks var
hjartaáfall en hann var á kafi
í framleiðslu myndarinnar
Hidden með þeim Alexander
Skarsgard og Andrea Rise-
borough þegar hann lést.
Margar mynda Zanucks
höfðu varanleg áhrif á
ákveðnar kynslóðir og lifa enn
góðu lífi enda sígildar. The
Sound of Music er ein þessara
mynda og þá ekki síður klass-
íski vestrinn Butch Cassidy
and the Sundance Kid þar sem
Newman og Redford voru í
toppformi.
Glæpamyndin The French
Connection, með Gene Hack-
man í hlutverki löggunnar Po-
pey Doyle og William Friedkin
við stjórnvölinn, er enn ein
rósin í hnappagati framleið-
andans.
Hákarlatryllirinn Jaws, eftir
Spielberg, hlýtur þó að öðrum
ólöstuðum að teljast þekktasta
ef ekki áhrifamesta mynd
Zanucks en með Jaws má segja
að Zanuck og Spielberg hafi
fundið upp sumarsmellinn en
slíkar myndir hafa síðan þá
malað framleiðendum gull.
„Hann kenndi mér allt sem
ég veit um framleiðslu. Hann
var einhver heiðarlegasti og
traustasti maðurinn í okkar
fagi og barðist alltaf með kjafti
og klóm fyrir leikstjóra sína,“
segir Steven Spielberg um
þennan fallna meistara.
hollywood meistari kveður
Framleiðandinn Richard Zanuck allur
Richard Zanuck framleiddi Jaws og leiðbeindi þá ungum
Steven Spielberg.
comic-con harðhausahittingur
Jackie Chan hefur oft komist í hann
krappan og er til í að taka slaginn með
Schwarzenegger og Stallone.
Enn fjölgar í Catching Fire
Amanda
Plummer gaf
ekkert eftir í
Pulp Fiction
Tarantinos og
verður hörð í
horn að taka í
Catching Fire.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS CAFÉ/BAR, opið 17-23
VERTU FASTAGESTUR!
Ódýrara í bíó með aðgangskortum!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
ÁFRAM Í BÍÓ PARADÍS!
HEIMSFRUMSÝNING!
Frábær sálfræðitryllir í anda The Sixth Sense
ROBERT DE NIRO | SIGOURNEY WEAVER | CILLIAN MURPHY
RED LIGHTS