Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.07.2012, Síða 4

Fréttatíminn - 27.07.2012, Síða 4
T jahh, jú, eða þetta er alltaf smá ævintýri. En, hreyfði lítið við hjartslættinum. Svo var maður bara lentur,“ segir Guð- mundur Hjaltason flugmaður; pollró- legur þegar flughræddur blaðamað- ur Fréttatímans spyr hvort þetta hafi ekki verið alveg svakaleg lífs- reynsla? Fréttatíminn náði tali af Guð- mundi nú í vikunni en hann var þá nýlega kominn heim til Íslands eftir að hafa ferjað flugvél sem hann hafði fest kaup á til landsins. Ferðin reynd- ist háskaleg því bensíndæla vélarinn- ar gaf sig með þeim afleiðingum að Guðmundur þurfti með skömmum fyrirvara að nauðlenda í Nevada- eyðimörkinni við erfiðar aðstæður. „Ég hafði flogið í tæpa þrjá tíma. Í ægilegum hita og óþægilegu flug- veðri. Og þá stoppaði mótorinn þarna yfir eyðimörkinni. Þarna er hátt landið og ekki reyndist mikill tími til stefnu. Nokkrar mínútur. Í þessari flugvél er vél sem dregur upp hjólin, ekki allar vélar sem gera það, og ekki um annað að ræða en nauðlenda vélinni. Mótorlaus. Eins og þeir sögðu síðar flugvirkjarnir; „In the middle of nowhere“. Allt sambandslaust. En, þarna var ein- hver lítil sandslétta. Þó þetta sé eyði- mörk fer því fjarri að þarna sé hægt að lenda allstaðar. Þetta er gróið og búskar hér og þar. En, ég fann þarna einhvern sköllóttan blett og tókst að koma henni niður án þess að skemma hana. Botninn á henni var alveg eins og steypa,“ segir Guð- mundur. Vinirnir með öndina í hálsinum Áður og meðan á þessu gekk mátti lesa á póstlista Félags íslenskra einkaflugmanna: „Félagi Guðmund- ur Hjaltason sem átti TF-VHH er þessa dagana að fljúga frá Napa til Ís- lands á nýrri vél sinni Meyer N-480S ...“ Og seinna birtust svohljóðandi skilaboð: „Við höfum orðið vör við að margir eru að fylgjast með heim- ferð félaga okkar Guðmundar Hjalta- sonar á nýju vélinni sinni N-480S. Um helgina þurftu þau að nauðlenda þar sem bensíndæla bilaði, eru þau stödd rétt vestan við Salt Lake City í 10.000” hæð. Er verið að bíða eftir varahlutum og vonast þau til þess að geta farið í loftið aftur eftir 1-2 daga.“ Og áfram bárust spenntum vinum og félögum fregnir í gegnum póstlistasendingar: „Vorum að heyra frá Guðmundi. þau eru komin með varahlutina og er byrjað að vinna í að skipta um, það er það heitt hjá þeim (100 F) að aðeins er hægt að vera úti í ca 10 mín í senn. Þau vonast eftir að komast í loftið um þetta leytið á morgun.“ Heppinn með lendingarstað Með Guðmundi í för var eigin- kona hans Elísabet. Hremmingum þeirra var ekki lokið. „Þarna var ekkert samband en ég var með svona tæki, „Find Me Spot Locator“ sem sendir út reglulega hvar þú ert staddur. Þetta var um kvöldmatar- leytið og við biðum. Reyndum að kalla en svo var það ekki fyrr en um fimm að morgni sem við sendum út neyðarkall.“ Þá leið ekki á löngu þar til hjálpin barst, með þyrlu og næsta dag fór Guðmundur með flugvirkjum með trukki á staðinn, til að bjarga vélinni. „Þeir sögðu mér að þetta væri óvenjulegt, að menn sem lentu í slíku, væru yfir- leitt dauðir.“ Ný bensíndæla var sett í vélina og Guðmundi tókst að ná vélinni á loft þrátt fyrir mikla hita. „Ekki var hægt að finna betri braut á þessum slóðum en nákvæmlega þarna þar sem ég hafði nauðlent. 700 metr- ar sem er ekki mikið í tæplega 40 stiga hita í 5600 feta hæð.“ Guð- mundur segir það ekki hafa verið tiltakanlega erfitt að fara aftur af stað þrátt fyrir hremmingar. „Ég hafði átt vél með samskonar mótor í 25 ár þannig að ég þekki hann vel. Ótrúlegt hvað þetta snýst. En við vorum í kapphlaupi við veðrið, ef við hefðum fengið mikla rigningu hefði vélinni ekki verið flogið úr eyðimörkinni þar sem vatnsbotninn er víst fljótur að breytast í drullu- forað.“ Öllu vanur Guðmundur segist hafa fallið fyrir þessari vél, Meyer, sem er sjaldgæf tegund, innan við hundrað vélar þeirrar gerðar eru fljúgandi í dag, þær voru einungis framleiddar tvö- hundruð á sínum tíma. „Ég var ekk- ert að yngja upp. Seldi Cessnuna og keypti þessa, ´67 módel og er hún þá 45 ára gömul.“ Guðmundur var sem sagt ekkert að láta þetta áfall slá sig út af laginu, hefur enda lent í ýmsu á löngum ferli en hann fékk flugprófið 1978; meðal annars nauðlenti hann árið 2003, ásamt syni sínum Hjalta Geir, í heimreiðinni að Bessastöðum og sumir muna ef til vill eftir. Jakob Bjarnar Grétarsson jakob@frettatiminn.is GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST YFIR 40 GERÐIR GRILLA Í BOÐI LANDMANN eru frábær grill fyrir íslenskar aðstæður 44.900 Opið til kl. 14 á morgun laugardag 12734 Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 OYSTER PERPETUAL DATEJUST II Michelsen_255x50_E_0612.indd 1 01.06.12 07:21  Einkaflug guðmundur HjalTason í HrEmmingum við fErjuflug Nauðlending í Nevada-eyðimörkinni Íslenski flugheimurinn fylgdist grannt með gangi mála, og með öndina í hálsinum, þegar Guðmundur Hjaltason einkaflugmaður ferjaði nýja og einstaka vél sína til landsins. Ekki vildi betur til en svo að bensíndælan gaf sig með þeim afleiðingum að Guð- mundur þurfti að nauðlenda í Nevada-eyðimörkinni. Þeir sögðu mér að þetta væri óvenjulegt, að menn sem lentu í slíku, væru yfirleitt dauðir. Guðmundur og vél hans „in the middle of nowhere“ í Ne- vadaeyðimörkinni. vEður fösTudagur laugardagur sunnudagur Sólríkt um nánaSt allt land oG fremur Hlýtt V- oG S-til HÖfuðBorGarSVæðið: Létt- skýjað Eða HEiðrÍkt. HeiðríkJa oG HæGur Vindur. Hlýtt, en SValt um nóttina. HÖfuðBorGarSVæðið: Léttskýjað oG HafGola. HlýJaSt á na- oG a-landi. Þar Sól, en meira SkýJað VeStantil. HÖfuðBorGarSVæðið: sól framaN af dEGi, EN væta um kvöldið. Sól og sumar Hæðarsvæði mun ráða veðrinu hjá okkur yfir helgina. Það verður sólríkt um land allt og fremur hlýtt að deginum eða 15-18 °C og á stöku staða hlýrra eins og gefur að skilja. Á nóttinni kólnar niður í 6-7°C. Hæg N-átt í grunninn og því heldur svalara, einkum við sjóinn norðan- og norðaustanlands. Á sunnudag verður vindur meira sv- stæður og þá verður hlýjast fyrir norðan og austan, en þá um kvöldið þykknar í lofti og fer að rigna á vest- fjörðum og vestanlands 15 14 12 12 17 16 15 15 15 18 13 14 17 18 15 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is 4 fréttir Helgin 27.-29. júlí 2012

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.