Fréttatíminn - 27.07.2012, Side 60
Njóttu gæðanna og bragðsins og kældu þig niður í leiðinni með hollustu.
Joger - hollur og góður og fæst víða.. Prófuaðu bara!
Undirbúðu fæturna fyrir ferðalagið
Þú færð Heelen fóta-og húðvörurnar í apótekum
www.portfarma.is
Pottþétt par!
Þegar leiðir þeirra lágu saman í fyrsta skipti
hér á Íslandi, fyrir einhverjum 60 árum síðan
þá vakti það sömu hughrif hjá öllum.
Coca Cola og Prince Polo voru sköpuð
fyrir hvort annað. Ekkert mun koma upp á
milli þeirra. Enn þann dag í dag eru þau
uppáhalds snarl-tvenna Íslendinga.
Dekraðu við þig, leyfðu þér að kynnast
þessu einstaka pari. Coke og Prince –
hleyptu ástinni inn fyrir varirnar og leyfðu
henni að blómstra.
Þráinn í Skálmöld Setur gítar á uppboð
Sjóaður Fender með
rokkrispum
S ú magnaða hljómsveit Skálm-öld hefur tekið höndum saman við Tuborg, Hljóðfærahúsið og
Fender-gítarframleiðandann um að
gefa sérskreyttan, handsmíðaðan
Fender á uppboð til styrktar sam-
tökunum Blátt áfram í haust.
„Kvikindið var bara vígt á Eistna-
flugi um daginn,“ segir Þráinn Árni
Baldvinsson, gítarleikari Skálm-
aldar, sem fær að handleika gripinn
þangað til hann verður seldur hæst-
bjóðanda á tónlistarhátíðinni Rokk-
jötnar í Kaplakrika í byrjun septem-
ber. „Þetta er snilldargítar en það á
samt eftir að klára hann. Það á eftir
að lakka hann og leggja lokahönd
á. Þetta verður klárað í kringum
helgina þannig að uppboðið verður
bara sett í gang nánast frá og með
1. ágúst.“
Fenderinn verður kominn með þó
nokkra sögu þegar Þráinn skilur við
hann. „Hann fer með mér til Þýska-
lands. Við erum að spila á festivali
með Immortal, Behemoth og fleiri
stórkostlegum hljómsveitum í ágúst.
Þannig að hann verður orðinn sjó-
aður og það verða komnar nokkrar
rokkrispur á hann sem er náttúr-
lega nauðsynlegt svo hann verði nú
almennilegur.“
Listakonan Ýrr Baldursdóttir tók
að sér að skreyta gítarinn og þótt
hún gefi vinnu sína segir Þráinn ann-
ars hvergi til sparað. „Ölgerðin setur
heilmikinn pening í svo hægt verði
að gera gítarinn eins flottan og unnt
er. Guðni í Hljóðfærahúsinu fann
hann fyrir mig og gripurinn kostar
tæpa hálfa milljón. Við ákváðum að
það gengi ekkert að fara að spila á
einhvern ódýran gítar og setja hann
svo á uppboð. Þetta er alvöru gítar
sem búið er að betrumbæta enn frek-
ar. Þetta verður eigulegur gítar fyrir
þann sem hreppir hann að lokum.“
Þráinn með gítarinn góða ásamt félögum sínum í Skálmöld. Hann segist vera búinn að taka ástfóstri við gripinn og hann sé því í
raun í þroskaferli. „Ég fæ að leika mér með hann í sumar og svo bara sleppi ég honum. Það er bara þannig. Svo verð ég bara að
vona að sá sem kaupir hann að lokum leyfi mér nú kannski einhvern tíma að heimsækja gítarinn.“
Þetta
verður
eigulegur
gítar fyrir
þann sem
hreppir
hann að
lokum.
plötudómar dr. gunna
division of Culture &
tourism
Ghostigital
Álfar á
vélmennabar
Þriðja Ghostigital-platan
er sú „aðgengilegasta“ til
þessa. Þó er hefðbundnum
melódíum og lagaupp-
byggingu að vanda skipt út
fyrir órólegt flæði, þar sem
frumlegir taktar og alls-
konar „speisað“ eyrna-
konfekt úr verkfærakassa
Curvers hittir Einar Örn,
sem lætur móðan mása um
ýmislegt smávægilegt en
þó stjarnfræðilega stórt.
Mörg stórmenni leggja
málstaðnum lið, meðal
annarra David Byrne og
Stilluppsteypa, og er sá
gestagangur frábært krydd.
Þessa hressandi stuðplötu
á að spila hátt til að maður
gangi inn í hana eins og
álfastein. Sá álfasteinn er
vélmennabar á næstu öld
og allir álfarnir með eitur-
grænt í glösunum.
reykjavík er ömurleg
Innvortis
Traust trukk
Húsfirska rokkmafían
hefur getið af sér bæði
Ljótu hálfvitana og
Skálmöld, en hér er
það pönkbandið Inn-
vortis. Það dúkkar nú
upp með sína aðra plötu
(sú fyrsta kom út árið
1998). Pönktrukkið er
traust, 17 lög á 40 mín-
útum og nánast aldrei
slegið af. Pönkið er
poppað og í amerískum
anda (Dead Kennedys,
Bad Religion, jafnvel
Weezer). Ofurgrípandi
melódíur sullast við
hvert fótmál, flutn-
ingurinn er ægiþéttur
og kraftmikill, textarnir
fínir og hamagangurinn
stundum skreyttur með
frumlegum röddunum
og gítardúllum. Hér
gengur hreinlega allt
upp, nema kannski það
að platan virkar full ein-
sleit þegar á hana líður.
Hljómskálinn
Ýmsir flytjendur
Svona er sumarið
2012
Hér eru fimmtán lög úr
hinum frábæru Hljóm-
skála-þáttum á Rúv:
Einskonar vel heppnuð
sumarsafnplata með
vinsælustu lögunum af
Rás 2 síðustu miss-
erin. Það er hin sniðuga
blanda sem hrífur; það
að láta FM Belfast og
Jóhann Helgason vinna
saman er náttúrlega
snilld, eða þá Magnús
Þór og Jónas Sig, Prins-
póló og Megas; hvað þá
Magnús Eiríksson og
Valdimar Guðmundsson,
nú eða Helga Björns
og John Grant! Hér eru
bæði glimrandi góð
glæný frumsamin lög
og flottar nýjar tökur af
eldri lögum. Næstum því
allt er þrælskemmtilegt,
ferskt og spennandi.
Næs og töff og dvd
fylgir með!
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
56 dægurmál Helgin 27.-29. júlí 2012