Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.08.2012, Qupperneq 6

Fréttatíminn - 03.08.2012, Qupperneq 6
Jakob Bjarnar Grétarsson jakob@ frettatiminn.is Heilsueldhúsið heilsurettir.is Ferðamannastraumur til Íslands eykst ár frá ári og ýmsir hafa áhyggjur af því að landið þoli ekki aukinn átroðning. Kristján Freyr Halldórsson, verslunarstjóri í Bóka- búð Máls og menningar velkist ekki í vafa um hvert straumurinn liggur og ræður það af bóksölu. „Kæru leiðsögumenn á Íslandi, það er eitt ferðakort sem selst áberandi mest í bókabúðunum og það er kort yfir Landmannalaugar: Þórsmörk. Þetta gefur okkur það að það er mun meiri traffík þar en annars staðar á landinu. Þið mættuð kannski beina fólki í aðrar áttir núna..?!“ Þessum tilmælum beinir Kristján til Fa- cebookvina sinna í ferðamálabransanum. Samkvæmt talningum Ferðamála- stofu fóru 74.325 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í nýliðnum júní- mánuði eða tæplega níu þúsund fleiri en í júní á síðasta ári. Þetta þýðir 13,3 pró- senta aukning milli ára en ferðamenn eru sem því nemur fleiri í ár en í fyrra. Ferðamálaráð hefur mælt strauminn í um ellefu ár og er aukning að jafnaði 9 prósent milli ára. - jbg  Ferðamennska Ferðamenn steFna í LandmannaLaugar og Þórsmörk Bókakaup sýna hvert straumurinn liggur Ferðamenn eru nú á hverju strái á Íslandi. Um 13,3 prósent fleiri fóru um Leifsstöð í júní en á sama tíma í fyrra. Ljósmynd/Hari J újú, það er erfitt að eiga við þetta svona eftir á. Og eftir að internetið kom til hættu menn að svara svona vitleysu. Eftir því sem auðveldara er að svara, þá er ekkert svarað,“ segir Kristján Hreinsson skáld. Breytt verklag vegna greiðslna til texta- höfunda liggur fyrir og gengur í gildi í lok þessa árs: Hafi íslenskir textahöfundar ekki leyfi lagahöfunda fyrir textum sínum fá þeir ekki greiðslur vegna flutnings. Á árum áður, þegar Ísland var einangraðara, þótti sjálfsagt að setja saman texta við lag sem náð hafði vinsældum ytra og endurgera. Enginn sá neitt athugavert við það og hefur sá háttur verið hafður á allt fram á okkar tíma og þá með ýmsum hætti. Baggalútur til að mynda hefur nú árum saman sent frá sér nýjan jóla- texta við vinsæl erlend lög. Þeir sem helst eru nefndir í sambandi við að þurfa að súpa seyðið af þessu eru Þorsteinn Eggertsson, Ómar Ragnarsson, Kristján Hreinsson og Bragi Valdimar Skúlason. En þeir eru vita- skuld miklu fleiri. Til að setja þetta í sam- hengi þá er greiðsla vegna lags sem nær máli á öldum ljósvakans á ársgrundvelli milli 300 til 400 þúsund krónur að jafn- aði. Af því fær textahöfundur helming. Það liggur því fyrir að um verulegt tekjutap getur verið að ræða hjá þeim afkastameiri í þessum geira. Kristján Hreinsson furðar sig á þessu sem slíku, segir að hann hafi litið svo á að það standi meira uppá útgefendur að hafa þetta á hreinu. „Ég sem kannski texta, ljóð, sem þykir henta við eitthvað lag. Og það er svo sett á plötu. Ekki þýðing heldur nýtt kvæði. Ef það þarf leyfi til þess þá á það ekki að vera mitt mál.“ Þorsteinn Eggerts- son er líklega afkastamesti textahöfund- ur landsins og mjög virkur í textagerð þegar ekkert þótti sjálfsagðara en taka upp erlend lög og syngja við þá íslenska texta. „Já, þetta er töluvert rask. En það er góður maður að vinna í þessu; Bógómíl Font eða Sigtryggur Baldursson. Hann er í samningaviðræðum við erlendar skrifstofur. Sjálfur er ég svo heppinn að þetta er að koma uppá núna þegar ég er kominn á ellilaun og hef því dágóðan tíma til að stússa í þessu.“ Þorsteinn tekur þessu létt þó um verulega hagsmuni sé að ræða í hans tilfelli; eftir hann liggja fimm hundruð textar, með endurút- gáfum um sjö hundruð og þetta eru lög sem alltaf heyrast. Jakob Frímann Magnússon er formaður Félags tónskálda og textahöfunda. Hann segir að FTT sé mönnum innan handar við að sækja tilskilin leyfi, átak sé um að ræða. „Við skrifuðum nokkrum erlendum aðilum til að afla leyfa og í flestum tilfellum er þetta hægt. Það sem er viðkvæmt og erfitt í þessu er að þetta er algerlega undir geðþótta við- komandi höfundar komið hvort hann vill veita þetta leyfi; einhverjum lókal textahöf- undi og í mörgum tilfellum vilja menn fá hundrað prósent til sín.“ Að sögn Jakobs er verið að þjarma að inn- heimtustofnunum á borð við STEF allstaðar í heiminum með þessi atriði, að þau séu í lagi. „Við hjá STEF erum ein af 230 inn- heimtustofnunum tónhöfunda í heiminum og lútum alþjóðlegum samþykktum CISAC.“ Jakob gerir ekki lítið úr því að þetta geti þýtt tekjutap textahöfunda. Nýlega er búið að fella þetta að þeim sem elstir eru og látnir. „Þeirra réttindi í þessu samhengi eru ekki lengur gild. En, þetta þýðir að menn verða að huga mjög vandlega að því hvort þeir kjósa að helga kröftum sínum erlendu lagi og fá þá hugsanlega ekki krónu fyrir sinn snúð eða hvort þeir vilja semja texta við nýtt lag. Ég veit það að félagi minn Bragi Valdimar, sem iðinn hefur verið við að taka erlend lög og setja við íslenska texta, hann fór að hugsa praktískt fyrir tveimur árum og semja lögin sjálfur. Þetta getur reynst hvati til nýsköp- unar.“ Jakob Bjarnar Grétarsson jakob@frettatiminn.is Farangursbox Opnunartími: Opið virka daga frá kl. 8:00 til18:00 Vagnhöfði 23 Sími: 590 2000 www.benni.is 30% afsláttur Vandað farangursbox til að setja á þakið - 450 l. Verð aðeins: 45.430 kr.  steFgJöLd regLur um úthLutun hertar Textahöfundar verða af hundruðum þúsunda Innan tíðar verður tekið upp breytt verklag við útdeilingu STEFgjalda; sé um að ræða íslenskan texta við erlent lag fá textahöf- undar ekki greitt fyrir flutninginn nema fyrir liggi form- legt leyfi frá upprunalegum höfundi. Jakob Frímann segir að fátt sé svo með öllu illt; nýjar STEF-reglur geti meðal annars stuðlað að nýsköpun. Þorsteinn Eggerts- son er einn afkastamesti textasmiður Íslands og prísar sig sælan að þetta fyrirkomulag skuli koma upp núna, þá hann er kominn á eftirlaun og hefur tíma til að stússast í þessu. Mynd: Hari. 67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann* *konur 25 – 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent okt.-des. 2011 6 fréttir Helgin 3.-5. ágúst 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.