Fréttatíminn - 03.08.2012, Page 44
– Lifið heil
Lægra
verð
í Lyfju
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
04
20
0
6/
12
Gildir út ágúst.
Voltaren Gel
15% verðlækkun.
100 g. Áður: 3.815 kr. Nú: 3.243 kr.
Undirbúðu fæturna fyrir ferðalagið
Þú færð Heelen fóta-og húðvörurnar í apótekum
www.portfarma.is
Í takt við tÍmann Berglind Pétursdóttir dansari
Sá engan mun á Batman og Armageddon
Berglind Pétursdóttir er sjálfstætt starfandi dansari og danshöfundur. Hún heldur úti hinni vinsælu vefsíðu The
Berglind Festival og fylgist vel með hvað margir heimsækja síðuna.
Staðalbúnaður
Ég starfa sem dansari svo ég er oftast í sveittum
joggingbuxum og þeim bol sem er minnst skítugur
þann daginn. Þegar ég er ekki að vinna er ég oftast
í því sem er efst í hillunni hverju sinni. Uppáhaldið
mitt þessa dagana eru grænar velúrbuxur úr
versluninni Kassettu á Laugaveginum og skósíður
netakjóll úr sömu búð. Ég er eins og lax í neti í
þeim kjól, sem sagt mjög glæsileg. Svo er best að
vera bara í skærbláum Nike Free skóm við. Þeir
eru svo mjúkir og góðir fyrir hnén. Ég get ekki
farið út úr húsi án þess að taka með mér son minn,
og iPhone. Mér er alveg sama um allt annað.
Hugbúnaður
Mig langar að fylgjast með fleiri sjónvarpsþáttum
en ég gleymi því alltaf. Horfði síðast á Girls.
Annars hef ég horft á allar Simpsons seríurnar
svona fjórum sinnum og er að meta að læra þær
utan að. Svo elska ég upprunalegu Dallas þættina.
Síðasta bíómynd sem ég sá var Batman en á undan
því horfði á á Armageddon. Ég sá engan mun á
þessum tveimur myndum en það er af því að ég
er stelpa. Um þessar mundir er ég að vinna að
sýningunni Dúnn með sviðslistahópnum Litlar og
nettar, dansa í verki eftir Steinunni Ketilsdóttur
sem verður sýnt í Þjóðleikhúsinu í desember og
taka þátt í og skipuleggja RVK dansfestival sem
verður haldið 21.-31.ágúst.
Vélbúnaður
Appy Hour Reykjavík er besta appið sem iPhone
býður upp á. Það sýnir mér hvar er happy hour
í bænum og það hentar hófdrykkjufólki eins
og mér mjög vel. Instagram er líka mjög mikil-
vægt, ég bara verð að pósta svona 20 myndum af
syni mínum á dag, fólk verður að sjá hvað hann
er fyndinn og skemmtilegur. Ég er forfallinn
Facebook sjúklingur, ef það er ekki á Facebook þá
gerðist það ekki. Svo er ég orðin fíkill í að skoða
hvað margir heimsækja heimasíðuna mína á dag í
gegnum Google Analytics. Ég elska líka að senda
tölvupóst. Mail er mjög vanmetið forrit. Ég þyrfti
eiginlega að eignast svona 200 e-mail pennavini til
þess að geta alltaf verið í Mail.
Aukabúnaður
Starfsins vegna má ég náttúrlega ekkert maula
nema salat og kotasælu. Þess vegna finnst mér
mjög gaman að borða reglulega pítsu. Fólk sem
talar um einhver lambalæri og nautalundir sem
uppáhaldsmat hefur greinilega ekki smakkað
pítsu eða hamborgara. Ruccola pítsan á Eldofn-
inum skákar klárlega hvaða lambalæri sem er.
Latté og croissant á Kaffismiðjunni eða latté og
túnfiskbeygla á Kaffitári og ég er glöð í marga
daga á eftir. Ef ég er að fara
út að skemmta mér, sem
gerist örsjaldan, fer ég á
Prikið á virkum kvöldum
og Kaffibarinn um helgar.
Þegar ég panta mér drykk
á barnum er það oftast
bjór, rauðvín, hvítvín, gin
og tónik, vodki í sóda eða
Fernet Branca. Ég ferðast
um á eldgömlum stationbíl
sem er vís til þess að brotna
í tvennt mjög bráðlega. Ég
ferðast þegar ég á pening,
sem er að meðaltali aldrei,
en ég fór síðast til Marseille
í júní með kærastanum
mínum í vinnuferð. Ég var
að vinna en hann var fullur
allan tímann.
Berglind Pétursdóttir heldur úti
hinni vinsælu heimasíðu The
Berglind Festival. Ljósmynd/Hari
44 dægurmál Helgin 3.-5. ágúst 2012