Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.08.2012, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 31.08.2012, Blaðsíða 22
H E LGA R BL A Ð H E LGA R BL A Ð K ristrún Hermannsdóttir og Falur Þorkelsson eignuðust fjóra drengi, þrjá þeirra fatl- aða. Sá elsti, Hermann Ási, er 24 ára og er greindur með Asperger-heilkenni, sem er ein tegund af einhverfu sem veldur því meðal annars að hann á mjög erfitt með félagsleg sam- skipti. Hann varð einnig fyrir miklu og alvarlegu einelti í grunnskóla sem hefur valdið honum miklum þjáningum. Næst elsti og yngsti drengurinn fæddust með sama erfðatengda sjúkdóminn sem veldur mikilli fötlun og hefur verið greindur sem lítið höfuð ásamt heilahrörnun. Næst elsti sonurinn, Andri Freyr, lést sjö ára árið 1998 en sá yngsti, Eyþór Ingi, er níu ára. Sá eini bræðranna sem glímir ekki við aukaverkefni í lífinu, Axel Ívar, er fjórtán ára. „Við höfum ekkert val. Þetta er bara lífið. Við elskum drengina okkar alla út af lífinu, það gerist bara sjálfkrafa. Maður heldur bara áfram að lifa – þetta er ekkert flóknara en það. Maður hefur ekkert val um neitt annað. Fólk spyr hvernig getið þið þetta. Þetta er ekki spurning um að geta eða geta ekki, maður bara gerir – og ég held við gerum það öll,“ segir Kristrún þegar þau hjónin eru spurð að því hvernig þau takist á við slík örlög. Ranglega greindur misþroska Hermann Ási, sá elsti, var ranglega greindur misþroska þegar hann var um fjögurra ára og var ekki greindur með Asperger fyrr en um 16 ára. Hann fékk því ekki nauðsynlega aðstoð til að vinna úr þeim verkefnum sem Asperger-heil- kennið krefur börn um, svo sem félags- færni, skort á hæfni til að lesa í aðstæður, erfiðleika við tjáskipti og ýmsa þráhyggju- og áráttuhegðun. Hann hefur sérgáfu eins og svo oft vill vera hjá fólki með Asperger. Hann er tónlistarsnillingur en vegna félagsfælni á hann mjög erfitt með að koma fram og spilar því mest í einrúmi. Fötlunin sést ekki mikið utan á honum fyrr en farið er að gera kröfur til hans um félagslega þátttöku. Hann verður vandræðalegur um leið og hann þarf að eiga samskipti við fólk og getur ekki átt augnsamskipti. Hann talar hægt og notar Við höfum ekkert val – þetta er bara lífið Hjón í Bolungarvík, Kristrún Hermannsdóttir og Falur Þorkelsson, eignuðust þrjá fatlaða syni af fjórum, einn er látinn. Tveir fengu sama, arfgenga sjúkdóminn, smáheila og heilarýrnun sem leiðir til fjölfötlunar. Foreldrarnir vissu ekki af arfgengi sjúkdómsins fyrr en sá síðari fæddist því erfða- fræðingur sagði ástæður fötlunar eldri drengsins ekki erfðatengdar. Eldri drengurinn lést eftir sjö kvalafull ár en hinn er orðinn níu ára, býr að reynslu foreldranna og líður betur. Elsti sonurinn er með Asperger ein- hverfu og lenti í alvarlegu einelti sem foreldrarnir segja að sé jafnvel erfiðara að horfast í augu við en líkamlega fötlun drengjanna tveggja. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is fá orð. Flest tilsvör hans eru eins atkvæðis, nei eða já. Hann er ekki fær um meira en það þegar hann talar við ókunnuga. Þótt hann langi. Hann bara getur það ekki, segir hann. „Ég hef alveg áhuga á að tala við fólk en ég veit ekki hvað ég á að segja,“ útskýrir Hermann. „Ég bara frýs.“ Hermann lenti í alvarlegu einelti í skóla sem hefur skilið eftir stórt sár á sálu hans. Hann hefur mjög skaddaða sjálfsmynd og lítið sjálfstraust og hefur glímt við gríðar- legt þunglyndi á síðustu árum sem varð meðal annars til þess að hann var inn og út af geðdeild á tímabili og dvaldist um hríð á Kleppsspítalanum. Hann hefur oft strítt við sjálfsvígshugsanir og vanlíðan og hefur jafnvel gert kröfu á foreldra sína um aðstoð við að taka eigið líf. Nú um stundir býr hann einn í íbúð á vegum Ísafjarðar- bæjar og fær stuðning, svo sem liðveislu og heimilishjálp. Hann er í Menntaskólanum á Ísafirði enda með góða huglæga greind þó svo að einhverfan komi í veg fyrir að hann geti stundað nám af fullum hraða. Það er eitt að taka á því ef ein- hver getur af líkam- legum ástæðum ekki lifað en annað ef ein- staklingur missir löngunina til að lifa, vegna framkomu annarra í hans garð. Þrír af fjórum sonum Kristrúnar Hermannsdóttur og Fals Þorkelssonar hafa þurft að glíma við mörg aukaverkefni í lífinu sökum fötlunar sinnar. Einn þeirra lést sjö ára en hann glímdi við sama sjúkdóm og níu ára bróðir hans sem er fjölfatlaður. Frumburðurinn er greindur með Asperger-einhverfu. Nú er ég farin að leyfa mér stundum að vera bara lítil og aum og bogna svolítið. framhald á næstu síðu Hann þarf enn mikla aðstoð foreldra sinna, sem búa í Bolungarvík með Eyþór og Axel. Eyþór er bundinn hjólastól og þarf aðstoð við alla þætti daglegs lífs. Hann getur ekki tjáð sig eða haft samskipti þótt foreldrar hans geti greint líðan hans af svipbrigðum hans einum saman. Hann fær næringu í gegnum slöngu sem leidd er inn í magann því hann missti hæfileikann á að geta kyngt um eins árs aldur. Hann er flogaveikur og þjáist af ósjálfráðum vöðva- kippum, er þroska- og hreyfihamlaður. Kvaldist alla ævi Bróðir hans, Andri sem lést árið 1998, þjáð- ist af sama sjúkdómi. „Við vissum ekki fyrr 24 úttekt Helgin 31. ágúst-2. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.