Fréttatíminn - 31.08.2012, Side 36
Þórarinn Þórarinsson
-13 ára reynsla
Fyrsta starf í blaðamennsku:
Blaðamaður á Vísir.is 1999
Ferill:
Blaðamaður á Vísir.is, blaðamaður og
kvikmyndagagnrýnandi á Strik.is, fréttastjóri innblaðs Fréttablaðsins,
ritstjóri Mannlífs, ritstjóri DV - blaðamaður á Fréttatímanum
H E LGA R BL A Ð
H E LGA R BL A Ð
REYNSLUMIKIL RITSTJÓRN
REYNSLUMIKIL RITSTJÓRN
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
-13 ára reynsla
Fyrsta starf í blaðamennsku:
Blaðamaður á Sunnudagsblaði Moggans 1999.
Ferill:
Blaðamaður á Morgunblaðinu, fréttaritari Morgunblaðsins í London,
blaðamaður á Fréttablaðinu, stofnandi og ritstjóri Krónikunnar,
aðstoðarritstjóri DV - blaðamaður á Fréttatímanum
fyrir því að tvíburar fæðist fyrir tímann. Ég ætlaði
að vera frá, frá miðjum desember, en var á end-
anum sett af stað, komin þrjátíu og níu vikur á leið.
Fyrsta almennilega vinnutörnin var heima hjá mér
þegar þau voru þriggja vikna,“ segir hún. „Já, þau
voru pínulítil,“ skýtur Helga inn.
Fórna svefni fyrir lífsstílinn
Tinna segir að það komi dagar þar sem hún sé
ekki á skrifstofunni. „En við Helga heyrumst samt
alltaf tíu sinnum á dag, í síma, tölvupósti. Ég held
því að hún geti engan vegið ákveðið hvernig hún
ætlar að hafa þetta.“ Þær hlæja.
En þessi lífsstíll er ekki þrautalaus. Tinna segist
heppin. Tvíburarnir séu góðir. „Ég held þetta snúist
um viðhorf. Ég sef ótrúlega lítið. Ég er alltaf með
barn, alltaf að gefa; alltaf með barn á hendi. En ég
vissi að það yrði þannig og þar af leiðandi finnst
mér þetta minna mál en ég gerði ráð fyrir. Það var
búið að búa mig undir að þetta yrði erfitt,“ segir
hún og slær ekki af kröfunum.
„Ég hef fundið tíma til að sinna fyrirtækinu. Ég
er búin að fara á skíði tvisvar til Akureyrar. Ég er
búin að fara á öll þessi handbolta- og fótboltamót.
Ég er búin að ferðast um allt landið. Ég á tvö önnur
börn. Ég get ekki sagt við þau að í eitt ár ætlum við
ekki að gera neitt sem viðkemur þeim: Ætlum ekki
að fara í handbolta, fótbolta, fara á skíði, til Vest-
mannaeyja, Hrísey, sofa í tjaldi. Við ákváðum að
láta tvíburana ekki breyta lífi okkar. En á móti kem-
ur að mamman verður ótrúlega þreytt og missir sig.
Og við hvern? Manninn sinn,“ segir hún.
„Ef það er eitthvað sem ég er ekki að sinna er það
við tvö sem eitt. Við vinnandi mæður erum engar
súperkonur. Þetta bitnar á einhverju. Þetta reynir á
heimilislífið og á sambandið. Við Kalli tvö! Hvenær
höfum við verið tvö? Aldrei. En við horfumst í augu
og segjum: Ok, við hittumst eftir tvö ár,“ segir hún
og hlær.
„Á meðan við tölum um þetta vitum við af þessu.
Kalli myndi aldrei spyrja mig: Af hverju ert þú að
vinna? Hann styður mig hundrað prósent, hvetur
mig áfram og segir: Við vinnum þetta saman.“
Gleymdu að hún væri ólétt
Helga tekur undir. „Það skiptir miklu máli að
eiga maka sem er skilningsríkur.“ Tinna tekur við:
„Já, og maka sem hefur sama metnað. Engin okkar
fjögurra lítur svo á að skilja þurfi að vinnu og fjöl-
skyldulíf. Ég hef verið í vinnu þar sem að mark-
mið kvenna sem vildu ná frama var að ræða aldrei
um fjölskyldu sína. Ég hef alltaf verið á öndverðum
meiði. Ég hef sagt frá því þegar barnið mitt á af-
mæli og að ég þurfi að sækja það í dag. Ég er móðir,
eiginkona (þótt hún sé svolítið til hliðar þessa
dagana) og starfsmaður. Líka vinkona. Við segjum
þess vegna við starfsfólkið okkar: Þið megið eiga
fjölskyldulíf.“
En Tinna skilur afstöðu þeirra kvenna sem halda
fjölskyldunni fyrir sig, því innan sumra fyrirtækja
sé ekki gert ráð fyrir því. „Þegar ég var ólétt af
elstu dóttur minni vann ég með karlmönnum. Ég
sagði við þá að ég ætlaði að hætta að vinna á Þor-
láksmessu, tveimur þremur vikum fyrir. Ég man
að um kvöldið 5. janúar, og ég var sett þann sjötta,
fæ ég tölvupóst þar sem mér er sagt að leysa þurfi
ákveðinn vanda. Ég yrði að hitta þá á flugvellinum
í fyrramálið! Það sem var gott við þetta var að karl-
arnir litu ekki á mig sem konu eða móður, bara
starfskraft. Ég þurfti að benda þeim á að ég væri
sett þennan dag. Þeir gleymdu því. Það er frábært
en sýnir kannski ólíkan muninn.“
Kynjamunur? Á þeirra heimili sjá þeir um matinn.
„Kalli eldar sjö kvöld vikunnar,“ segir Tinna. „Það
er nánast þannig heima hjá mér líka,“ viðurkennir
Helga. Báðar segjast búa til salatið og baka. „Þeir
bara vilja elda!“ Þær hlæja. Helga segir Jón Hauk
miklu betri í eldamennskunni og báðar segjast þær
hafa einfaldari matarsmekk en þeir. „Kalli segir við
mig: Tinna þú gætir lifað á Weetabixi öll kvöld. Já,
svara ég og yppti öxlum. Hann skilur það ekki.“
Skiptast á að sækja fram
Það er augljóst að þau fjögur; Guðrún Tinna, Karl
Pétur, Helga og Jón Haukur hafa náð sama ryþma,
enda hagað lífi sínu með svipuðum hætti. Á báðum
heimilunum hafa þau skiptst á að vinna erlendis og
gefið hvort öðru tækifæri til að ná frama. Á meðan
hefur hitt haft heimilið meira á sínum herðum. „Ég
var í fimm ár alltaf þrjá daga í viku erlendis. Kalli
var í San Diego og Króatíu, er nýfluttur heim og
ég hef verið tvö ár heima,“ segir Tinna. Og Helga:
„Já, við Jón Haukur höfum fjórum sinnum verið í
fjarbúð.“
En álagið er mikið og það vita þær. Árangurinn
er líka góður. Helgu hefur tekist að festa barnafata-
verslunina í sessi og saman taka þær Tinna þaul-
skipulögð skref í útrás barnafatnaðarins. Þær nýta
sér reynsluna sem þær hafa, samböndin sem þær
hafa myndað og eru óhræddar að þiggja ráð þegar
þær telja sig þurfa. Tengslanet séu svo mikilvæg og
þær geti leitað til margra mjög hæfra einstaklinga.
Þær hafa ákveðið að stækka ekki nema að það borgi
sig og fötin fást víða um heim: Danmörku, Svíþjóð,
Noregi, Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi, Lúxem-
borg, Nýja Sjálandi og auðvitað hér.
Þær stöllur tóku þá ákvörðun að færa verslunina
af Laugaveginum og opna nýja í Kringlunni. Vika er
í opnunina og haustlínan klár – sú sjöunda í röðinni
frá því að sú fyrsta var kynnt árið 2009. Fötin hafa
fengið góðar viðtökur og var vörulína og kynningar-
herferð Ígló fyrir sumarið 2012 á dögunum valin sú
besta í sínum flokki af fyrirtækinu Stylesight. Það
aðstoðar kaupendur út um allan heim við að velja
vörur fyrir næstu sölutímabil.
„Þetta er búið að vera rosalega mikil vinna;
fyrirtækið, fjölskyldan og börnin. En þetta er svo
skemmtilegt,“ segir Tinna. „Fólk spyr mig: Af
hverju ertu að keyra þig svona út? Og ég verð að
viðurkenna að ég er oft rosa þreytt og Helga er á
steypirnum. Hún á að eiga eftir mánuð. En þetta er
það sem við viljum.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
„Ég sef ótrúlega
lítið. Ég er alltaf
með barn, alltaf
að gefa; alltaf
með barn á
hendi. En ég
vissi að það
yrði þannig og
þar af leiðandi
finnst mér þetta
minna mál en
ég gerði ráð
fyrir.“
36 viðtal Helgin 31. ágúst-2. september 2012