Fréttatíminn - 31.08.2012, Qupperneq 56
44 heilsa Helgin 31. ágúst-2. september 2012
Líkamsrækt skemmtun og hreyfing í senn hreyfing eLvar Þór var tvítugur Þegar hann stofnaði crossfitstöð
nýtt ísLenskt æfingaprógramm á eLLefu stöðum á Landinu
Fimmtán hundruð manns mættu
í kynningartíma í Metabolic á
ellefu stöðum á landinu í síðustu
viku. Metabolic eru hópþrektímar
fyrir alla þá sem vilja minnka fitu
og auka vöðvamassa, styrk, kraft,
hraða og þol. Körfuboltafrömuður-
inn Helgi Jónas Guðfinnsson setti
æfingaplanið saman svo ná mætti
árangri með 45 mínútna æfinga-
tíma.
Fannar Karvel íþróttafræðingur
kennir Metabolic í Digranesi í
Kópavogi. Fannar var áður þjálfari
í Sporthúsinu en hefur kúplað sig
frá því og hafið eigin starfsemi
með konu sinni, Sigríði Þórdísi Sig-
urðardóttur. „Þetta er ekkert „ext-
reme“. Ekki brjáluð keyrsla, heldur
sniðið að meðalmanninum,“ segir
Fannar. „Það er ekki fyrir alla að
vera alltaf sveittir og útkeyrðir eftir
allt að tveggja klukkustunda púl.“
Margir sem fari of geyst af stað og
æfi of lengi nái ekki takmarki sínu
um betra form þar sem þeir sæki í
orkudrykki og aukahitaeiningar til
að keyra upp kraftinn að nýju.
„Grunnþráðurinn í gegnum þetta
allt er að hraða efnaskiptum líkam-
ans. Æfingarnar eru fjölbreyttar
og mismunandi álagspunktar í
hverjum tíma. Ég hef ekki ennþá
notað sömu rútínuna og er samt
búinn að kenna Metabolic í þrjár
vikur.“
Fannar segir hvern og einn geta
sérsniðið æfingaráætlunina, því
boðið sé upp á átta tíma á viku og
hver og einn því ekki bundinn af
því að mæta alltaf á sama tíma. Þá
sé hópurinn í Digranesinu örlítið
eldri en á mörgum líkamsræktar-
stöðvunum, flestir á aldursbilinu
25-35. „En þó er ein sextug og hún
æfir við hlið manns sem var að
snúa heim úr atvinnumennsku í
handbolta.“
Þeir sem eru ekki mikið fyrir „hefðbundna“ líkamsrækt hafa enga afsökun lengur fyrir
því að hreyfa sig ekki því sjaldan hefur verið jafnmikið framboð af frumlegum líkams-
ræktartímum en nú. Kramhúsið er dans- og listasmiðja í miðborginni sem fer ótroðnar
slóðir og býður upp á tíma í húllahoppi og diskódansi og einnig afró fyrir karla.
„Við ætlum að skora aðeins á karlpeninginn að prófa afró, sem eru vestur-afrískir
dansar og puð,“ segir Þórunn Ásdís Óskarsdóttir, verkefnastjóri í Kramhúsinu. „Ég
hugsa að þetta sé töluvert erfiðara líkamlega séð heldur en þeir
halda, þannig að þeir fá súper góða líkamsrækt og hreyfingu út
úr þessu. Og fá að dansa í friði, sem er örugglega eitthvað sem
þeir gætu hugsað sér að gera, – án þess að við konurnar séum
að „dæma“ þá eitt né neitt,“ segir hún og hlær.
Karlkyns dansari frá New York, Mamady Sano, kennir körl-
unum afró. „Hann er reyndur kennari og passar sig að hafa
sporin einföld svo að allir nái þessu. Samhæfing er einmitt eitt-
hvað sem hverfur svolítið með aldrinum hjá mörgum og þetta er
góð æfing í henni,“ segir hún.
Á föstudagskvöldum verður boðið upp á diskódans og einnig
verða í boði tímar í húllahoppi. „Erlendis hafa húllahringir verið
að koma aftur í tísku, nú meira hjá fullorðnum. Svo nú er komið
að vakningu hér á landi, við ætlum að smita fleiri af húllaæðinu,“ segir Þórunn. „Fyrir
utan að vera frábær skemmtun er þetta hin besta hreyfing fyrir líkamann.“ -sda
Tilboðið gildir til 30 sept 2012
Húllahopp, diskó og afró fyrir karla
1.500 prófuðu Metabolic
Við hjá Signatures of Nature
bjóðum upp á einfaldar meðferðir
sem konur geta stundað
heima til að stuðla að
heilbrigðum líkama.
Margar konur sem æfa
reglulega svitna mikið
og þá verður oft smá
rakatap sem getur kom-
ið fram í þurri húð.
Nú sérstaklega í vet-
ur, er við klæðum kuld-
ann af okkur, verður
húðin oft minna frísk-
leg og til eru ýmis ráð
til þess að huga betur að
henni til að viðhalda raka og frísk-
leika hennar og um leið stinna
hana og styrkja.
Meðferðin sem við mælum með
er gott að stunda einu sinni i viku
og þá er það þurrburst-
un, olíu body skrúbb og
olíubað.
Meðferðin örvar sog-
æðakerfið vegna þess
að örvun á blóðrás
verður og er það gerist
fær húðin meiri nær-
ingu frá blóðinu fyrir
utan að hreinsun á sér
stað í gegnum sogæða-
kerfið. Dauðar húð-
frumur losna af yfir-
borði húðar í leiðinni
þannig allt sem þú setur á húðina
næstu daga virkar betur. Þessi
meðferð tekur alls ekki langan
tíma. Við erum alltaf með tilbúnar
leiðbeiningar sem fylgja með og
fyrir utan hversu áhrifarík með-
ferðin er að þá er þetta líka svo gott
fyrir andlegu hliðina, því vellíðan á
eftir er dásamleg. Vörurnar okkar
eru auk þess hreinar eða án allra
kemískra efna og eru með Eco-
cert vottun. Þær eru stútfullar af
ferskum vítamínum og þá sérstak-
lega E-vítamíni og því hreinni vöru
sem þú notar þá nær húðin, sem er
stærsta líffæri líkamans, að anda
betur. Þannig viðheldur hún enn
meiri frískleika.
Einföld meðferð fyrir heilbrigðan líkama
K y n n i n g
Anna María Ragnars-
dóttir snyrtifræðingur.
Virkilega gefandi að
sjá fólk öðlast nýtt líf
e ins og frægt er orðið þá vorum við að opna í glæsilegu nýju húsnæði í Elliðarárdalnum,“ segir Elvar Þór
Karlsson crossfitfrömuður en hann er einn
af þeim sem ber ábyrgð á þessu crossfit-æði
sem gripið hefur landann. „Þetta er risastöð
hjá okkur, fjórtán hundruð fermetrar og við
erum bæði með bootcamp og crossfit, þrjá
stóra sali og lyftingaaðstöðu og svo erum við
jú að byrja með barnagæslu,“ útskýrir Elvar
sem er þó sjálfur ekki í barneignahugleið-
ingum enda er þessi ungi frumkvöðull aðeins
22 ára gamall.
Elvar segir að hann hafi verið kominn með
nóg af tölvuleikjum tólf ára en hann tilheyrir
þeirri kynslóð og stundaði ekki íþróttir sem
krakki. „Ég fór ekki að hreyfa mig fyrr en
sextán þegar ég fór á námskeið hjá bootcamp.
Þá gat ég varla hlaupið tvo kílómetra og gat
heldur ekki framkvæmt tíu armbeygjur,“
segir Elvar sem er nú kominn að mestu yfir
í crossfit og hefur hlaupið nokkur maraþon,
Laugaveginn og hundrað kílómetra hlaup auk
þess sem hann hefur keppt á heimsmeistara-
mótum í crossfit og svo mætti lengi telja.
Nú eru þetta miklar andstæður, heilsuæði
þjóðarinnar annars vegar og offitufaraldurinn
hins vegar, og segir Elvar að þar sé öfgum
Íslendinga rétt lýst. Hann er enginn undan-
tekning og hreyfing hefur heltekið hann og
breytti lífi hans. „Sem er nú ástæðan fyrir
því að ég er í þessu af þessum krafti. Ég vil
breiða út þennan boðskap því bootcamp og
crossfit hefur hjálpað mér mikið.“
Elvar bætir því við að það sé ekkert smá
gefandi að sjá fólk öðlast nýtt líf með hreyf-
ingu: „Til okkar kemur allskonar fólk. Íþrótta-
fólk sem er að ljúka sínum ferli í sinni íþrótt
en vill halda sér í formi og fólk sem hefur
aldrei hreyft sig. Það er ótrúlegt að sjá fólk
koma og fyllast af sjálfstrausti, líta betur út og
hafa meiri orku til að takast á við lífið.“
Auk Elvars eru tveir aðrir eigendur að nýju
stöðinni, þeir Arnaldur Birgir Konráðsson
og Róbert Traustason. Þeir tveir stofnuðu
bootcamp fyrir átta árum og Elvar byrjaði að
æfa hjá þeim en stofnaði sjálfur crossfit fyrir
tveimur árum. Nú eru vinirnir sameinaðir á
ný og bjóða byrjendur jafnt sem lengra komna
velkomna á námskeiðin sem hægt er að afla
upplýsinga um á bæði www.crossfitstodin.is
og www.bootcamp.is.
Elvar Þór
Karlsson er
einn þriggja
eigenda
nýju Cross-
fit- og
bootcamp
stöðvarinn-
ar í Elliðaár-
dal. Hann
byrjaði
sextán að
æfa boot-
camp og
var tvítugur
kominn
með sína
eigin stöð.
Hann segir
allskonar
fólk koma á
námskeiðin,
íþróttafólk
og fólk sem
aldrei hafi
hreyft sig.
Elvar Þór Karlsson pískar liðið áfram í Elliðaárdalnum. Ljósmynd/Hari