Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.08.2012, Side 61

Fréttatíminn - 31.08.2012, Side 61
Helgin 31. ágúst-2. september 2012 K R A FT A V ER K Bláberjabomba (384 Kcal) 11.2 gr prótein, 65 gr kolvetni, 11 gr fita 20 gr möndlur með eða án hýðis sem lagðar hafa verið í bleyti yfir nótt (ca 10-12 stykki) 2 döðlur, fínt að leggja þær í bleyti í smá stund ef þær eru harðar. 20 gr hveitikím 1 banani 100 gr frosin eða fersk bláber • Vatn eftir þörfum Möndlurnar og döðlurnar eru fyrst settar í blandarann og blandað þar til orðið silkimjúkt. Þá er restinni bætt saman við og blandað vel. • Hentar ekki fyrir fólk með glútenóþol útaf hveitikíminu • Hveitikím er mjög næringarríkt en það inniheldur 23 næringarefni og í hverju grammi er að finna mun meira magn næringarefna en í öðru grænmeti eða korni. Hveitikímið inniheldur meira magn af kalíum og járni en nokkur önnur fæðutegund. Mikið er að finna af A, B1 og B3 vítamínum auk E vítamíns. Algjör ofurfæða. • Möndlurnar eru einnig mjög góðar en þær innihalda mikið magn af góðri fitu sem er nauðsynleg fyrir okkur.  Heilsudrykkir Próteinrík bláberja- bomba heilsa 49 Bláberja- myntudrykkur 8-10 myntulauf Safinn úr hálfri límónu og hinn helmingurinn í bátum 1 msk hrásykur handfylli af bláberjum Sódavatn Klakakurl Setjið límónu, hrásykur og myntu saman í glas og merjið saman. Bætið bláberjum út í og merjið örlítið saman við. Bætið við klakakurli eftir smekk og fyllið glasið með sódavatni. Skreytið með bláberjum og ferskri myntu. Bláberjadrykkur Bláberja morgunverðardrykkur (402 Kcal) 13,8 gr prótein, 65 gr kolvetni, 10,7 gr fita Mjög bragðgóður og saðsamur morgunverðardrykkur sem stendur vel með manni. 100 gr (2 dl) aðalbláber eða frosin ber 1 banani, þroskaður og gott að hafa hann frosinn 30 gr (1 dl) haframjöl 1 msk hörfræ 200 ml léttmjólk (2 dl) (má vera möndlumjólk, rísmjólk eða nýmjólk) 1 tsk akasíu-hunang eða önnur sæta, t.d. 2 döðlur eða 1 tsk agave. Haframjölið og hörfræin sett saman í blandarann og blandað þar til haframjölið er orðið að dufti og hörfræin mulin. Öðru hráefni bætt saman við og hrært vel.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.