Fréttatíminn - 31.08.2012, Síða 76
Ég hef í raun
látið það áreiti
í lífi mínu sem
hefur valdið
sárum verða
að skúlptúrum.
Minjar meistaranna
Sýningin Minjar meistaranna, The Heart
Shrine Relic Tour, hefur verið sett upp í 64
löndum og nú er röðin komin að Íslandi en
sýningin opnar í húsi Ljósheima í Borgartúni
3 í dag, föstudag. Sýningunni var ýtt úr vör
af Maitreya-stofnuninni, sem Lama Zopa
Rinpoche fer fyrir, en tilgangur stofnunar-
innar er að breiða út kærleiksríka góðvild
og innri frið meðal einstaklinga, samfélaga
og heimsins alls. Minjar hinna miklu andlegu
meistara eru til sýnis í líki
perlulaga kristalla sem
kallast „ringsel”.
Samkvæmt búdd-
ískri hefð geyma
kristallar þessir
kjarna vitundar
meistaranna sem
skilja þá eftir þegar
þeir yfirgefa þetta jarðlíf
til blessunar fyrir aðra. Á sýningunni eru
meðal annars minjar hins sögulega Búdda,
Shakyamuni Búdda.
Fyndin
ópera á
Rósenberg
Óperuverkið Ráðs-
konuríki var frum-
sýnt á Rósenberg
á fimmtudag.
Verkið verður sýnt á
Rósenberg alla fimmtudaga í september
til fimmtudagsins 4. október auk sýningar
föstudagsinn 21. september. Alþýðuóperan
stendur að sýningunni en þetta uppfærslu-
form telst til nýmæla á Íslandi þar sem
óperan er sett upp á bar sem farandsýn-
ing og hefur tónlist hljómsveitarinnar
verið útsett upp á nýtt fyrir gítar. Ráðs-
konuríki fjallar um þjónustustúlkuna
Serpinu en henni þykir hún hafa heldur lítil
völd á heimili sínu og einsetur sér að verða
þar húsfrú með því að giftast húsráðand-
anum, Uberto. Mállausi þjónninn Vespone
nýtist henni í þessum bragðaleik. Miðar
eru seldir á midi.is
Sýningin SKIA opnar í
Hafnarborg á föstudag. Á
sýningunni eru kannaðar
ólíkar birtingarmyndir
skuggans í verkum nokk-
urra íslenskra myndlistar-
manna frá því um miðja
20. öld og til samtímans
en gríska orðið SKIA
merkir skuggi.
Sýningarstjórinn, Guðni
Tómasson, hefur valið á
sýninguna verk sem fjalla
á einn eða annan hátt um
skuggann. Á sýningunni
birtist skugginn sem það
náttúrulega fyrirbæri
sem verið hefur hluti af
listinni allt frá því menn
tóku að gera eftirmyndir
raunveruleikans í gegnum
myndlist. En hann birtist
einnig sem flóknara heim-
spekilegt fyrirbæri eða
tákn um sálrænt ástand.
Listaverkin eru af ýmsum
toga, bæði málverk,
ljósmyndir, myndbands-
verk og skúlptúrar sem
yfirtaka rýmið ýmist sem
andlegur skuggi eða hlut-
gerður sem efnismassi.
Listamennirnir sem
eiga verk á sýningunni
eru Elías B. Halldórsson,
Gabríela Friðriksdóttir,
Haraldur Jónsson, Helgi
Þorgils Friðjónsson,
Hringur Jóhannesson,
Jóhann Briem, Katrín
Elvarsdóttir, Kristján Guð-
mundsson, Magnús Páls-
son, Ragnar Kjartansson,
Ralph Hannam, Sigurður
Árni Sigurðsson, Snorri
Arinbjarnar og Þorvaldur
Skúlason.
Myndlist Erró Er áttræður og Mætir í HafnarHúsið á Morgun
Unglingar í áttræðisafmæli Errós í Hafnarhúsinu
Mikael Torfason
mikaeltorfason@
frettatiminn.is
„Við ætlum að hafa svona smá grafíkinnkomu
á sunnudaginn í Hafnarhúsinu,“ segir Anna
Snædís Sigmarsdóttir, kennari og grafíklista-
kona, en á morgun opnar yfirlitssýning í Lista-
safni Reykjavíkur á merkustu
grafíkverkum Errós í tilefni af
áttræðisafmæli listamannsins í
júlí. Daginn eftir, á
sunnudaginn klukk-
an þrjú, verður opið
hús fyrir unglinga
eldri en þrettán ára og fá
krakkarnir að spreyta sig og búa til
grafíklistaverk.
„Þetta er hugsað fyrir ungt fólk,
unglinga, en það eru auðvitað allir velkomnir,“
útskýrir Anna sem segir það ágætis þróun að
fólk fái sjálft að taka þátt og skapa listaverk.
Sjálf er Anna kennari í Tækniskólanum og segir
starfið auðvitað einkennast af uppistandi og hún
muni vera í stuði og halda uppi stemningunni á
sunnudaginn.
Sjálfur hefur Erró sagt að „maður verði gamall
af því að gera ekkert“ og miðað langa vinnudaga
listamannsins enn þann dag í dag þá er hann
kornungur. Erró sjálfur mætir og verður við opn-
unina á morgun en Jón Gnarr opnar sýninguna.
Þá verða einnig afhent myndlistarverðlaun og
viðurkenning úr sjóði sem kenndur er við móð-
ursystur Errós, Guðmundu S. Kristinsdóttur.
Anna Snædís Sigmarsdóttir
ætlar að kenna unglingum
eldri en 13 ára að búa
til grafíkverk á
sunnudaginn.
Erró er áttræður og mætir á opnun sýningar á grafíkverkum sínum í
Hafnarhúsinu á morgun, laugardag.
Myndlist Erlingur Jónsson MyndHöggvari MEð sýningu á lJósanótt
É g er reyndar ekki með neina sýningu held-ur allt hið góða fólk í
Keflavík,“ segir Erlingur Jón-
son myndhöggvari um sýn-
ingu sína sem opnuð verður
nú um helgina, á Ljósanótt,
í Reykjanesbæ. „Já, í Reykja-
nesbæ auðvitað,“ leiðréttir
Erlingur og segir að þetta
hafi allt borið svo brátt að, að
segja megi að hann hafi ekk-
ert með þetta að gera.
Erlingur er hér í stuttu
stoppi en hann hefur búið í
Noregi í næstum 30 ár. Sýn-
ingin verður haldin í Duus-
húsum og segir Erlingur að
því miður hafi eitt nýjasta
verkið hans ekki komist inn
um dyrnar: „Ætli ég verði
ekki að sýna það seinna.“
En hvernig er að vera
kominn heim?
„Ja, eins og þeir segja í
Noregi þá er gott að fara
utan en heima er alltaf best,“
svarar Erlingur sem segist
kornungur með sín 82 ár
að baki. Hann neitar því að
aldurinn og viskan geri það
að verkum að hann sé kom-
inn í algert jafnvægi: „Nei,
við náum aldrei jafnvægi og
megum það ekki því þá fer
okkur aftur um leið.“
Margt hefur gerst á
þessum árum og Erlingur
á tvö uppkominn börn sem
eiga tvær yndislegar stelpur.
Hann flutti utan 1983, ári
eftir að hans besti vinur og
lærifaðir lést: „Ég var búinn
að vinna með Sigurjóni
Ólafssyni myndhöggvara
svo árum skipti, var aðdá-
andi hans og aldrei langt frá
honum í hugsun og anda, ég
var meira að segja svo hepp-
inn að vera nemandi hans
og aðstoðarmaður í allmörg
ár. Svo dó hann og þá fann
ég mig í tómarúmi. Ég hafði
á sínum tíma lært í Noregi
og þar voru vinir mínir alltaf
að spyrja mig af hverju ég
kæmi ekki þangað og ynni
með þeim. Það vildi þá til
að auglýst var laus staða við
Oslóarháskóla og ég hreppti
hana. Fyrst ætlaði ég bara
að vera ár en lengst hefur í
þeirri dvöl.“
Á sýningunni í Duus-
húsum á Ljósanótt sýnir
Þetta hefur liðið eins
og hendi sé veifað
Erlingur Jónsson myndhöggvari hefur búið í Noregi í næstum þrjátíu ár. Hann er hér í stuttu
stoppi og opnar sýningu á Ljósanótt nú um helgina. Nýjasta verkið var svo stórt að það komst
ekki inn um dyrnar og verður því að sýna það seinna.
Erlingur Jónsson myndhöggvari. „Við náum aldrei jafnvægi og megum það ekki því þá
fer okkur aftur um leið.“ Mynd Hari
Skuggar í Hafnarborg
Dauðinn og börnin eftir Ragnar Kjartansson frá 2002.
Erlendur verk sem hann lýsir sem hrúðri á sárin
sem lífið hefur veitt honum á stundum: „Þetta eru
vísbendingar. Ég hef í raun látið það áreiti í lífi
mínu sem hefur valdið sárum verða að skúlptúr-
um. Þannig græði ég sárin. Þessi verk eru ekkert
meira eða minna en það.“
Aðspurður hvaðan áhrifin koma útskýrir
Erlingur að hann gangi fyrst og síðast í sínum
eigin þönkum: „Í hvers þönkum ætti ég annars
að ganga? Ég fer ekki eftir neinum heimsfrægum
fyrirbrigðum eða stílum.”
Varðandi lífið og háan aldur, 82 ár, segir Erling-
ur að honum finnist allt eftir: „Þetta hefur liðið
eins og hendi sé veifað.“
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
64 menning Helgin 31. ágúst-2. september 2012