Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.06.2011, Blaðsíða 52

Fréttatíminn - 03.06.2011, Blaðsíða 52
48 grill og matur Helgin 3.-5. júní 2011 Þ að er oft sagt að bragðið felist í fitunni. Það er al- veg rétt. En öllu má ofgera. Það þarf ekki einn og hálfan sentimetra af fitu utan á kjötinu. Svoleiðis fita smýgur ekkert inn í kjötið, hún ýrir bara eld- inn og lætur steikina brenna. Nóg er að fiturönd- in sé hálfur sentimetri. Það er fitan sem er inni í kjötinu, það sem kallað er marbling á ensku en gæti útlagst marmarafita á íslensku. Sú fita bráðnar inn í kjötið og gerir allt djúsí. Þykktin á kjötinu á líka að vera að minnsta kosti tveir senti- metrar eigi að vera mögulegt að ná þessari marmarafitu inn í kjötið áður en það ofþornar í eldinum. Salt og pipar má líka alveg fara á kjötið um fimm mínútum áður en það er grillað. Grillið á líka að vera alveg blússandi heitt til þess að grind- urnar nái að karamelisera þessar flottu grillrendur í kjötið. Grindurnar verða líka að vera þykkar til þess að ná þessu. Lokið á líka að vera niðri eins mikið og hægt er. Grilltíminn er auðvitað mismunandi eftir grillum og þeim hita sem þau ná upp en fjórar mínútur á fyrri hliðinni og tvær til fjórar á hinni ætti að vera um það bil medium. Ef það á að reyna við krossrendur er það bara gert á fyrri hliðinni með því að snúa steikinni 90 gráður eftir um 2 til 3 mínútur á fullu blasti. Ef það gýs upp eldur þarf að koma steikinni í var í nokkrar sek- úndur og setja hana svo yfir eldinn aftur. Það borgar sig því að vera alltaf með pláss á grillinu þar sem ekki er beinn logi undir þótt ekki sé verið að grilla við óbeinan hita. Svo þarf að hvíla steikina í nokkrar mínútur áður en byrjað er að borða. Haraldur Jónasson hari@frettatiminn.is Á rauð- glóandi grillið Prime ribs eru með stórri fiturönd sem gengur í gegnum steikina. Hún bráðnar ofan í kjötið að hluta en gæta verður þess að hafa steikina nógu þykka, minnst tvo sentimetra, til að hún ofþorni ekki á grillinu. Grillið á að vera alveg blússandi heitt til þess að grindurnar nái að karameli­ sera þessar flottu grillrendur í kjötið. Grindurnar verða líka að vera þykkar til þess að ná þessu. Að velja góða nautasteik er ekki alltaf einfalt mál. Mismunandi hlutar nautsins bjóða upp á mis­ munandi bragð, áferð og tyggjanleika. Einfaldasta leiðin til að tryggja að kjálkarnir þurfi ekki þriggja daga hvíld er að því nær bakinu sem steikarbitinn var skorinn frá, því mýkri verður steikin. Allt í steik Val á góðum steikarbita L undin er á toppnum hvað mýkt varðar. Hún er líka dýrasti hlutinn. Vandamál lundarinnar er þó að hún býr yfir mjög lítilli fitu, sem þýðir að ef hún er ofelduð bara um nokkrar gráður er hún þurr og allt að því vond. Þá er það eina sem bjargar málinu heimalög- uð bernes. Ekkert úr pakka, innihaldið úr pakka bjargar ekki ofelduðum lundum. Prime ribs eða Entrecote eru beinlausar sneiðar úr framhryggn- um. Þetta stykki er með því bragðmeira af nautinu en þetta er líka fyrir þá sem þola smá fitu á steikinni sinni. Salta og pipra rausnarlega og grilla til medi- um, annars er hætta á að það verði erfitt að tyggja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.