Fréttatíminn - 13.05.2011, Page 6
STÆRSTA MÓTIÐ
THE
PLAYERS
FÖSTUDAGUR
KL. 17:00 - 23:00
LAUGARDAGUR
KL. 18:00 - 23:00
SUNNUDAGUR
KL. 18:00 - 23:00
GOLFKORTIÐ VEITIR
40% AFSLÁTT
AF GOLFVÖLLUM UMHVERFIS ÍSLAND
AUK ANNARRA GLÆSILEGRA FRÍÐINDA
GOLFKORTIÐ FYLGIR MEÐ ÁRSÁSKRIFT
TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT Í SÍMA 595 6000 EÐA Á SKJARGOLF.IS
Sífellt fleiri fara í
háskólanám
Nýnemar á háskólastigi á Íslandi voru
3.898 haustið 2010 og hafði fjöldi þeirra
tæplega tvöfaldast frá hausti 1997. Nýnem-
ar á háskólastigi voru enn fleiri haustið
2009 eða 4.372 og hafa aldrei verið fleiri.
Nýnemar eru skilgreindir sem þeir nem-
endur sem stunda nám á háskólastigi á
Íslandi samkvæmt nemendaskrá Hagstofu
Íslands og hafa ekki áður stundað nám á
háskólastigi frá upphafi nemendaskrár
Hagstofunnar árið 1975. Karlar voru að
jafnaði tæplega 40% nýnema frá 1997 til
2007. Árin 2008-2010 er hlutfall karla yfir
40% öll árin og hæst árið 2010, 43,5%.
Haldist núverandi aldursskipting nýnema
munu 83% ungs fólks stunda háskólanám,
segir Hagstofan. -jh
H elgi Bergs og Þórður Pálsson, fyrrverandi starfsmenn Kaupþings, voru á mánudag dæmdir til að endurgreiða hluta af lánum sínum sem
þeir fengu hjá bankanum til kaupa á hlutabréfum í hon-
um sjálfum. Niðurfellingu persónulegra ábyrgða starfs-
mannanna tveggja á lánum sínum, sem Hreiðar Már
Sigurðsson, þáverandi forstjóri Kaupþings, skrifaði
undir í september 2010, var rift.
Helgi Bergs var dæmdur til að greiða tæplega 700
milljónir til baka í þrotabú Kaupþings
vegna tveggja lána sem hann fékk frá
bankanum til kaupa á bréfum í bankanum
sjálfum. Um var að ræða lán sem stóð í
rúmum 1,5 milljarði daginn sem hin ólög-
lega niðurfelling átti sér stað.
Þórður var dæmdur til að greiða 27 millj-
ónir, sem var sú upphæð sem hann var í
ábyrgð fyrir áður en til niðurfellingarinnar
kom.
Báðir starfsmennirnir héldu því fram
fyrir dómi að stjórnendur bankans hefðu
lofað starfsmönnum því að þeir bæru ekki
skaða af hlutabréfakaupunum sem voru
hluti af starfskjarastefnu bankans. Ekki
þótti sannað að slíkt loforð hefði verið
gefið jafnvel þótt fjórir stjórnarmenn bank-
ans hefðu komið fyrir dóm og staðfest
orð starfsmannanna. Ekki fengu starfs-
mennirnir heldur leyfi frá Hreiðari Má
Sigurðssyni, forstjóra bankans, til að flytja
hlutabréfaeign sína í einkahlutafélög árið
2008 jafnvel þótt Hreiðar Már hefði sjálfur
flutt hlutabréfaeign sína í bankanum yfir
í Hreiðar Már Sigurðsson ehf. tveimur árum áður. Ekki
fengust skýringar fyrir dómi á því hvers vegna sömu
reglur giltu ekki fyrir Hreiðar Má og undirmenn hans.
Báðum málum verður áfrýjað til Hæstaréttar. Ljóst er
að slitastjórn Kaupþings getur fengið dæmda milljarða í
endurgreiðslur frá þeim starfsmönnum sem hún hefur
stefnt, ef dómarnir verða staðfestir af Hæstarétti.
oskar@frettatiminn.is
dómsmál Hreiðar már sigurðsson
Breytti sér í ehf.
en bannaði öðrum
starfsmönnum
Dómur féll í málum þrotabús Kaupþings gegn tveimur stjórn-
endum bankans í vikunni. Samkvæmt honum þurfa þeir að
endurgreiða hluta af þeim lánum sem þeir fengu til hlutabréfa-
kaupa hjá bankanum. Hvorugur fékk leyfi forstjórans til að færa
hlutabréf sín í einkahlutafélag árið 2008 líkt og hann gerði
sjálfur tveimur árum áður.
Ekki fengu starfs-
mennirnir heldur
leyfi frá Hreiðari Má
Sigurðssyni, forstjóra
bankans, til að flytja
hlutabréfaeign sína í
einkahlutafélög árið
2008, jafnvel þótt
Hreiðar Már hefði
sjálfur flutt hluta-
bréfaeign sína í bank-
anum yfir í Hreiðar
Már Sigurðsson ehf.
tveimur árum áður.
Sömu reglur giltu ekki um Hreiðar Má Sigurðsson og aðra starfsmenn Kaupþings.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Helgin 13.-15. maí 2011