Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.05.2011, Page 22

Fréttatíminn - 13.05.2011, Page 22
F ranski rithöfundurinn Montaigne sagði að vin­ áttan væri hæsta full­ komnunarstigið innan mannlegs samfélags. Það eru orð að sönnu og þegar ég hitti fjórar elegant dömur á veitinga­ staðnum Vox í hádeginu á sólbjört­ um vordegi og sit með þeim nokkra stund, er ég ekki í vafa um að rithöf­ undurinn hafði rétt fyrir sér. Döm­ urnar eru 83 ára, að undanskilinni einni sem er árinu eldri, og þær hafa verið saman í vinkonuklúbbi í 65 ár. Þetta eru þær Sigrún Flóvenz Ólafsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Ing­ unn Egilsdóttir og Valdís Blöndal, sem kynntust við nám í Verslunar­ skóla Íslands á fimmta áratugnum. Frá útskrift, árið 1946, hafa þær haldið hópinn og hittast einu sinni í viku. Já, þið lásuð rétt, einu sinni í viku! Ekkert getur eyðilagt vináttuna „Í upphafi vorum við sjö í þessum klúbbi,“ segja þær mér, þar sem þær sitja með vatnsglös fyrir framan sig, rétt búnar að borða „lunch“ að hætti hefðardama. „Tvær eru látnar og ein dvelur á elliheimili. Við bundumst svona sterkum vinaböndum um leið og við kynntumst í Versló og það er ekkert sem hefur komið upp á sem hefur getað eyðilagt þessa vináttu.“ Þær eru svo huggulegar að ég fer að telja árin í huganum: „Nei, þær geta ekki verið 25 árum eldri en ég!“ hugsa ég. En það eru þær nú samt og líta út eins og hefðarkon­ ur sem maður sér eiginlega bara í kvikmyndum. „Eftir að við stofnuðum klúbbinn hittumst við í fyrstu heima hver hjá annarri,“ segja þær. „Þá tíðkaðist ekki að fara út að borða eins og við gerum núna, en við förum ekki í hádegisverð vikulega á hótel. Eina vikuna gerum við það, þá næstu förum við kannski á kaffihús og um daginn sátum við á Amokka með einn kaffibolla og tertusneið og ætl­ uðum að tala saman smástund, en áður en við vissum af var ein og hálf klukkustund liðin! Á sumrin förum við oft saman í sumarbústaðinn hennar Guðrúnar í Skorradal eða til Ingunnar í Kjósina – og svo á Sigrún sína Paradís í Kópavoginum, þar sem garðurinn hennar er stór og einstaklega fallegur. Á þessum stöðum þykir okkur gott að hittast og ræða málin.“ Gjaldeyrishöftin: Afturhvarf til fortíðar Þær segja mér að þær tali um alla mögulega hluti: pólitík, stjórnmála­ menn, fortíðina, framtíðina – og þegar mig hafi borið að garði hafi þær verið að ræða gjaldeyrishöftin: „Við vorum akkúrat að tala um það þegar þú komst að þegar við fórum til útlanda í fyrsta skipti þá þurfti að koma með vottorð í bank­ ann um að við værum með hreint sakavottorð og ættum fyrir þeim gjaldeyri sem sótt var um. Það var eilífur barningur,“ segja þær. Sigrún og Valdís héldu báðar til Danmerkur með eiginmönnum sín­ um þar sem þeir fóru til náms og Valdís segir að svo flókið hafi verið að fá gjaldeyri að foreldrar þeirra hafi þurft að styrkja þau til að þau gætu framfleytt sér. „Við vorum tvö og hálft ár í Dan­ mörku þar sem maðurinn minn var við nám í verkfræði og án hjálpar foreldranna hefði þetta einfaldlega ekki verið hægt. Það er eiginlega komin upp sama staða núna. Ég er að fara til Berlínar í maí og fór að kaupa mér gjaldeyri – en þá var ekki nóg að sýna farseðilinn heldur líka vegabréfið! Ég bíð bara eftir að þeir taki aftur upp þetta með sakavott­ orðið!“ Þær skellihlæja allar og eru svo prakkaralegar á svipinn að það mætti halda að þær væru ekki með hreint sakavottorð – en svona fínar dömur eru að sjálfsögðu með allt sitt á tæru. Aldrei rifist, aðeins rætt málin Ingunn er sú eina þeirra sem á eig­ inmann á lífi, hinar eru allar ekkj­ ur. Þær hlæja mikið þegar ein sýnir mér mynd úr partíi frá því í gamla daga og útskýrir: „Þarna erum við með mönnunum okkar þegar þeir voru á lífi.“ „Það þarf nú varla að taka það fram!“ segir önnur og hláturinn glymur um veitingastaðinn. Þær segjast oft ræða um stjórn­ mál og séu alls ekki sammála um allt, en Valdís sé svo ópólitísk að það sé ómögulegt að fá hana til að taka afstöðu. „Við höfum hins vegar aldrei rifist út af pólitík eða öðru. Við skiptumst á skoðunum en engri hefur tekist að snúa annarri á sitt band,“ segja þær stríðnislega. „Reyndar verðum við nú að játa að oftast tölum við um börnin okkar, barnabörn og lang­ ömmubörn – og auðvitað verður þá úr smá keppni í að monta sig af því hver eigi bestu barnabörnin! Við rifjum líka upp gömlu, góðu dag­ ana í Versló. Ein man eitt, önnur eitthvað annað og á endanum er púsluspilið fullkomið og við njótum þess að ylja okkur við skemmtilegar minningar.“ Höf og lönd gátu ekki aðskilið þær Áður en þær komu í Verslunarskól­ ann þekktust þær ekkert þótt tvær þeirra hafi fæðst í sama húsinu að Bjarkargötu 8, þær Ingunn og Guð­ rún. „Við smullum strax saman og við hittumst í skólanum. Auðvitað voru strákar í klíkunni, en við vinkon­ urnar vorum eins og límdar saman.“ Klúbburinn var stofnaður fyrir 65 árum og jafnvel þótt höf og lönd hafi skilið þær að um tíma, breyttist vin­ áttan aldrei. Valdís fór, eins og fyrr segir, með manni sínum til Dan­ merkur þar sem hann lærði verk­ fræði og það er ekki fyrr en ég hef verið með þeim í heila klukkustund að þær ljóstra því upp að Sigrún sé menntaður ballettkennari. „Já, ég hafði verið í ballett hér við alla skóla sem í boði voru og hélt að því búnu til Danmerkur þar sem ég lærði að verða ballettkennari. Eftir heimkomuna fór ég að kenna við skóla sem Félag íslenskra list­ dansara rak, og kenndi þar ásamt Sif Þórz og Sigríði Ármann. Svo fór ég að eignast börn ...“ Valdís segist hafa saknað vin­ kvenna sinna mikið þegar hún var í Danmörku og hafi drifið sig beint í klúbbinn eftir heimkomuna. Með þeim í klúbbnum voru Dagbjört Guðbrandsdóttir, Hanna Helgadótt­ ir, sem báðar eru látnar, og Rann­ veig Tryggvadóttir sem nú dvelur á elliheimili og er aðeins eldri en þær. Örlögin leiddu þær saman Þegar ég spyr hvort þær trúi á að örlögin hafi leitt þær saman, taka þær því ekki fjarri: „Ég fór nú bara í Verslunarskól­ ann því ég vildi ekki fara í MR eins og bróðir minn,“ segir Guðrún bros­ andi. „En ég held að fólk sé hrein­ lega leitt saman,“ segir hún og hinar taka undir það. Valdís segir engan sérstakan að­ draganda að því að hún hafi valið Versló, en þá hafi aðeins verið val um þrjá skóla: Verslunarskólann, Menntaskólann í Reykjavík og Kvennaskólann: „Sem betur fer valdi ég Verslunar­ skólann því þar kynntist ég þessum yndislegu konum,“ segir hún ein­ læglega. „Ég vildi ekki fara í Kvennaskól­ ann því ég vildi vera í skóla með strákum!“ segir Sigrún brosandi, „enda hitti ég þar strák sem síðar varð maðurinn minn.“ Og þær kíma allar, enda greinilega sammála henni. Val Ingunnar á Verslunar­ skólanum kom hins vegar í gegnum Ríkisútvarpið. „Þar var skemmti­ þáttur, fluttur af nemendum við Verslunarskólann, og mér leist svo Saman í hádegisverðarklúbbi í 65 ár Fjórar glæsi- legar vinkonur á níræðisaldri hafa hist vikulega í 65 ár og rifja upp góðar endur- minningar, tala um börnin sín, íslenskt samfélag og margt annað. Anna Kristine fékk að setjast með þeim í „lunch“ og heyra af óvanalega sterkri vináttu. Vinkonurnar á góðri stund. Við rifjum líka upp gömlu, góðu dagana í Versló. Ein man eitt, önnur eitthvað annað, og á end- anum er púsluspilið fullkomið og við njótum þess að ylja okkur við skemmtilegar minningar. Fylgist með störfum Stjórnlagaráðs og hafið áhrif á endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins. Bein útsending frá sameiginlegum fundi ráðsins er á hverjum fimmtudegi kl. 13 á vefsíðu ráðsins: www.stjornlagarad.is. Fundirnir eru opnir almenningi. Öll gögn ráðsins má finna á vefsíðunni. Stjórnarskrá lýðveldisins varðar okkur öll Stjórnlagaráð, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík - sími: 422-4400 - netfang: skrifstofa@stjornlagarad.is - vefslóð: www.stjornlagarad.is Vefslóð Stjórnlagaráðs: www.stjornlagarad.is Framhald á næstu opnu 22 viðtal Helgin 13.-15. maí 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.