Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.05.2011, Síða 24

Fréttatíminn - 13.05.2011, Síða 24
Hið nýja NIVEA Aqua Sensation markar tímamót hvað varðar raka. Öflugur rakinn sem nær til neðri laga húðarinnar veldur því að húð þín verður stinnari og frísklegri. Þú munt skynja létta áferð kremsins þegar þú berð það á húð þína. Það mun smjúga samstundis inn í húðina og vinna með henni að uppbyggingu hennar. Í þessari Aqua Sensation línu eru Refreshing Day Care - dagkrem fyrir venjulega húð, Nourishing Moisturizer Day Care - dagkrem fyrir þurra og viðkvæma húð, Nourishing Moisturizer Night Care - næturkrem fyrir þurra og viðkvæma húð og Anti Shadow Eye Care - augnkrem sem vinnur gegn baugum og þrota. NÝTT NIVEA VISAGE AQUA Sensation þýska móður og þýskan er henni því í blóð borin, en auk þess talar hún ensku, sænsku, dönsku og spænsku: „Ég hef verið leiðsögumaður á Kanaríeyjum og Mallorca svo auð­ vitað þurfti ég að læra spænsku.“ Þær vinkonurnar hafa ferðast mikið saman, bæði á eigin vegum og eins með konum úr kvenfélaginu Hringnum, sem þær starfa með á fullu: „Við höfum farið saman til Skot­ lands, Berlínar, Prag, Barcelona og til Gardavatnsins. En líklega er besta minningin okkar vikudvöl á Flórída í húsi sem Guðrún og Agnar maðurinn hennar áttu hlut í.“ Því húsi fylgir saga sem Guðrún segir okkur: „Maðurinn minn, Ólafur Agnar Jónasson, alltaf kallaður Agnar, var flugvélstjóri hjá Loftleiðum,“ segir hún. „Flugfélagið ætlaði svo að taka þetta allt saman yfir þegar samein­ ingin varð, en þá var fundur úti í Nesvík og ég heyrði að Agnar minn sagði: „Nei, þetta breytist ekki fyrr en næsta kynslóð tekur við,“ og það rættist. Loftleiðamenn voru með félags­ skap og þeir keyptu land uppi í Brautarholti og ...“ „Þarft ekki að segja alla söguna!“ „Heyrðu, þú þarft ekki að hafa sög­ una svona langa!“ skýtur Valdís inn í, en Guðrún segir að víst verði hún að gera það – það sé tilgangur með sögunni! „Loftleiðamenn byggðu klúbb­ hús og annað lítið hús úr fjölum sem höfðu verið utan um flugvél sem kom hingað með skipi. Svo kom þeim saman um að kaupa eða byggja hús fyrir félagsskapinn á Flórída í Ameríku. Þeir eyddu öllum sínum stundum í að velja landið og semja um kaup á því. Það var ekk­ ert á svæðinu sem þeir völdu, en nú er það gróðri vaxið og fallegt. Svo var húsið byggt en þá gerðist það að stjórn starfsmannafélagsins sam­ þykkti ekki kaupin. Þá keyptu þeir húsið þrír, minn maður, tveir flug­ stjórar, Óskar Sigurðsson og Hilm­ ar Jónsson. Það var sagt við þá að það væri í lagi að tveir ættu saman hús, en þrír – það gengi aldrei. Það gekk nú aldeilis ekki eftir, því það var alltaf allt í fullri vinsemd. Svo einhvern tíma í boði segi ég við stelpurnar: „Oh, hvað það væri gaman ef við gætum farið vestur og átt þar stund saman. Við erum ekki vanar að tvínóna neitt við hlutina svo við í klúbbnum skelltum okkur til Flórída og vorum þar saman í viku. Það var dýrðleg vika.“ Minniskubbar í stað flugvélstjóra En svo varð breyting á högum Agn­ ars: „Þegar nýju flugvélarnar komu var öllum flugvélstjórum sagt upp og í staðinn komu minniskubbar,“ segir Guðrún. „Við hlógum oft að því að kubbar gætu komið í stað allra þessara vönu manna. Þegar Agnar var orðinn atvinnulaus og við fórum að velta fyrir okkur hvað við vildum gera sagði ég honum að mig langaði í sumarhús. Við fórum að leita og fundum fallegan sum­ arbústað í Skorradal. Það kostaði auðvitað sitt, svo við seldum hinum strákunum okkar hlut í húsinu í Am­ eríku. En við áttum margar yndis­ legar stundir í Skorradalnum og ég hef notið þess að vera með stelp­ unum í klúbbnum þar líka.“ Eftirlætisstaðir Þar sem þið hafið ferðast svona mikið um heiminn, langar mig að vita hvort þið eigið ykkur eftirlætis­ staði? „Ég er búin að fara um allan heim,“ segir Valdís. „Ég er auðvit­ að tengd Þýskalandi þar sem móðir mín var þýsk en mér þykir mjög gott að vera á Ítalíu. Þar á ég systurdótt­ ur sem hefur búið þar um árabil og heimsæki hana reglulega. Á meðan systir mín var á lífi fórum við árlega í tíu, tólf ár til dóttur hennar.“ Guðrún þarf ekkert að hugsa sig um: „Eftirlætisstaðurinn minn er Skorradalur!“ segir hún brosandi. „Ég fór víða með manninum mínum því hann kenndi í því sem var kallað „kassinn“, sem var gerviflugvél og Flugleiðir voru alltaf að spara svo Ís­ lendingarnar fengu yfirleitt kennslu­ stundir á nóttunni. Mér var nú alveg sama um það, ég svaf bara á meðan. En þegar ég lít til baka, þá er eini staðurinn sem mig myndi reglulega langa til að heimsækja aftur Havaí­ eyjar.“ Ingunn og hennar maður fóru mikið á skíði: „Við fórum oftast á skíði hér á Ís­ landi en líka í Lech í Austurríki, sem er afar fallegur staður.“ „Ég á enga uppáhaldsborg,“ segir Sigrún. „Ég er bara sæl þar sem ég er hverju sinni.“ Framtíð Íslands ekki björt Svo frétti ég af ykkur fjórum á djamminu á Hótel Örk fyrir ekki svo löngu ... „Já, Guðrún átti afmæli og við ákváðum að vera í fimm daga á Örk­ inni,“ segja þær. „Það var auðvitað kolvitlaust veður en við létum það ekkert á okkur fá. Við erum reyndar löngu hættar að djamma en finnst alltaf jafn gaman að vera saman og spjalla. Ef eitthvað annað kemur upp á þann dag sem klúbburinn ætlar að hittast – þá gengur klúbburinn fyrir.“ Hvernig líst ykkur á unga fólkið í þjóðfélaginu? „Mér líst vel á ungt fólk og það er svo mikið af hæfileikaríku ungu fólki til, en fjölmiðlar nefna bara vandræðaunglingana,“ segir Sigrún. „Ég er mjög leið yfir því, þar sem ég þekki bara góða unglinga og vini þeirra. Það má gjarna tala meira um það.“ Hinar taka undir og Valdís segir að flestar þeirra eigi hámenntuð börn: „Það er mikið lán að eiga góð börn og barnabörn.“ En hvernig líst ykkur á framtíð Ís­ lands – konur með ykkar lífsreynslu hafa nú upplifað margt: „Ég sagði nú NEI við Icesave­ samningnum,“ sagði Guðrún. „Það er hræðilegt að sjá fólk standa í bið­ röðum eftir mat. Mér finnst það af­ skaplega dapurlegt. Mér finnst fram­ tíðin fyrir Ísland ekkert sérstaklega björt, það hvorki gengur né rekur og við erum alltaf að borga.“ Skin og skúrir Á 65 árum hafa auðvitað skipst á skin og skúrir í lífi þessara vinkvenna. Þær segjast alltaf vera til staðar til að samgleðjast á góðum stundum og styrkja hver aðra á þeim erfiðu: Það er öruggt að svo hefur ver­ ið,“segir Ingunn. „Við fögnum hverju barni sem fæðist, barnabörnum og langömmubörnum. Það hafa verið mestu gleðistundirnar.“ Valdís segir sorgarsögu sína, en hún var á leið ásamt manni sínum til Kanaríeyja þegar hann fékk hjarta­ áfall um borð í flugvélinni og lést samstundis. „Þegar ég kom heim með líkið af honum voru fyrstu manneskjurnar sem komu til mín að sýna mér stuðn­ ing þessar yndislegu vinkonur mín­ ar,“ segir hún. „Sigrún missti sinn mann fyrir tveimur árum og Guðrún fyrir örfáum mánuðum og við höfum alltaf verið til staðar hver fyrir aðra á slíkum stundum, veitt styrk og stuðning. Til þess eru vinir.“ Þær segja líka gríðarlega erfitt að fylgja æskuvinum til grafar. „Það var mjög erfitt þegar við misstum bekkjarsystkini okkar Dag­ björtu og Begga á sama árinu á besta aldri. Þau fóru bæði úr krabbameini. Hanna dó fyrir fjórum árum. Það er mjög erfitt að fylgja æskuvinum, en okkar reynsla er sú að þá þéttist hóp­ urinn okkar enn betur saman.“ „Ég kom frá Ameríku morguninn sem Hanna var kistulögð,“ segir Valdís. „Ég var búin að kveðja hana áður en ég fór, því ég var ekki viss um að ég myndi hitta hana aftur á lífi. Ég keyrði svo hratt til að ná í kistulagninguna að ég keyrði aftan á bíl, en hélt bara áfram því ég vildi kveðja vinkonu mína á viðeigandi hátt.“ Hefðum átt að taka milljarða lán árið 2007! Við reynum að beina talinu að ein­ hverju glaðlegu og ég spyr hvort þær tali stundum illa um einhvern – hvort það sé til dæmis einhver stjórn málamaður sem þeim líki ekki við og svarið er skellihlátur: „Já, já, við höfum mjög svipaðar skoðanir á mönnum og málefnum. En við ætlum ekki að nefna nein nöfn sko!“ „Heyrðuð þið fréttirnar í morg­ un?“ spyr Guðrún allt í einu. „Það á bara að strika út skuldirnar hjá körlunum! Við hefðum betur tekið nokkurra milljarða króna lán hér um árið, þá værum við skuldlaus­ ar núna! Bara allt afskrifað. En við erum bara heiðarlegt fólk og heiðar­ legt fólk gerir ekki svona.“ Kúvending á þjóðfélaginu Þær segja að svo margt hafi breytst „Hér erum við bekkjarsysturnar úr Versló; Sigrún, Ingunn, Valdís og Guðrún. Fyrir framan eru Hanna Helgadóttir, látin, Rannveig Tryggvadóttir, sem dvelur á elli- heimili, og Dagbjört Guðbrandsdóttir, látin. Þessi mynd var tekin þegar við vorum upp á okkar besta!“ ... þá segi ég við stelpurnar: „Oh, hvað það væri gaman ef við gæt- um farið vestur og átt þar stund saman. Við erum ekki vanar að tvínóna neitt við hlutina svo við í klúbbnum skelltum okkur til Flórída og vorum þar saman í viku. Það var dýrð- leg vika. vel á þau að ég tók ákvörðun um að fara í þann skóla.“ 83 ára leiðsögumaður Nú þegar þær hafa ljóstrað upp um ballettnám Sigrúnar er komið að því að segja frá Valdísi. „Hún er ferðamálafrömuður,“ segja þær, „og hefur verið leiðsögu­ maður í fjölda ára. Og er enn að, orðin 83 ára!“ Þessu trúi ég nú varla, en Valdís staðfestir það: „Jú, jú, í morgun fékk ég listann yfir þau skemmtiferðarskip sem eru væntanleg hingað í sumar, en á síðustu árum hef ég einkum ver­ ið leiðsögumaður fyrir farþega af skemmtiferðaskipum. Ég hef marg­ oft sagt að ég sé hætt, en það tekur bara enginn mark á mér!“ Hver um sig er lítið fyrir að tala um sjálfa sig, svo ég verð að halda áfram að fá hinar til að ljóstra upp um hæfileika hinna. Hvað með Ing­ unni? „Hún er mjög mikil veiðikona,“ segja þær. „Þau hjónin áttu hluta af Laxá í Kjós og þau buðu okkur ár eftir ár að veiða þar.“ „Já, pabbi, Egill Vilhjálmsson, átti þennan hluta Laxár ásamt Eggerti Kristjánssyni,“ útskýrir Ingunn. „Og ég veiddi einu sinni tuttugu punda lax í Þverá í Borgarfirði,“ hvíslar Sigrún að mér. Ferðast saman um heiminn Starfs síns vegna hefur Valdís ferðast um allan heim. Hún átti 24 viðtal Helgin 13.-15. maí 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.