Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.05.2011, Síða 25

Fréttatíminn - 13.05.2011, Síða 25
Eignastýring • Markaðsviðskipti • Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance er framsækið, óháð og sjálfstætt fjármálafyrirtæki sem hefur starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu. Fyrirtækið er í eigu starfsmanna sem búa að áralangri og víðtækri reynslu af innlendum og erlendum fjármálamörkuðum. www.arctica.is | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi | Sími 513 3300 frá því þær voru ungar að það sé varla hægt að ræða það: „Það hefur orðið algjör kúvend­ ing í þjóðfélaginu. Þegar við vorum ungar var mikil fátækt. Á árunum milli 1930 og 1940 fyrir stríð var óskaplega mikil fátækt hér í Reykja­ vík. Fólk flutti hingað en hér var ekkert betra að fá.“ Sigrún minnist þess þegar hún hafi dag eftir dag horft niður á bryggju, sem var yfirfull af karl­ mönnum í von um vinnu: „Ég man svo vel eftir því að hafa margoft séð hóp af mönnum niðri við höfn í von um að fá einhverja vinnu við uppskipun en örfáir úr hópnum fengu vinnu. Þetta var fólk sem átti ekki neitt – ekki neitt. En samheldnin hefur alltaf verið til staðar í íslensku samfélagi og það hefur ekkert breyst og breytist von­ andi aldrei.“ Fyrst og fremst lífsglaðar dömur Samanlagt eiga þessar fjórar vin­ konur þrettán börn og afkomendur þeirra eru sjötíu og þrír talsins: „Þegar börnin okkar voru lítil hittumst við oft með þau um jól og á sumrin og það var virkilega gaman að vera með allan krakkahópinn.“ „Ingunn á ægilega fínan sumar­ bústað og Guðrún líka,“ segir Val­ dís. „Við höfum hist þar á sumrin og á okkar yngri árum slettum við úr klaufunum, en við erum bara orðn­ ar svo stilltar á efri árum! Við höf­ um þó aldrei hagað okkar svo illa að það hafi þurft að hringja á lögregl­ una á okkur, en auðvitað vorum við með partí þegar við vorum yngri, djömmuðum stundum og oft bara við stelpurnar. En fyrst og fremst vorum við og erum enn afskaplega lífsglaðar konur.“ Þegar ég spyr hvort þær spili golf svara þær neitandi: „Það er svolítið skrýtið, að engin okkar spilar golf og engin okkar spilar brids nema Ingunn,“ segja þær. Þurfum að taka leigubíla oftar! Og eins og vanalega eru næstu mánuðir alveg fastmótaðir hjá vin­ konunum: „Næsta miðvikudag hittumst við á fundi hjá Hringnum, svo er á planinu að fara í bústaðinn til Guð­ rúnar og Ingunnar í sumar og sitja í fallega garðinum hennar Sigrúnar sem er hennar sumarbústaður.“ Fáið þið ykkur ekki sjerrí eða hvítvín eða rauðvín þegar þið hitt­ ist? Jú, þegar við munum eftir að koma ekki á bílum!“ segja þær hlæj­ andi. „Við þurfum endilega að muna eftir að taka leigubíla oftar!“ Anna Kristine ritstjorn@frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.