Fréttatíminn - 13.05.2011, Blaðsíða 27
Veldu skelina sem þér finnst best!
Síríus skeljarnar eru frábærar með kaffinu, eftir matinn,
með sjónvarpinu, í saumaklúbbunum eða bara hvenær
sem er. Þú getur valið skelina sem þér finnst best eða
látið bragðið koma þér skemmtilega á óvart.
Síríus
Skeljar úr hinu sígilda
Síríus rjómasúkkulaði
Rjómaskeljar
Skeljar úr ljúffengu
56% dökku súkkulaði
56% Konsumskeljar
Sex spennandi og
bragðgóðar fyllingar
Fylltar skeljar
Súkkulaðiskeljar með
frískandi appelsínubragði
Orange skeljar
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Kisan Krúsa
hefur einstakt
lag á hestunum:
Hún leggst á
bakið og krefst
þess að þeir
nuddi á henni
magann – og
þeir hlýða!
mig á því fyrsta sumarið að kaupa
alltof dýrt í matinn! Ég var með
kjúklingabringur og dýrindis rétti –
en einu sinni í viku er ég alltaf með
fisk. Ég hefði ekki trúað því hvað
börn eru hrifin af heimagerðum
fiskibollum. Fyrst borðuðu þau
þrjá, fjóra diska, þangað til ég sá að
þau voru löngu orðin södd. Ég get
sko alveg sagt þér að ég kom ekki
út í miklum plús eftir að hafa verið
með hótelmat í heilt sumar!“ segir
hún hlæjandi.
Hestamennska að breytast í
stelpusport
Þegar ég spyr hana um muninn á
elstu og yngstu börnunum, segir
hún hann alveg fara eftir því hvort
viðkomandi barn hafi vanist hestum
áður en það kemur á námskeiðið.
„Flest þeirra sem koma til mín
hafa aldrei umgengist hesta fyrr
og það er áberandi hversu stóra
drauma litlu stelpurnar hafa átt um
að komast á hestbak. Þetta er að
verða meira stelpusport en stráka-
sport, það er að breytast mikið. En
það koma auðvitað líka strákar á
námskeiðin. Ég hef fengið krakka
sem eru að fara í hestaferðalag með
foreldrum sínum eða ömmu og afa
og þurfa smá kennslu og þjálfun
áður. Þetta eru börn sem kunna rétt
taumhald og slíkt, en þurfa meiri
þjálfun áður en farið er í hestaferð.
Ég legg mikla áherslu á að þau
sitji rétt, haldi rétt á taumi og læri
að halda jafnvægi á hesti. Í jafn-
vægisæfingum ríða þau berbakt og
beislislaust og ég stýri hestunum.
Það hefur enginn slasast hjá mér,
sem betur fer.“
Hestarnir velja sér börn
Þar sem við sitjum innan um hvíta
glamúrinn í versluninni spyr ég
hana hvort henni finnist engin við-
brigði að fara þaðan í hestana í tvo
mánuði á ári?
„Nei, síður en svo! Það er
draumurinn að vera innan um
hestana í sveitinni minni. Það er
fríið mitt. Ég er stundum svo upp-
gefin eftir daginn að ég tek ekki
símann! Þetta er töff, en þetta er
skemmtilegt og gefandi. Og að upp-
lifa hestana í kringum börn er alveg
stórkostlegt. Ég er kannski með
öskuviljuga hesta sem gjörbreytast
um leið og börn koma. Þá verða
þeir afslappaðir og rólegir og passa
börnin. Það er gefandi að sjá þessa
verndartilfinningu hestanna. Fyrsti
dagurinn fer í að finna rétta hestinn
fyrir rétta barnið og eftir það eru
þau með sína hesta. Hestar eru
eins og flest önnur dýr; þeir velja
sér „eiganda“. Hestarnir hér eru
fljótir að sigta út hvaða barn þeir
vilja „eiga“ á námskeiðinu og ganga
hiklaust að því barni.“
Kisan Krúsa í nuddi hjá hest-
unum
Þótt þetta sé auðvitað fyrst og
fremst reiðnámskeið finnur Anna
Bára ýmislegt fyrir börnin að gera
á meðan þau bíða þess að verða
sótt:
„Hér rétt fyrir neðan hesthúsin
rennur Suðurá og við förum stund-
um með krakkana þangað og lofum
þeim að búa til stíflur og leika sér í
grunnri ánni – en allt auðvitað und-
ir mjög ströngu eftirliti. Þau hafa
líka gaman af að leika við tíkina
Indu og kisuna Krúsu, sem mér var
gefin þar sem það þykir tilheyra að
hafa hesthúsakisu. Inda og Krúsa
fara með mér í langar gönguferðir
á hverjum degi og Krúsa hefur ein-
stakt lag á hestunum: Hún leggst á
bakið og krefst þess að þeir nuddi á
henni magann – og þeir hlýða!“ seg-
ir hestaunnandinn, dýravinurinn,
reiðkennarinn og damask-drottn-
ingin Anna Bára sem bíður þess að
maí renni sitt skeið svo að hún geti
farið að taka á móti börnum og vera
á hestbaki allan daginn, alla daga.
Anna Kristine
ritstjorn@frettatiminn.is
viðtal 27 Helgin 13.-15. maí 2011