Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.05.2011, Page 47

Fréttatíminn - 13.05.2011, Page 47
Sumarið er komið! Má bjóða þér landslagsráðgjöf? BM Vallá ehf. Bíldshöfða 7 110 Reykjavík Komdu til okkar og fáðu hugmyndir fyrir garðinn þinn. Sími: 412 5000 Fax: 412 5001 sala@bmvalla.is b m va lla .is Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir, landslags arkitekt okkar, veitir viðskiptavinum ókeypis ráðgjöf og aðstoð við mótun hugmynda og útfærslu. Ráðgjöfin ásamt tölvuteikningu er þér að kostnaðarlausu. Hafðu samband við sölufulltrúa okkar og pantaðu tíma. Happdrætti Allir sem nýta sér landslagsráðgjöf og kaupa í kjölfarið efni til framkvæmda hjá BM Vallá fara í pott og geta unnið ferð til London fyrir tvo. Gildir út árið 2011. PIPA R \TB W A • S ÍA • 11 1240 Menntað einveldi er lausnin „Forsetinn frábiður sér afskipti“ Ólafur Ragnar Grímsson forseti frábað sér afskipti forsætisráðuneytisins af því að settar yrðu siðareglur fyrir forsetaembættið. Hann virðist hafa álitið slíkt rakalausa tilraun til íhlutunar í samskipti forsetaembættis og Alþingis. Krosstré brotna eins og aðrir raftar ... „Segir forseta hafa brotið lög“ Umboðsmaður Alþingis telur að skrifstofa forseta Íslands hafi brotið lög við ráðningu umsjónarmanns á Bessastöðum. Þegar starfið var auglýst var krafist meiraprófs til að aka bíl. Sá sem var ráðinn í starfið hafði ekki slíkt próf en tveir umsækjendur sem höfðu þetta próf kvörtuðu til umboðsmanns. ... og allra bestu þagna líka kjaftar „Bað kýrnar afsökunar“ Þingmaðurinn Þráinn Bertelsson segist á Facebook-síðu sinni hafa beðið íslenska kúastofninn afsökunar á því að hafa tengt hann fasisma. Þráinn kallaði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokks, bæði kúlulána- og íhaldsbelju og íhalds- og fasistabelju ... Það er gott að búa í Kópavogi „Leoncie flytur aftur til Íslands“ Söngkonan Leoncie setti svip sinn á samfélagið á meðan hún bjó á Íslandi. Hver man ekki eftir laginu Ást á pöbbnum sem naut mikilla vinsælda? Árið 2004 fluttist hún frá Íslandi. Nú hefur hún ákveðið að flytja aftur til Íslands og planið er að kaupa húsið af tengdaforeldrunum í Kópavogi. Þeir gera ekki annað á meðan „Mega skoða tölvupóst starfsmanna“ Vinnuveitendum er heimilt að skoða tölvupóst starfsmanna. Það er ekki á vísan að róa „Frávísunarkröfu vísað frá“ Frávísunarkröfu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Kristínar systur hans og Tryggva Jónssonar, fyrrverandi forstjóra Baugs, var vísað frá dómi. Hvaða hógværð er þetta? „Sigríður verður ekki á tvöföldum launum“ Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari og saksóknari Alþingis, hefur óskað eftir ... að laun vegna starfa hennar fyrir Alþingi verði lækkuð ... Sigríður var kjörin saksóknari Alþingis í október. Hún var svo skipuð ríkissaksóknari frá 1. maí. Hún hyggst gegna báðum embættum samhliða en ætlar að fara fram á að hún fái ekki greitt að fullu tvöföld laun.  Vikan sem Var

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.