Fréttatíminn - 13.05.2011, Page 60
52 dýrin okkar Helgin 13.-15. maí 2011
Ö ll vitum við að hundar geta verið til margra hluta nytsamlegir. Þeir geta unnið sem blindrahundar, aðstoðað
fatlaða, þefað uppi eiturlyf og sprengjur,
fundið fólk í snjóflóði eða húsarústum. Það
sem færri vita er að hundar geta einnig
greint ýmsa sjúkdóma.
Undanfarin ár hafa margar rannsóknir
sýnt að hægt er að þjálfa hunda til að greina
nokkrar tegundir krabbameins, jafnvel á
frumstigum meinsins áður en sjúklingurinn
finnur fyrir nokkrum einkennum. Hundar
hafa ótrúlegt þefskyn sem er um það bil
10.000 til 100.000 sinnum næmara en þef-
skyn mannsins og því geta hundar fundið
lykt af minnstu breytingum sem verða í
líkama okkar.
Upp úr aldamótunum 2000 hófu vís-
indamenn að rannsaka hvort hundar gætu
greint krabbamein í blöðruhálskirtli með
því að lykta af þvagi. Niðurstöðurnar
voru ekki nákvæmar en lofuðu góðu og
því fylgdu fleiri rannsóknir í kjölfarið.
Vísindamenn hjá Pine Street Foundation í
Kaliforníu birtu niðurstöður rannsóknar
árið 2006 þess efnis að hundar gætu greint
lungnakrabbamein og brjóstakrabbamein
með því að lykta af andardrætti fólks. Sýni
af andardrætti hjá sjúklingum og heilbrigðu
fólki var sett í tilraunaglös, og svo farið með
glösin til hundanna þar sem þeir gátu þefað
af sýnunum. Hundarnir höfðu verið þjálf-
aðir til að láta vita með því að setjast eða
gelta við þau sýni sem þóttu grunsamleg
og hundarnir höfðu rétt fyrir sér í 88 til 97
prósentna tilfella. Í upphafi þessa árs birtu
japanskir vísindamenn niðurstöður sínar í
ristilkrabbameinsrannsókn þar sem fram
kom að hundar gætu greint ristilkrabba-
mein með 97 til 98 prósentna nákvæmni
með því að þefa af hægðum fólks. Þessi
niðurstaða þykir áhugaverð þar sem marga
hryllir við tilhugsuninni um ristilspeglun
og því gæti sumum þótt fýsilegri kostur að
láta hund rannsaka hægðasýni.
Krabbamein er þó ekki eina heilbrigðis-
vandamálið sem hundar geta aðstoðað
okkur mannfólkið við. Margir hundaeig-
endur með sykursýki eða flogaveiki halda
því fram að hundarnir láti vita áður en þeir
fái kast. Þetta hefur ekki verið rannsakað
nægilega vel og því eru engar haldbærar
sannanir um það hvernig hundarnir fari að
þessu. En talið er að þeir skynji breytingar
á líkamslykt eigandans. Hægt er að þjálfa
hunda í að þekkja muninn á lykt þegar
sykursjúkur eigandi er með of háan eða of
lágan blóðsykur, og bregðast við með því
að sækja blóðsykurmælinn. Sumir hundar
flogaveikra byrja að væla eða krafsa í eig-
andann þegar flogakast er á næsta leiti og
hægt er að þjálfa hunda í að ná í farsímann
rétt fyrir flogakastið.
Það er enn þörf fyrir frekari rannsóknir
á þessu sviði og það er öruggt að ekki eru
allir hundar hentugir í svona vinnu. Það er
þó skemmtileg tilhugsun að hundar geti
aðstoðað lækna við vinnu sína en margir
telja líklegra að reynt verði að finna upp
tölvubúnað sem líki eftir nefi hundsins.
Fjöleignarhús Meiri sveigjanleiki
ný lög gætu aukið hundaeign
Nýlega samþykkti Alþingi breyt-
ingar á lögum um fjöleignarhús.
Þar með hefur réttur fatlaðra
og sjónskertra með hjálparhund
aukist. Enn fremur verður nóg fyrir
hinn almenna hundaeiganda að
fá samþykki tveggja þriðju hluta
nágranna með sama inngang í
fjölbýlishúsi, en áður þurfti sam-
þykki allra íbúa. Það mun því verða
auðveldara að fá leyfi fyrir hundi í
fjölbýlishúsi en verið hefur. Þetta
mun vafalaust kæta marga hunda-
eigendur og þá sem lengi hefur
dreymt um að eignast hund. -fk
Ekki voru allir mennskir í herliðinu
sem umkringdi hús hryðjuverkamanns-
ins Osama Bin Laden og tók hann af
lífi. Einn hundur var á meðal þeirra og
seig hann niður úr þyrlu ásamt einum
hermannanna. Allir sem tóku þátt í
þessari leynilegu aðgerð njóta nafn-
leyndar og þar á meðal hundurinn, en
talið er að þetta hafi verið hundur af
tegundinni Belgískur Malinois. Þess
háttar herhundar eru þjálfaðir í að
finna sprengjur og þefa uppi óvinalið í
allt að þriggja kílómetra fjarlægð.
Besti vinur Mannsins Merkilegar tilraunir
Hundar þefa uppi veikindi
Þefskyn hunda er um það bil 10.000 til 100.000 sinnum næmara en þefskyn mannsins.
Freyja
Kristinsdóttir
freyja@frettatiminn.is
Undanfarin
ár hafa
margar
rannsóknir
sýnt að
hægt er
að þjálfa
hunda til
að greina
nokkrar
tegundir
krabba-
meins,
jafnvel
á frum-
stigum
meinsins ...
Tilraunir hafa sýnt ótrúlegan árangur hunda
við að greina lungna- og brjóstakrabbamein af
andardrætti fólks. Ljósmyndir/Nordic Photos/Getty
Images
Herhundurinn bandaríski er af sömu gerð og sá á
myndinni, Belgískur Malinois.
herþjónusta seig úr þyrlu
Hundurinn sem
fann Bin Laden
Næsta umfjöllun um gæludýr í Fréttatímanum
verður 10 júní og á fjögurra vikna fresti.
Freyja Kristinsdóttir dýralæknir og hundaþjálfari
sér um að skrifa eins og áður.
Á Íslandi eru um 14.000 heimili með hund og enn
fleiri með kött þannig að það ættu að vera nokkrir
áhugasamir lesendur. Þarna verður fjallað um
gæludýrin okkar, þetta er s.s lesefni fyrir fullorðið
fólk sem á gæludýr en ekki dýrasíða fyrir börn.
Ef þú hefur ábendingar um efni eða hefur áhuga á
að kynna þitt fyrirtæki á þessum síðum þá hikaðu
ekki við að hafa samband við auglýsingadeild
Fréttatímans.
Gæludýr
Allir sem tóku
þátt í þessari
leynilegu aðgerð
njóta nafnleynd-
ar og þar á meðal
hundurinn