Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.05.2011, Qupperneq 61

Fréttatíminn - 13.05.2011, Qupperneq 61
dýrin okkar 53Helgin 13.-15. maí 2011 Þ að vakti að vonum heilmikil viðbrögð þegar ísbjörn gekk á land um daginn. Besti flokkurinn sá sér leik á borði að geta hugsanlega framfylgt einu af kosningaloforðum sínum: að koma ísbirni í Húsdýragarðinn. En fyrr en varði var ísbjörninn allur og umræða skapaðist um hvort hægt hefði verið að bjarga birnu. Það er að mínu mati ekki raunhæft að hafa ísbjörn í Húsdýra- garðinum því erfitt væri að koma upp nógu stóru og full- komnu gerði til að ísbirni liði vel þar; það er þekkt vandamál að ísbirnir sýni stereótýp- íska hegðun vegna vanlíðunar í dýra- görðum. Að koma ísbirni aftur til síns heima vilja sumir meina að sé of dýrt, og líklegt að björninn deyi þar fljót- lega hvort eð er. Það er samt sem áður falleg hugsun að reyna að bjarga villtu dýri í útrýmingarhættu og koma því aftur til síns heima. Ég reyndi það einu sinni fyrir um það bil níu árum. Þá var ég stödd í Ekvador ásamt vinkonu minni. Við höfðum tekið okkur hálfs árs frí frá dýra- læknanáminu og ætluðum meðal annars að læra spænsku og vinna sem sjálfboðaliðar í dýraathvarfi. Dag einn í fjallaþorpinu Otavalo blasti við okkur sorgleg sjón: lítill, hríðskjálfandi íkornaapi, fjötraður með snæri um mittið, og áhuga- samur kaupandi stóð hjá að spyrj- ast fyrir um hann. Kalt fjallaloftið átti engan veginn við litla skinnið og við hugsuðum með okkur að við værum nú á leiðinni í Amazon- frumskóginn eftir nokkra daga ... við gætum bara kippt honum með. Áður en við vissum af vorum við búnar að kaupa apann og hann fékk nafnið Kókó. Þegar við kynntum hann fyrir ekvadorísku fjölskyldunni sem við bjuggum hjá, ráku þau upp stór augu og hugsuðu vafalaust með sér að nú væru þessar íslensku stúlkur endanlega gengnar af göflunum. En upphátt hlógu þau bara að upp- átækinu og leyfðu okkur að hafa Kókó á heimilinu. Á daginn kom Kókó með okkur Freyja og dýrin Hugsjónir sem fara úrskeiðis Fyrir hundinn þinn Við höfum áratuga reynslu af ræktun og þjálfun hunda. Við höfum prófað ýmsa valkosti í fóðrun og niðurstaða okkar er einfaldlega sú að Pedigree sé besti kosturinn. Við treystum Pedigree fyrir hundunum okkar. ISCh Threepines Louise of Kaleef „Lúlú“. Stigahæsti öldungur 2010, stigahæsti hundur fjár- og hjarðhundadeildar 2010 og stigahæsti Australian shepherd 2010. Mynd frá verðlaunaafhendingu á síðustu sýningu HRFÍ. Stigahæsti öldungur 2010 Björn Ólafsson – BIPDT,* hundaræktandi Lára Björk Birgisdóttir – búfræðingur og hundaræktandi *British Institute of Dog Trainers Pedigree® Adult Vitality er framleitt úr sérvöldum hráefnum sem fullnægja næringarþörf hundsins þíns í hverri máltíð. Þróað af dýralæknum Engin tilbúin bragðefni Enginn viðbættur sykur Adult healthy vitality mikilvæg vítamín og steinefni Öll næring sem hundurinn þinn þarfnast: Rétta blandan af næringarefnum sem heldur hundinum þínum heilbrigðum og fullum af orku. Heilbrigð húð og glansandi feldur: Rétt blanda af Omega 3 og 6 fitusýrum gagnast hundinum þannig að hann hafi það gott og líti vel út. Styrkir náttúrulegar varnir: Vítamín E, andoxunarefni og valin steinefni stuðla að verndun náttúrulegra mótefna hundsins þíns. Sterkar tennur og heilbrigt tannhold: Sérmótaðir stökkir bitar sem halda tönnunum sterkum. Án viðbætts sykurs. Vöðvabygging: Úrvalskjötprótein styrkir vöðva. í spænskutíma og á nóttunni hafði hann sinn eigin svefnstað, en þegar ég vaknaði á morgnana var hann ævinlega búinn að skríða undir hlýja sængina mína. Að lokum kvöddum við fjölskylduna og héldum af stað í langa ferð með leigubíl, tveimur rútum og kanó, þar til við komumst loks í dýraathvarfið í regnskóginum. Þar vorum við að sjálfsögðu skamm- aðar fyrir að styðja við ólöglega verslun á villtum dýrum en Kókó var komið fyrir í einangrun í nokkra daga og svo var honum sleppt. Það var gleðistund; dag- inn út og inn sveiflaði hann sér í trjánum og kyssti nýju kærustuna sína, tamarínapann Kíkí. Þetta ævintýri endaði síðan ekki eins og við höfðum vonað; Kókó smitaðist af sníkjudýrum og varð heiftarlega veikur og dó. En við hugguðum okkur við það að síðustu vikur ævi hans voru að minnsta kosti ham- ingjuríkar. Freyja Kristinsdóttir freyja @frettatiminn.is ÍSLENSKT HUNDANAMMI Fæst í Bónus, Samkaup, 10-11, Fjarðarkaup og Inspired Keflavíkurflugvelli gott í þjálfun og í leik VINSÆLVARA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.