Fréttatíminn - 13.05.2011, Qupperneq 66
58 bíó Helgin 13.-15. maí 2011
M aður er bara að skella í vél og sækja úr fatahreinsun-inni,“ sagði Rúnar þegar
Fréttatíminn náði tali af honum í
vikunni. Hann var þá í óða önn að
pakka sér niður en hann flaug á vit
ævintýranna á hinni mögnuðu kvik-
myndahátíð í Cannes á fimmtudag
og verður, ásamt fríðu föruneyti, við-
staddur frumsýningu Eldfjalls í dag,
föstudag.
Rúnar er ýmsu vanur þegar há-
tíðin í Cannes er annars vegar en
hann hefur verið þar í tvígang með
stuttmyndir en meira gengur þó
vissulega á þegar mætt er til leiks
með mynd í fullri lengd. „Þetta er
pínulítið öðruvísi og nú er ég með
einhvern fjölmiðlafulltrúa sem er á
fullu að bóka mig þannig að manni
líður bara eins og maður sé allt að
því orðinn fullorðinn.“
Í Cannes er margt sem heillar.
Partí og veisluhöld eru á hverju
horni og áhugaverðar bíómyndir
rúlla í fjölda kvikmyndahúsa frá
morgni til kvölds. Rúnar gerir þó
ráð fyrir að þurfa að neita sér um
slíkan lúxus, í það minnsta framan
af hátíðinni. „Þetta hefur nú alltaf
verið þannig að þegar maður hélt að
maður ætti frí, kannski á morgnana,
þá komu alltaf upp einhverjir fundir
eða eitthvað sem þurfti að gera
þannig að ég veit ekki í hvað stefnir
með þessa mynd. Ég er búinn að sjá
dagskrána mína fyrir fyrstu fjóra
dagana og hún er svo stíf að það
liggur við að það séu skrifaðar inn
klósettferðir á mig. Það er samt svo
fyndið við þessa hátíð að það er svo
gaman í vinnunni að maður veit ekki
alltaf hvenær maður er að skemmta
sér og hvenær maður er í vinnunni.
Það er skemmtileg móða þarna á
milli.“
Kvikmyndahátíðin í Cannes er
ekki síst risastór kvikmyndamarkað-
ur þar sem fólk keppist við að vekja
athygli á sér og myndum sínum.
Rúnar þarf þó ekki að hafa miklar
áhyggjur af þeim þætti hátíðarinnar
þar sem sölufyrirtækið Trust Nor-
disk hefur tryggt sér alþjóðlegt
söluumboð á Eldfjalli. Fyrirtækið
er einnig með Melancholia, nýjustu
mynd Lars von Trier, á sínum snær-
um en hún keppir um Gullpálmann
í ár. „Trust sýndi myndinni mikinn
áhuga og sótti stíft í hana þannig að
það lá beint við að semja við þá enda
er þetta traust fyrirtæki.“
Rúnar er í Cannes ásamt fríðu
föruneyti. Þar á meðal eru aðalleik-
ararnir Theodór Júlíusson og Mar-
grét Helga Jóhannssdóttir, helstu
leikarar í aukahlutverkum, þau
Elma Lísa Gunnarsdóttir, Þor-
steinn Bachmann og Benedikt
Erlingsson. Þá er tónskáld myndar-
innar, Kjartan Sveinsson, með í för
auk framleiðendanna Skúla Malm-
quist og Þóris Snæs frá ZikZak.
„Þetta er alveg heil skrúðganga,“
segir Rúnar.
Kvikmyndahátíðin stendur í tvær
vikur og Rúnar ætlar að vera allan
tímann. „Við ákváðum að vera þarna
allan tímann. Og vonandi getur
maður meira teygt úr sér þegar líður
á seinni hlutann og fengið kannski
eitthvert smá sumarfrí út úr þessu
og séð góðar bíómyndir. Svo er nú
ekkert að ströndinni þarna ef maður
kemst á hana.“
Talsverð eftirvænting er eftir
frumsýningu Eldfjalls enda hafa fáir
leikstjórar hlotið jafn mörg verðlaun
fyrir stuttmyndir á alþjóðlegum
kvikmyndahátíðum og Rúnar. Þótt
Eldfjall hafi verið tekin upp á Ís-
landi haustið 2010 hefur eftirfylgni
hennar átt athygli og huga Rúnars
sem þó er farinn að huga að næstu
mynd. „Ég er með næstu mynd í ein-
hverri smá móðu í kollinum á mér.
Og þegar ég er búinn að ná þessari
mynd úr mér þá verð ég að setjast
niður og fara að skrifa.“
Matthew Mcconaughey Brunar í réttarsalinn á ný
B BíódóMur Fast&Furious 5: rio heist
FruMsýndar
Óljós mörk vinnu
og skemmtunar
Rúnar Rúnarsson hefur getið sér gott orð fyrir stuttmyndir sínar. Eldfjall er fyrsta mynd hans
í fullri lengd. Myndin er frumsýnd í Cannes í dag, föstudag, en þar keppir hún til verðlauna í
flokknum Directors Fortnight og jafnframt um hin virtu Camera d́ Or-verðlaun og óhætt er að
segja að Eldfjall sé í brennidepli þar sem Frédéric Boyer, listrænn stjórnandi Directors Fortnight,
hefur nefnt Eldfjall sem eina af sínum þremur uppáhaldsmyndum í flokknum.
Fast&Furious -myndirnar eru í
það heila ekkert síðri hasarspennu-
myndir en gengur og gerist í þess-
um ómissandi flokki heiladauðrar
afþreyingar. Þær eru hins vegar
ekkert sérstaklega yfir meðallagi
heldur og þótt fyrstu tvær myndirn-
ar hafi skilað öllu sem af þeim var
ætlast þegar kom að flottum bílum,
hraustum gæjum, flottum gellum,
hraða og byssulátum þá er nú ósköp
fátt sem réttlætir að þessi lopi sé
teygður út í hið óendanlega.
Þessi fimmta mynd er merkilega
góð miðað við hversu oft hefur ver-
ið djöflast á F&F-vörumerkinu. Hér
leiða þeir saman bíla sína eina ferð-
ina enn, Vin Diesel og Paul Wal-
ker, og þótt leitun sé að leiðinlegri
leikara en Walker þá er alltaf eitt-
hvað krúttlegt við að sjá þessa tvo
spila sig flotta gæja saman. Diesel
kom fram á sjónarsviðið fyrir margt
löngu sem grjótharður töffari með
magnaða rödd. Hann má muna sinn
fífil fegri og svo hratt hefur fjarað
undan honum að líklega hefur hon-
um verið nauðugur einn kostur að
slá til og leika ökufantinn Dominic
Toretto eina ferðina enn.
Walker endurtekur rullu sína
sem fyrrum löggan Brian O’Con-
ner. Hann bjargar sínum gamla
félaga Dominic úr fangelsi og þeir
leggja strax drögin að stórráni í
Rio þar sem kraftmiklir bílar eru
lykilatriði. Meira er svo sem ekki
um söguþráð Fast&Furious 5 að
segja enda er hann aukaatriði. Það
sem mestu máli skiptir er hasarinn,
bílaeltingaleikirnir og bardagarnir
og þar svíkur þessi mynd ekki. Þeir
sem eru að leita að einhverju öðru
eru á villigötum.
Dwayne Johnson, áður The
Rock, er fersk viðbót í þessu öllu
saman en hann leikur járngrimman
FBI-mann sem hefur það verkefni
að koma Toretto á bak við lás og slá.
Það eru samt ekkert sérstaklega
góð tíðindi fyrir Diesel að Dwayne
sé aðalgæinn enda er nú líklega
mál til komið að stíga hraustlega á
bremsuna í eitt skipti fyrir öll.
Þórarinn Þórarinsson
Flóttinn úr helvíti
Nicolas Cage kallar ekki allt ömmu
sína þegar kemur að hlutverkavali og í
þrívíddarmyndinni Drive Angry leikur
hann glæpamanninn John Milton (nafna
skáldsins blinda sem orti Paradísarmissi
í kringum 1650). Milton þessi brýst út út
helvíti þar sem hann eyðir eilífðinni í þeim
tilgangi að drepa leiðtoga sértrúarsafnaðar
sem myrti dóttur hans og rændi barnabarni
til þess að fórna því í einhverri djöflamessu.
Ung þjónustustúlka slæst í för með Milton
í þessum björgunarleiðangri frá víti og
ýmislegt gengur á áður en Milton kemst á
áfangastað og fær tækifæri til að bjarga
dótturdóttur sinni.
Aðrir miðlar: Imdb: 6,1, Rotten
Tomatoes: 45%, Metacritic: 44/100
Priest
Menn og vampírur hafa tekist
á öldum saman. Stríðsmaður-
inn Priest varð að goðsögn í
liðnu vampírustríði en býr nú
við kröpp kjör í hrörlegri borg
sem lýtur stjórn kirkjunnar.
Þegar trylltar vampírur
ræna ungri frænku Priests
ákveður hann að rjúfa gömul
heit og rifja upp gamla takta
við vampírudráp og bjarga
frænku sinni áður en vampír-
urnar breyta henni í lifandi
dauða blóðsugu. Sá ágæti
leikari Paul Bettany leikur
prestinn en hin magnaða
Maggie Q (Nikita) slæst í
för með honum sem heldur
betur vopnfim gella.
Aðrir miðlar: Imdb: 5,8,
Rotten Tomatoes: 13%,
Metacritic: -
Animals United
Teiknimynd um hóp dýra
á sléttum Afríku sem sjá
fram á blóðuga baráttu
um síðustu vatnsdropana
þegar flóð lætur á sér standa.
Jarðkötturinn Billy heldur
af stað til þess að leita að
vatni ásamt félaga sínum,
ímyndunarveika ljóninu
Socrates. Á leið sini kynnast
þeir alls kyns dýrum sem eru
á hrakhólum vegna verka
mannanna og komast loks að
því að stífla heldur vatninu
þeirra frá þeim.
Aðrir miðlar: Imdb: 4.7,
Rotten Tomatoes: 29%,
Metacritic: -
Water for Elephants
Reese Witherspoon,
Robert Pattinson og Chri-
stoph Waltz fara með helstu
hlutverk í þessari mynd sem
segir frá dýralæknanem-
anum Jacobi sem hættir
í skóla og gengur í sirkus
eftir að foreldrar hans deyja.
Þar hittir hann og kynnist
sirkusstjóranum harðsvíraða,
August, og konu hans, hinni
fögru Marlena. Með þeim
tekst ástarsamband sem
á eftir að hafa skelfilegar
afleiðingar.
Aðrir miðlar: Imdb:6,9,
Rotten Tomatoes: 58%,
Metacritic: 52/100
Og vonandi
getur maður
meira teygt
úr sér þegar
líður á seinni
hlutann
og fengið
kannski eitt-
hvert smá
sumarfrí út
úr þessu.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Eldfjall Rúnars fjallar um Hannes, 67 ára mann sem er að komast á eftirlaunaaldur. Hann er karlmaður af
gamla skólanum, einangraður frá fjölskyldunni og heimilinu og þarf nú að takast á við nýtt hlutverk í lífinu.
Ágætis fjör en ...
Íslenskt bíósumar í Paradís
Bíó Paradís sýnir íslenskar bíómyndir daglega
í allt sumar. Bæði leiknar bíómyndir í fullri
lengd og fjölda heimildarmynda. Myndirnar
verða allar sýndar með enskum texta og eru
sýningarnar stílaðar
inn á erlenda ferða-
menn, en hér er einnig
kjörið tækifæri fyrir Ís-
lendinga til að rifja upp
kynni af eldri myndum
eða sjá eitthvað
sem farið hefur hjá garði. Myndirnar, sem
spanna rúmlega tuttugu ára tímabil, verða í
sýningum frá maí og fram í septemberbyrjun.
Eitt af lykilhlutverkum Bíó Paradísar er að
veita íslenskum almenningi, sem og erlendum
gestum, aðgang að íslenskri kvikmyndasögu
og er þessi sýningaröð hluti af því.
Sumarið
er tíminn
Hentugt fyrir palladekkið!
Gott verð
á pallaefni!
af alhefluðu pallefni. Gagnvarin
fura, 22x95 mm, lengd 3,60 m.
30%
afsláttur
(Vnr. 0058324)
Aðeins um helgina!