Fréttatíminn - 13.05.2011, Blaðsíða 70
62 tíska Helgin 13.-15. maí 2011
Kauptu stílinn Vanessa Hudgens
Sjálfstæð í
klæðavali
Leikkonan Vanessa Hudgens er alltaf flott til fara og kann svo sannarlega að klæða sig eftir
nýjustu tísku. Hún er alltaf nokkrum mán-
uðum á undan tískunni og er gríðarlega
meðvituð. Hún hefur sinn eigin stíl, klæð-
ist því sem henni hentar og hefur engar
áhyggjur af því hvað öðrum finnst. Hún er
sjálfstæð og á svo sannarlega greiða leið
í tískubransanum. Fyrir þremur árum kom
hún með sína fyrstu fatalínu með eigin
hönnun sem hefur selst mjög vel.
Hagkaup, 4.990 kr.
Fókus, 9.990 kr.
Vero Moda, 2.990 kr.
Vero Moda, 2.990 kr.
Vero Moda, 2.499 kr.
www.smaskor.is
Framlengjum
sumargleðina
fram að næstu helgi
Erum á Eiðistorgi, 2. hæð í húsn
æði gömlu
blómastofunnar ( ath ekki inni á
torgi )
Opnunartími:
Miðvikudagur 11. maí 12 - 18
Föstudagur 13. maí 10 - 18
Laugardagur 14. maí 10 - 18
–einfalt og ódýrt
BIOTTA
20% AFSLÁTTUR
TILBOÐ MÁNAÐARINS
Spönginni • Hólagarði • Hagkaup Skeifunni • Hagkaup Akureyri • www.apotekid.is
DIGEST SAFI
Lífrænn og ljúffengur
ávaxtasafi, náttúruleg
uppspretta sorbitols úr
sveskjum, fíkjum og fleiri
ávöxtum.
RAUÐBEÐUSAFI
Hreinsandi eiginleikar
og einstakt næringargildi.
100% lífræn ræktun.
TILBOÐIÐ GILDIR ÚT MAÍ
Konungleg
brúðkaupsferð
Fyrir tveimur vikum gekk William krónprins
Bretlands að eiga Kate Middleton og vakti það
að sjálfsögðu heimsathygli. Á miðvikudaginn
var lögðu þau af stað í brúðkaupsferðina þar
sem þau ætla að njóta hvort annars og höfðu þau
kosið að halda áfangastaðnum leyndum. Það var
þó ekki lengi að berast til fjölmiðla hvert hjónin
héldu og í gær hafði starfsmaður hjá ferðaþjón-
ustu á Seychelles-eyjum samband við breska
fjölmiðilinn Telegraph, sem bar kennsl á parið á
einni eyjunni. Þau höfðu komið með þyrluflugi
til Seychelles-eyjanna þar sem þau munu verja
næstu tíu dögum í þvílíkri einkaparadís.